Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Drangar, sem eiga meðal annars Nettó, Lyfjaval og Brauð og Co., ætla að opna nýjan verslunarkjarna á Korputúni. Forsvarsmenn Dranga og Reita undirrituðu leigusamning þess efnis í dag. Viðskipti innlent 14.7.2026 12:44
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14.7.2026 08:19
„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum. Innlent 7.7.2026 15:21
Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt. Innlent 20. júní 2026 14:38
Baráttan um 17. júní Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa úr ýmsu að velja á þjóðhátíðardaginn. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Mosfellsbær hafa öll birt dagskrár fyrir 17. júní og verður dagurinn víða merktur með hefðbundnum hátíðaratriðum, tónlist og dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Innlent 15. júní 2026 14:17
Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu. Innlent 14. júní 2026 08:21
Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Eldur hefur komið upp í vinnuvél í Álfsnesi á Kjalarnesi. Reykjarmökkur sést víða að og lögregla og slökkvilið eru á vettvangi. Innlent 8. júní 2026 12:45
Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Hilmar Gunnarsson hefur tekið við sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meirihluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Hilmar er oddviti Sjálfstæðismanna. Innlent 4. júní 2026 23:26
Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á innbroti í Reykjabú á Suður-Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Innlent 3. júní 2026 11:52
„Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir aðgerðir manns á Reykjabúi aðfaranótt mánudags ekki hafa neitt með dýravelferð að gera. Innlent 2. júní 2026 23:32
Dýrum stefnt í hættu Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út. Innlent 2. júní 2026 19:31
Fordæma innbrot í Reykjabú Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Matvælastofnun hyggt kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu. Innlent 2. júní 2026 15:44
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða. Innlent 2. júní 2026 11:00
Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. Innlent 2. júní 2026 10:08
Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Veitur hafa stöðvað borun í Skammadal og vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila í kjölfar umræðu um mengun í Varmá. Leit að heitu vatni í dalnum, sem er í Mosfellsbæ, hefur valdið litabreytingum á vatninu í ánni. Á vef Veitna segir meðal annars að áhrif á ánna hafi orðið meiri en áætlað var við upphaf framkvæmdanna. Innlent 31. maí 2026 19:08
Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Hringveginum verður lokað frá sunnudagskvöldi fram á mánudagsmorgun á meðan Vesturlandsvegur verður fræstur og malbikaður. Hjáleið verður um Mosfellsheiði og í gegnum Kjós á meðan. Innlent 29. maí 2026 15:11
„Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ Oddvitar nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Mosfellsbæ boða hóflegar álögur á íbúa og skilvirka þjónustu og lofa að gera gott fyrir Mosfellinga. Þeir segja viðræður hafa gengið vel. Innlent 28. maí 2026 20:12
Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Hilmar Gunnarsson úr Sjálfstæðisflokknum verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar í meirihlutasamstarfi sem flokkurinn handsalaði í kvöld við Viðreisn. Innlent 28. maí 2026 18:22
Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Umhverfis- og orkustofnun, UOS, lítur það mjög alvarlegum augum að set frá jarðborun Veitna í Skammadal hafi borist í Varmá. Stofnunin telur að Veitur hefðu mátt koma í veg fyrir þetta með betri og faglegri undirbúningi áður en framkvæmdin hófst en segir Veitur hafa fylgt öllum leiðbeiningum um úrbætur. UOS sinnir eftirliti vegna borana Veitna við Varmá. Innlent 28. maí 2026 07:44
„Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Íbúi við Álafoss í Mosfellsbæ segir fólk á svæðinu reitt vegna áhrifa sem borframkvæmdir í Skammadal hafa haft á lífríki Varmár. Veitur stöðvuðu í dag framkvæmdirnar á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum og ætla að kalla til óháða sérfræðinga til að meta áhrifin. Innlent 27. maí 2026 22:51
Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans. Þá verða óháðir sérfræðingar fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa. Innlent 27. maí 2026 13:17
Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. Innlent 27. maí 2026 06:30
Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag. Innlent 22. maí 2026 19:08
Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur boðið Viðreisn til formlegra meirihlutaviðræðna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna um liðna helgi. Innlent 22. maí 2026 13:25