Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Lovísa Arnardóttir skrifar 13. október 2026 11:12 Gunnlaugur Briem er formaður Félags sjúkraþjálfara. Þau hafa miklar áhyggjur af mönnun og álagi á starfsfólk á Reykjalundi. Vísir/ívar Fannar og Egill Stjórn Félags sjúkraþjálfara, FS, áætlar að sjúkraþjálfurum við Reykjalund gæti fækkað um helming í upphafi næsta árs miðað við það sem var fyrir rúmu ári. Þá hafi verið um 24 sjúkraþjálfarar starfandi á stofnuninni en vegna uppsagna verði þeir líklega ekki nema um þrettán í upphafi næsta árs. Stjórn félagsins segir þetta þegar hafa leitt til aukins álags, óöryggis í starfsumhverfi og brotthvarfs mikilvægrar sérfræðiþekkingar.
Stjórnin skorar í yfirlýsingu á stjórn og framkvæmdastjórn Reykjalundar sem og heilbrigðisyfirvöld að grípa til nauðsynlegra aðgerða til þess að koma í veg fyrir frekari fækkun sérhæfðs starfsfólks stofnunarinnar. „Tryggja þarf öruggar og heilnæmar starfsaðstæður sem og að endurbyggja traust, stöðva frekara brottfall sérfræðinga og leita allra leiða til að viðhalda gæðum þeirrar þjónustu sem Reykjalundur stendur fyrir,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar en þar ítrekar hún jafnframt að tryggja verði öfluga stjórnun sem og fullnægjandi og sjálfbæra fjármögnun endurhæfingarþjónustu. Stjórnin segir í yfirlýsingu sinni að hún hafi miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem sé komin upp. Þetta jafngildi um 50 prósenta fækkun virkra stöðugilda á þessu tímabili ef ekki tekst að ráða nýtt starfsfólk inn. Þá segir stjórnin fleira starfsfólk nú íhuga stöðu sína og stjórnin hafi áhyggjur af því að uppsögnum kunni að fjölga á næstu vikum og mánuðum verði ekki brugðist við. „Frekari veikindi og fjarverur af öðrum ástæðum geta aukið enn á vandann og veikt mönnun stofnunarinnar enn frekar,“ segir í yfirlýsingu stjórnar. Húsnæðisvandinn ekki stærsti vandinn Töluverð umfjöllun hefur verið um aðstöðu og húsnæði Reykjalundar nýlega. Í Morgunblaðinu í dag var greint frá því að líklega þurfi að rífa hluta húsnæðisins. Í síðustu viku var haldinn söfnunarþáttur á Sýn og RÚV til að safna fyrir húsakosti Reykjalundar. Alls söfnuðust 111 milljónir. Í aðdraganda þáttarins var greint frá því að fjölmörgum rýmum húsnæðisins hefði verið lokað og var söfnunin til dæmis sérstaklega fyrir sjúkraþjálfaraálfu Reykjalundar. Í yfirlýsingunni segir að þessi húsnæðisvandi sé ekki eini vandinn þó að hann hafi neikvæð áhrif á starfsumhverfið. Það sem vegi þyngra, að mati starfsfólks, sé skortur á samtali og aðferðafræði er varðar niðurskurð. „Hefur þetta grafið undan trausti til yfirstjórnar, aukið óvissu og stuðlað að brotthvarfi. Tapist sú sérþekking sem byggð hefur verið upp á Reykjalundi verður erfitt og tímafrekt að byggja hana upp á ný,“ segir í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingu frá stjórninni kemur fram að mikil fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi hafi haft í för með sér töluverða skerðingu á þjónustu við viðkvæma hópa. Þá hafi þverfagleg samvinna veikst og möguleikar til að mæta þörfum þeirra sem reiða sig á sérhæfða endurhæfingu hafa minnkað. „Þessi þróun skerðir möguleika starfsfólks til að veita skjólstæðingum Reykjalundar þá sérhæfðu þjónustu sem þeir þurfa. Starfsfólk lýsir því jafnframt að sífellt erfiðara sé að uppfylla faglegar kröfur og fylgja klínískum leiðbeiningum. Áhrifin eru nú þegar sýnileg, þótt umfang þeirra sé mismunandi eftir sviðum, en almennt er ekki lengur unnt að veita jafn víðtæka meðferð og áður,“ segir í yfirlýsingunni. Takmarkist ekki við sjúkraþjálfara Þá benda þau á að áhyggjur þeirra takmarkist ekki við sjúkraþjálfara því fleiri fagstéttir verði fyrir áhrifum, til dæmis sálfræðingar, næringarfræðingar og iðjuþjálfar. Þjónusta talmeinafræðinga hafi þegar verið lögð niður innan stofnunarinnar. „Þessi þróun ógnar þeirri þverfaglegu samvinnu sem sérhæfð endurhæfing byggir á og hefur einkennt Reykjalund á síðastliðnum áratugum.“ Í yfirlýsingu sinni bendir stjórn á að starfsfólk Reykjalundar hafi þegar í mars 2026 lýst yfir áhyggjum af þróuninni í sameiginlegu erindi 49 starfsmanna til heilbrigðisráðherra og Embættis landlæknis. Þar hafi meðal annars verið varað við útfærslu niðurskurðar, því að erfitt yrði að halda í og ráða sérhæft fagfólk og að gæði þjónustunnar gætu beðið hnekki ef ekki yrði gripið til aðgerða. „Reykjalundur gegnir lykilhlutverki í endurhæfingu á Íslandi. Á hverju ári leita þangað yfir eitt þúsund einstaklingar með flókinn og fjölþættan vanda þar sem markmiðið er að bæta færni, þátttöku og vinnugetu. Árangur þeirrar þjónustu byggir á sérþekkingu og reynslu fjölmargra fagstétta sem unnið hafa saman að uppbyggingu starfseminnar í áratugi,“ segir í yfirlýsingunni.
Heilbrigðismál Geðheilbrigði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mosfellsbær Tengdar fréttir Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar. 9. febrúar 2026 08:54 Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Lungnadeild Landspítalans í Fossvogi og lungnadeild Reykjalundar var að berast höfðingleg gjöf frá skjólstæðingi deildanna en hann safnaði þremur milljónum króna og gaf deildunum sex ferðasúrefnistæki. 16. desember 2025 22:32 Pétur hættur sem forstjóri Reykjalundar Pétur Magnússon hefur sagt upp sem forstjóri Reykjalundar og hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Reykjalundar, mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 24. nóvember 2025 12:43 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira
Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar. 9. febrúar 2026 08:54
Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Lungnadeild Landspítalans í Fossvogi og lungnadeild Reykjalundar var að berast höfðingleg gjöf frá skjólstæðingi deildanna en hann safnaði þremur milljónum króna og gaf deildunum sex ferðasúrefnistæki. 16. desember 2025 22:32
Pétur hættur sem forstjóri Reykjalundar Pétur Magnússon hefur sagt upp sem forstjóri Reykjalundar og hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Reykjalundar, mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 24. nóvember 2025 12:43