Atvinnulíf

Lokanir, lægðir og sam­visku­bit

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Áhrifin á okkur á óveðursdögum gætu mögulega verið meiri en okkur oft grunar. Enda hefur vinnusálfræðin rannsakað þessi áhrif um árabil. Fróðleikur og góð ráð fyrir alla fylgja þessum vikulokum.
Áhrifin á okkur á óveðursdögum gætu mögulega verið meiri en okkur oft grunar. Enda hefur vinnusálfræðin rannsakað þessi áhrif um árabil. Fróðleikur og góð ráð fyrir alla fylgja þessum vikulokum. Vísir

Ekkert okkar er það bjartsýnt fyrir veturinn að stóra lægðin og óveðrið sem hér geisaði í vikunni sé það fyrsta, eina og síðasta sem fram undan er.

Nei, svo aldeilis má búast við fleiri lægðum, fleiri viðvörunum í vetur. Með tilheyrandi röskun á atvinnulífi, skóla og fleira.

Það áhugaverða er að vinnusálfræðin hefur rannsakað töluvert hvað gerist á vinnustöðum þegar allt fer á hliðina í óveðri eins og þessu.

Niðurstöðurnar sýna skýrt hvað reynist best – og hvaða gildrur ber að varast. 

Í góðu ráðum þessi vikulok, ætlum við að rýna í fróðleik og góð ráð fyrir alla tengt óveðrum.

1. Varist stafræna sektarkennd

Áður fyrr þýddi ófærð einfaldlega að fólk komst ekki til vinnu; það var ófært og samfélagið tók sér pásu.

Með tilkomu fjarvinnu hefur þetta breyst en rannsóknir sýna að starfsfólk upplifir oft mikla sektarkennd og reynir hvað sem það getur að viðhalda „stafrænni viðveru“ á Teams eða Slack, jafnvel þótt aðstæður heima fyrir séu í uppnámi.

Gott ráð fyrir stjórnendur: Sendið skýr skilaboð strax um morguninn: „Við vitum að aðstæður eru erfiðar í dag. Setjum brýnustu verkefni í forgang en leyfum öðru að bíða.“ Þetta léttir strax á samviskubiti starfsfólks.

2. Keðjuverkun lokana: Fjarvinna með börn heima er ekki full vinna

Þegar skólar og leikskólar loka eða seinka opnun riðlast allt dagskipulag foreldra. Rannsóknir sýna að samhliða umönnun barna og fjarvinnu verður verulegt framleiðnitap auk þess sem álagið eykst gríðarlega. Það er einfaldlega óraunhæft að ætlast til óskertrar einbeitingar við slíkar aðstæður.

Gott ráð fyrir starfsfólk: Verið raunsæ og stillið væntingum í hóf. Fellið niður eða frestið hefðbundnum fundum sem krefjast djúprar einbeitingar og einbeitið ykkur frekar að afmörkuðum, smærri verkefnum.

3. Ákvarðanatregða veldur meiri streitu en sjálft óveðrið

Rannsóknir á stjórnun í óvissu sýna að það sem veldur fólki mestri streitu er ekki lokunin sjálf, heldur biðin eftir ákvörðun.

Þegar tilkynningar um skólahald eða vinnuskyldu berast á síðustu stundu - til dæmis seint að kvöldi eða snemma að morgni - magnast óvissa og pirringur hratt.

Gott ráð fyrir stofnanir og stjórnendur: Skýrar reglur og snemmbúnar ákvarðanir skipta öllu. Betra er að taka varúðarákvörðun tímanlega en að halda öllu opnu fram á síðustu stundu.

4. Samkennd og félagsleg seigla vinnustaða

Það jákvæða er að þegar ytri aðstæður herja á samfélagið eykst oft samstaða, skilningur og hjálpsemi. Fólk sýnir töfum, tæknilegum hnökrum og fjarveru samstarfsfélaga meira umburðarlyndi en vanalega.

Og þetta þekkjum við Íslendingar nú sannarlega!

Gott ráð fyrir alla: Nýtið daginn til að sýna liðsauka og sveigjanleika. Einföld skilaboð eins og: „Hvernig gengur hjá þér, þarftu aðstoð við að létta á verkefnum í dag?“ geta skipt sköpum fyrir starfsanda og traust innan teymisins til lengri tíma.


Tengdar fréttir

Fjár­hagsáhyggjur starfs­fólks tvöfaldar: Vinnan og heima

Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt.

Þegar allt er að fara fjandans til…

Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×