Innlent

Hækka framfærsluskilyrði inn­flytj­enda veru­lega

Samúel Karl Ólason skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Einar

Dómsmálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri reglugerð um að hækka framfærsluskilyrði þeirra sem sækja um dvalarleyfi hér á landi eða íslenskan ríkisborgararétt. Reglugerðin felur í sér töluverðar hækkanir á þeim framfærsluskilyrðum sem þetta fólk þarf að standast. Markmiðið er að „tryggja að þeir sem setjast hér að geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum en þurfi ekki að reiða sig á félagslega aðstoð“.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, sem ber titilinn „Raunhæf framfærsluskilyrði fyrir umsóknir um dvalarleyfi“, segir einnig að framfærslugeta sé einnig sterk vísbending um að viðkomandi fólk hafi myndað raunveruleg tengsl við landið og komið sér fyrir í íslensku samfélagi.

Sambærilegar reglur eru sagðar gilda á öðrum Norðurlöndum.

Drögin má finna hér í Samráðsgátt.

Framfærsluskilyrði felur í einföldu máli sagt í sér kröfu um að sá sem sækir um dvalarleyfi þurfi að geta sýnt fram á að hann geti séð fyrir sér þann tíma sem hann vill dveljast hér á landi. Lögin sem eru nú í gildi hér á landi um bæði dvalarleyfi og umsókn um ríkisborgararétt fela í sér heimildir um þessi skilyrði en þær hafa ekki verið nýttar hingað til, samkvæmt tilkynningunni.

Sjá einnig: Ríkis­stjórnin sam­þykkir frum­varp ráð­herra um herta inn­flytj­endalöggjöf

Í áðurnefndri tilkynningu segir að nýja reglugerðin breyti ekki skilyrðum fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða. Engin leyfi eigi að falla sjálfkrafa úr gildi við gildistöku reglugerðarinnar heldur muni hún eiga við þegar sótt er um leyfi og þegar óafgreiddar umsóknir eru teknar fyrir.

Tillagðar breytingar á framfærsluskilyrðum vegna dvalarleyfisumsóknar eða umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt.Stjórnarráðið

Starfshópur um dvalarleyfi skilaði fyrir um ári skýrslu þar sem meðal annars kemur fram að viðmiðin fyrir framfærsluskilyrði séu lág hér á landi og að erfitt sé að sannreyna hvort fjármunir umsækjenda séu nægir eða í eigu þeirra.

Breytingarnar fela í sér talsverðar hækkanir á viðmiðunum. Fyrir einstakling hækkar viðmiðið úr 259.951 krónu á mánuði í 501.186 krónur, sem samsvarar 93 prósenta hækkun. Fyrir einstætt foreldri með eitt barn hækkar sama viðmið í 651.541 krónu, eða um 151 prósent.

Mesta hækkunin er fyrir einstætt foreldri með tvö börn. Þar fer viðmiðið í 801.897 krónur og hækkar þar með um 208 prósent.

Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að við ákvörðun viðmiðanna hafi verið stuðst við meðaltal þriggja viðmiða sem stjórnvöld nota þegar í íslensku velferðarkerfi. Það eru frítekjumark húsnæðisbóta, örorkulífeyrir með heimilisuppbót og tekjumark skerðingar barnabóta hjá einstæðu foreldri.

„Með reglugerðinni verða framfærsluskilyrðin skýrari, raunhæfari og fyrirsjáanlegri, bæði fyrir umsækjendur og stjórnvöld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×