Barði barn en málið fyrndist Árni Sæberg skrifar 3. nóvember 2026 16:38 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot, með því að hafa barið dreng í höfuðið eftir að hann sparkaði upp hurð að heimili mannsins. Ekki var talið að maðurinn hefði vitað að um barn væri að ræða og því var ekki hægt að dæma hann fyrir barnaverndarlagabrot. Þar sem um minni háttar líkamsárás var að ræða var brotið fyrnt eftir að rannsókn þess lá niðri hjá lögreglu í þrjú ár.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot, með því að hafa, föstudaginn 17. júní 2022, innandyra í Kópavogi veist með ofbeldi að drengnum og slegið hann með krepptum hnefa í höfuðið, með þeim afleiðingum að hann hlaut heilahristing og yfirborðsáverka á höfði. Í niðurstöðukafla dómsins segir að málsatvik séu að mestu óumdeild og maðurinn hafi frá upphafi gengist við því að hafa slegið drenginn hnefahöggi í höfuðið. Samræmist það gögnum málsins. Háttsemi hans sé rétt heimfærð undir ákvæði almennra hegningarlaga um minni háttar líkamsárás. Hafi ekki vitað að um barn væri að ræða Af hálfu mannsins sé hins vegar byggt á því að hann hafi hvorki vitað né mátt vita um aldur drengsins og því skorti saknæmisskilyrði varðandi ætluð brot á barnaverndarlögum og beri því að sýkna hann af þeirri háttsemi. Sýkna af broti á barnaverndarlögum leiði til þess að brot gegn líkamsárásarákvæði almennra hegningarlaga teljist fyrnt, þar sem tveggja ára fyrningartími hafi verið löngu liðinn er ákært var í málinu. Enn fremur hafi maðurinn vísað til neyðarvarnar vegna aðdraganda háttseminnar en hann hafi verið skelfingu lostinn þegar hurðinni að heimili hans hafi skyndilega verið sparkað upp. Í dóminum er haft eftir drengnum að hann hafi ætlað að gera dyraat hjá manninum. Tveir drengjanna hærri en maðurinn Þá segir að atburðarásin umrætt kvöld hafi verið hröð eftir að drengurinn sparkaði upp hurðinni að íbúð mannsins. „Liggur fyrir að brotaþoli og félagar hans voru hettuklæddir og að minnsta kosti tveir þeirra voru hávaxnari en ákærði. Þá hefur ekki annað sannast en að ákærði hafi staðið aftan við brotaþola er hann sló hann hnefahöggi í höfuðið nokkrum sekúndum eftir að hurðinni var sparkað upp. Ákærði hefur staðfastlega hafnað því að hafa áttað sig á að um væri að ræða pilta á unglingsaldri, en kveðst hafa róast um leið og hann áttaði sig á að svo væri. Fær sá framburður stoð í framburði vitna. Að mati dómsins er ósannað að ákærði hafi mátt vita um aldur brotaþola eins og atvikum var háttað. Er því óhjákvæmilegt að sýkna ákærða af broti gegn barnaverndarlögum.“ Ekkert að frétta af rannsókn í tæp þrjú ár Þá segir að brot mannsins sé réttilega aðeins heimfært sem minni háttar líkamsárás, sem varði fangelsi allt að einu ári. Samkvæmt almennum hegningarlögum fyrnist brot sem ekki varðar lengri fangelsisvist en einu ári á tveimur árum. Ekki verði litið öðruvísi á en að rannsókn málsins hafi stöðvast um óákveðinn tíma eftir að skýrsla var tekin af drengnum í Barnahúsi í desember árið 2022, nokkrum mánuðum eftir atvik málsins. Því hafi tveggja ára fyrningartími brotsins verið liðinn þegar skýrslur voru teknar af vitnum í nóvember 2025 og brotið því fyrnt þegar ákæra var gefin út 1. júní 2026. Af þeim sökum verði maðurinn sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira