Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Rakel Sveinsdóttir skrifar 3. september 2026 07:04 Eitt af því sem við áttum okkur oft ekki á fyrr en við missum vinnuna er að við erum búin að samvefja sjálfsmyndina okkar að starfinu eða stöðuheitinu. Eftir stendur því spurningin: Hver er ég? ef við erum ekki lengur með vinnu. Vísir/Getty Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli.
Feimnislaust reynum við að ræða þessi mál í Atvinnulífinu. Veltum upp mismunandi vinklum og leitum ráða hjá sérfræðingum. Nokkur slík viðtöl fylgja hér á eftir. Í dag er ætlunin þó að ræða aðra hlið á því að missa vinnuna okkar, en það er sjálfsmyndin okkar. Því margir sem missa vinnuna sína átta sig allt í einu á spurningum eins og: Hver er ég eftir uppsögn? Hver er ég ef ég gegni ekki lengur þessu hlutverki? Í sálfræðinni er talað um að sjálfsmynd okkar geti orðið samofin starfinu eða stöðugildinu okkar. Ekki síst ef við höfum starfað við það sama í mörg ár eða höfum helgað okkur fyrri starfi svo mikið að okkar eigin mörk á milli þess hver við erum og hvað við gerum hafa oft og tíðum verið óljós. Okkar nánasta fólk hefur jafnvel nefnt það við okkur. Því vinnan hefur einhvern veginn alltaf verið númer eitt… Einn daginn breytist allt. Því allt í einu er bara ekkert í dagatalinu, eins og lesa má um í þessu viðtali hér: Að takast á við þessi kaflaskil getur nefnilega verið þrælerfitt. Og oft tekur það okkur jafnvel svolítinn tíma að lenda. Við eiginlega verðum svolítið týnd. Hver erum við eiginlega þegar við erum atvinnulaus? Og hvernig má búast við að okkur líði þá? Ýmis góð ráð má lesa í þessu viðtali hér: Þá á eftir að nefna þann hóp fólks sem ekki missti vinnuna. Því oft líður þessum hópi mjög illa í kjölfar uppsagna. Eru jafnvel lengur að ná sér en þeir sem misstu vinnuna. Eins og lesa má í þessu viðtali hér: Hópurinn sem eftir stendur getur jafnvel upplifað ótta við að missa vinnuna sína. Að lenda í sömu sporum og vinnufélagarnir góðu sem nýverið þurfti að kveðja. En hvaða góðu ráð geta hjálpað okkur að forðast að týna sjálfsmyndinni okkar um of ef við missum vinnuna? Hér eru nokkur góð ráð: 1. Aðskildu virðið þitt frá vinnunni Þú ert ekki vinnan þín. Starfsheiti eru tímabundið hlutverk í atvinnulífinu. Þekkingin þín, reynsla, mennska, samskiptahæfileikar, vinnusemi, persónuleikinn og fleira… allt er þetta eitthvað sem þú átt. Fyrir okkur öll er því mikilvægt að muna að uppsögn breytir engu um virði okkar sem manneskju. 2. Gefðu þér tíma til að staldra við og anda Okkur finnst óvissa eðlilega erfið. Að vita ekki hvað tekur við næst. En til að búa okkur undir næsta frábæra tækifæri er oft gott fyrir okkur að mæta fílefld til leiks, í góðu jafnvægi og í okkar helsta og besta gír, í kjölfar þess að hafa leyft okkur að anda aðeins. Flýtum okkur hægt. Gefum okkur tíma til að meðtaka sjokkið, fara í gegnum sorgina. Upplifa rússíbanann sem uppsögninni fylgir. Á endanum verður þetta að dýrmætri reynslu. 3. Skrifaðu niður hver þú ert ÁN starfsins Síðast en ekki síst er gott að fara í smá vinnu með okkur sjálfum þar sem við áttum okkur á því hver við erum þegar við erum ekki að vinna. Þetta verkefni geta í raun allir æft sig á. Því að aðskilja vinnuna okkar við sjálfsmyndina okkar gerir okkur betur kleift að takast á við óvænt áföll þegar þau koma upp. Til dæmis að vera sagt upp óvænt. 4. Ræktaðu tengslin sem skipta máli Flestir viðmælendur sem Atvinnulífið hefur rætt við um atvinnumissi eða uppsagnir nefna hversu miklu máli það skiptir að rækta tengslin við fólkið sem skiptir okkur máli. Samveru og samskipti sem næra okkur á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Nú er einmitt tíminn til að nýta sér þessi tengsl. 5. Spennandi tímar framundan Loks er það að muna að þegar einar dyr lokast, opnast aðrar. Oft er það meira að segja svo að það sem okkur finnst sárt og erfitt endar ekki aðeins með því að gera okkur sterk og reynslunni ríkari heldur leiða okkur að einhverju sem við endum með að vera miklu ánægðari með. Hvernig væri því að spyrja okkur sjálf núna: Hvað langar mig mest að gera?Hvaða styrkleika langar mig að nýta meira og oftar? Hvað finnst mér skemmtilegt að gera? Því hver veit nema næsta starf verði á endanum allra besta draumadjobbið… Meira efni:Psychologic Today: You Are Not Your Work Áskriftarefni Harvard Business Review: What Happens When Your Career Becomes Your Whole Identity
Góðu ráðin Tengdar fréttir Uppsagnir framundan: „Af hverju ég?“ Fólk sem lendir í uppsögnum fer í gegnum nokkur stig tilfinninga í kjölfarið. Allt frá afneitun yfir í reiði sem beinist að yfirmanninum og sorg. 18. mars 2020 08:00 Uppsagnir fram undan og óttinn vex Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir. 22. júní 2026 07:01 Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02 Að sækja um starf eftir uppsögn Það er eðlileg líðan að fara í smá vörn eftir að hafa verið sagt upp í starfi. Því auðvitað gerir ekkert okkar ráð fyrir að starfslokum beri þannig að. 11. júní 2024 07:00 Hvorki laun né kjarasamningar hjá stafrænu vinnuafli Það eru hvorki laun né kjarasamningar sem þarf að huga að hjá stafrænu vinnuafli. Því já, þið lásuð rétt: Stafrænt vinnuafl er orðið að veruleika. 6. september 2022 07:00 Mest lesið Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Atvinnulíf Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
Uppsagnir framundan: „Af hverju ég?“ Fólk sem lendir í uppsögnum fer í gegnum nokkur stig tilfinninga í kjölfarið. Allt frá afneitun yfir í reiði sem beinist að yfirmanninum og sorg. 18. mars 2020 08:00
Uppsagnir fram undan og óttinn vex Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir. 22. júní 2026 07:01
Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02
Að sækja um starf eftir uppsögn Það er eðlileg líðan að fara í smá vörn eftir að hafa verið sagt upp í starfi. Því auðvitað gerir ekkert okkar ráð fyrir að starfslokum beri þannig að. 11. júní 2024 07:00
Hvorki laun né kjarasamningar hjá stafrænu vinnuafli Það eru hvorki laun né kjarasamningar sem þarf að huga að hjá stafrænu vinnuafli. Því já, þið lásuð rétt: Stafrænt vinnuafl er orðið að veruleika. 6. september 2022 07:00