Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar 12. október 2026 20:02 Nýbirt skýrsla heilbrigðisráðuneytisins sýnir um 40% undirmönnun á 16 bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri, miðað við stöðluð mönnunarviðmið. Á þessum deildum dvelja margir af veikustu sjúklingum landsins, oft með alvarleg og flókin heilsufarsvandamál sem kalla á umfangsmikla hjúkrun og náið eftirlit. Niðurstöðurnar eru því sérstaklega alvarlegar í ljósi þess sem rannsóknir hafa sýnt um tengsl mönnunar hjúkrunarfræðinga við öryggi sjúklinga og afdrif þeirra. Mönnun hefur áhrif á afdrif sjúklinga Fjöldi alþjóðlegra rannsókna hefur sýnt tengsl milli mönnunar hjúkrunarfræðinga og afdrifa sjúklinga. Sýnt hefur verið fram á að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga tengist minni dánartíðni sjúklinga. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt tengsl ónógrar mönnunar við aukna tíðni fylgikvilla, lengri legutíma og meiri líkur á endurinnlögnum. Rétt mönnun er því ekki aðeins spurning um útgjöld heldur einnig um nýtingu fjármuna, gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Það er því mikilvægt að horfa á heildarkostnað heilbrigðisþjónustunnar en ekki einungis launakostnað einstakra eininga. Fagleg viðmið þurfa að hafa áhrif á fjárveitingar Í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins er áætlað að viðbótarkostnaður við innleiðingu mönnunarviðmiða á þeim 16 deildum sem voru til skoðunar nemi 1,5 milljörðum króna á ári, á verðlagi ársins 2024. Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027–2031 lýsti félagið áhyggjum af fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar og benti á að fjárveitingar til reksturs nægðu ekki einu sinni til að viðhalda óbreyttu ástandi. Jafnframt hefur félagið lagt áherslu á að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar þurfi að fylgja fjármagn til mönnunar og reksturs en ekki eingöngu bygginga. Þessar áhyggjur verða enn áleitnari þegar fyrir liggur faglegt mat sem sýnir jafn mikla undirmönnun og raun ber vitni. Frá niðurstöðum til aðgerða Niðurstöður skýrslu heilbrigðisráðuneytisins sýna hversu brýnt er að endurskoða forsendur mönnunar í heilbrigðisþjónustunni. Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á skort á heildstæðri yfirsýn í heilbrigðiskerfinu. Því þarf ekki aðeins að bæta mönnun á einstökum deildum heldur einnig að styrkja stefnumótun, áætlanagerð og eftirfylgni. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur um árabil kallað eftir lögbundnum mönnunarviðmiðum sem byggja á hjúkrunarþyngd og faglegu mati. Stjórnvöld þurfa að tryggja að slík viðmið verði grundvöllur mönnunar og að fjárveitingar taki mið af raunverulegri hjúkrunarþörf sjúklinga. Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytisins leggur jafnframt til að komið verði á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar til að styrkja stefnumótun í hjúkrun, leiða innleiðingu samræmdra mönnunarviðmiða og tryggja eftirfylgni með þeim. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lengi beitt sér fyrir stofnun slíks embættis og fagnar því að tillagan sé nú hluti af niðurstöðum vinnuhópsins. Skýrslan markar mikilvægt skref, en nú þurfa stjórnvöld að fylgja tillögunum eftir. Einskiptisaðgerðir og kerfisleg lausatök duga ekki til. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Helga Rósa Másdóttir Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun