Innlent

Skoða fæðingar­or­lofsmálin

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Félagsmálaráðherra segir vinnu hafna innan ráðuneytisins við að skoða betrumbætur á fæðingarorlofskerfinu fyrir foreldra sem eignast börn með stuttu millibili. Mikilvægt sé að vanda til verka.

Í gær var fjallað um mál ungrar konu sem á von á sínu öðru barni en þar sem hún dreifði greiðslum fyrra fæðingarorlofs á hún von á lágmarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði fyrir næsta orlof. Gagnrýndi hún að ekki væri gert ráð fyrir dreifingu orlofs þegar verið er að áætla greiðslur. Undir tóku þingmenn úr meiri- og minnihluta og fundaði konan ásamt Rögnu Sigurðardóttur þingmanni Samfylkingar með Ragnari Þór Ingólfssyni félagsmálaráðherra um málið fyrr í haust.

Ragnar Þór segir að eftir fundinn sé vinna hafin innan ráðuneytisins við að kanna betrumbætur á kerfinu.

„Það sem við munum skoða fyrst og fremst núna er hvort við getum verið með innbyggðan í kerfinu einhvers konar sveigjanleika á málum þeirra sem lenda milli skips og bryggju í kerfinu. Við erum þá að horfa til að mynda til fólks sem er að eignast barn með stuttu millibili og viðmiðunartekjur þar um og fólks sem hefur eignast barn fyrir tímann og fengið annars konar tekjuútreikning en það hefði fengið ef barnið hefði fæðst á réttum tíma,“ segir Ragnar.

„Við erum bara að skipuleggja næstu skref sem snúa að því að fá til okkar fólk sem getur hjálpað okkur við að greina hvaða breytingar geta helst náð utan um þann hóp sem hefur verið að leita til okkar.“

Það þurfi að vanda til verka.

„Vandinn við breytingar í kerfinu er sá að ef þú breytir viðmiðunartímabilum, upphæðum og slíku, þá er það oft þannig að einhverjir aðrir lendi milli skips og bryggju. Svona hefur þetta lengi verið,“ segir Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×