Innlent

„Fræða en ekki hræða“

Smári Jökull Jónsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Runólfur Þórhallsson er sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra.
Runólfur Þórhallsson er sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra. Vísir/Sigurjón

Sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra segir ekki markmiðið að hræða almenning þegar hvatt er til þess að fólk efli viðbúnað sinn en í dag var gefinn út bæklingurinn „Verum viðbúin“ sem meðal annars er ætla að styrkja seiglu samfélagsins.

Bæklingurinn var kynntur á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Snúa upplýsingar í honum meðal annars að því að almenningur sé tilbúinn þegar atburðir á borð við náttúruhamfarir, fjölþátta ógnir og rafmagnsleysi verða.

Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra, segir bæklinginn hafa verið lengi í vinnslu og hann hafi verið unninn í mjög góðu samráði, meðal annars við Rauða krossinn.

„Við viljum alls ekki hræða fólk. Við viljum að þetta séu almennar leiðbeiningar sem fólk getur tekið til sín og unnið með. Fræða en ekki hræða,“ sagði Runólfur þegar Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður ræddi við hann að blaðamannafundinum loknum.

„Við berum sjálf ábyrgð þegar kemur að okkar heimili“

Þar kemur meðal annars fram að almenningur sé hvattur til að búa sig undir rafmagnsleysi og skort á húshitun, vera með reiðufé til taks og matar og vatnsbirgðir til að minnsta kosti þriggja daga. Runólfur telur fólk mjög mismunandi í stakk búið að takast á við mögulegar ógnir.

„Ég held að til dæmis að víðs vegar úti á landi, þar sem rafmagnstruflanir eru tíðari og það er lengra fyrir fólk að sækja sér bjargi, sé mikið af fólki mjög vel undirbúið. Það er ekki lengra síðan en 2019 að það voru víðtækar rafmagns- og fjarskiptatruflanir á Norðurlandi eftir desemberóveður og það hafði áhrif í marga daga.“

Gátlisti yfir nauðsynjar sem sjá má í bæklingnum.Vísir/Sigurjón

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að bæklingnum verði dreift um allt land um helgina. Íslendingar þekki vel að almannvarnarástand geti skapast í kjölfar náttúruhamfara og sjálf segist hún geta gert betur í undirbúningi.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.Vísir/Einar

„Það held ég sé nefnilega leiðarstefið í þessu að við áttum okkur á því að við berum sjálf ákveðna ábyrgð þegar kemur að okkar heimili. Með því að skoða hvað þarf að vera til af matvöru, dósavöru, rafmagnstækjum, vatni og öllu því helsta.“ 

„Ég held að fyrir marga sé þetta dálítið ný hugsun, en í sjálfu sér er hún það ekki og hún á ekki að vera það,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×