Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. maí 2026 13:37 Marinó Örn Tryggvason er fyrrverandi forstjóri Kviku banka. Vísir/Vilhelm „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins.
Icelandair eigi í miklum vanda Marinó fer yfir að þrátt fyrir margar jákvæðar tölur úr rekstri félagsins nái það ekki að skila hagnaði. Uppsafnað tap frá upphafi árs 2019 nemi 76 milljörðum króna en 17 milljörðum króna sé tímabil heimsfaraldursins undanskilið. Tapið skýrist af mörgu, eldsneytisverði, sterkri krónu, kórónuveirufaraldurinn og kyrrsetningu Max-flugvéla, svo eitthvað sé nefnt. Hluthafar hafi ekki fengið greiddan arð frá árinu 2018. „Icelandair flutti yfir 5 milljónir farþega og skilaði mettekjum árið 2025. Rekstrarniðurstaðan var engu að síður neikvæð. Staðreyndin er að Icelandair hefur einungis skilað hagnaði á einu rekstrarári á síðustu átta árum.“ Kjaraviðræður „Það er skammgóður vermir fyrir starfsmenn að sækja kjör í dag með því að veikja félagið sem á að greiða þau á morgun,“ segir Marinó sendir þannig tóninn til kjarnastétta Icelandair sem eiga þessa dagana í kjarasamningsviðræðum við fyrirtækið. Hefur þar farið mest fyrir kjarabaráttu flugmanna en einnig standa yfir viðræður við félög flugfreyja og flugvirkja. „Það er nauðsynlegt að Icelandair og starfsmenn geri samninga sem leiða til þess að félagið geti verið samkeppnishæft í næstu árum. Það er skammgóður vermir fyrir starfsmenn að sækja kjör í dag með því að veikja félagið sem á að greiða þau á morgun.“ „Maður mjólkar ekki dauða kú,“ segir Marinó. Flugrekstur erfiður á Íslandi síðustu ár Marinó segir síðustu ár hafa verið erfið í flugrekstri hér á landi og hár launakostnaður hái rekstri flugfélaga hérlendis. „Launakostnaður hefur hækkað mun meira á Íslandi en í nágrannalöndum. Í flugi skiptir slíkur munur miklu, enda keppir Icelandair við félög sem búa við annan kostnaðargrunn.“ „WOW air varð gjaldþrota árið 2019. Play óskaði gjaldþrotaskipta árið 2025… Félag sem tapar peningum ár eftir ár veikist að lokum, sama hversu mikilvægt það er samfélaginu. Samfélagslegt mikilvægi tryggir ekki tilvist fyrirtækja. Það gerir sjálfbær rekstur.“ Marinó segir flugrekstur einstaklega berskjaldaðaðan fyrir ytri áföllum. „Spurningin er ekki hvort næsta áskorun komi, heldur hvenær. Þess vegna skiptir hagkvæmni í rekstri og sveigjanleiki miklu máli.“ Kemur í kjölfar pistils Skúla Greinin kemur fast á hæla pistils Skúla Mogensen, Wow-stofnanda, sem fjallaði í gær um vanda Icelandair á Facebook-síðu sinni. Hann benti þar á fleiri þætti en kjarasamninga sem hafi neikvæð áhrif á rekstur Icelandair. Hann sé til að mynda of flókinn með of mörgum tegundum flugvéla og starfsemi sem dreifist á of mörg svið, fraktflug, leiguflug, ferðaskrifstofu, rekstur flugherma, fasteignir, innritunar- og handlingsstarfsemi og innanlandsflug. Icelandair gífurlega mikilvægt fyrirtæki Marinó segir Icelandair grunnstoð í íslensku efnahagslífi. Félagið sé tenging okkar við umheiminn og veiti um 2% vinnandi fólks á Íslandi atvinnu. „Ferðaþjónustan skapar um þriðjung gjaldeyristekna þjóðarbúsins og skilar greinin miklum skatttekjum árlega. Öflugar samgöngur eru forsenda góðra lífskjara á Íslandi. Án þeirra verður erfiðara að flytja út vörur, þjónustu, hugmyndir og menningu. Það dregur úr hagvexti og rýrir lífskjör allra landsmanna.“ Ísland bjóði fleiri dagleg flug til N-Ameríku en Skandinavía samanlagt Marinó bendir á að það sé ekki sjálfsagt fyrir Ísland að búa að svo góðum tengingum við umheiminn, heldur sé það vegna rekstrarmódels Icelandair þar sem farþegum er boðið flug yfir N-Atlantshaf með stuttri viðkomu á Íslandi. „Við höfum vanist flugtengingum sem eru langt umfram það sem stærð þjóðarinnar gefur tilefni til. Frá Íslandi er flogið daglega til fleiri borga í Norður-Ameríku en flogið er frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi til samans.“ „Starfsemi Icelandair er byggð á viðkvæmu viðskiptalíkani sem hefur tekið áratugi að byggja upp og þarf að ganga upp á hverjum degi.“ Viðræður flugmanna og flugvirkja komar til Ríkissáttasemjara Viðræður bæði flugmanna og flugvirkja eru komnar á borð Ríkissáttasemjara. Fulltrúar flugmanna og Icelandair sitja á fundi nú þegar þetta er birt. Vísir greindi frá því í morgun að lítið þokist áfram í viðræðum.
Icelandair Kjaramál Efnahagsmál WOW Air Gjaldþrot Play Tengdar fréttir Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna. 2. maí 2026 14:50 Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Fleiri fréttir Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Sjá meira
Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna. 2. maí 2026 14:50
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent