Skoðun

Heilsársleikskóli í Hafnarfirði

Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar

,,Markmið með sumaropnun er að koma til móts við óskir foreldra um að hafa leikskólann opinn í júlí og þannig auka möguleika á að foreldrar geti verið í sumarfríi á sama tíma og börn þeirra. Krafa um heilsársopnun er einnig í takt við nútíma samfélag, íslenskt atvinnulíf og rétt barna til að njóta sem flestra stunda með fjölskyldu sinni í fríi sínu.“

Þannig hefst bókun fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar miðvikudaginn 18. nóvember um opnun leikskóla bæjarins í júlí – heilsársleikskóli. Ákvörðun sem eykur orlofsvalfrelsi foreldra yfir sumarmánuðina sem vonandi leiðir af sér lengri og gæðameiri fjölskyldustundir. Ákvörðun sem styður betur hafnfirskar fjölskyldur sem fara strax á nýju ári að skipuleggja næsta sumar – ákvörðun sem bætir leikskólaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar.

Ég hef sagt það áður að það er góð tilfinning fyrir kjörna fulltrúa þegar þeir finna fyrir áhuga og ástríðu íbúa fyrir þeim málum sem þeir vinna að. Ég hef líka sagt áður að það sé þakkarvert þegar foreldrar, íbúar og starfsmenn sveitarfélagsins leggja á sig mikla vinnu til að setja sig inn í mál, hvort sem það er til að gagnrýna eða styðja tiltekin málefni.

Þannig er hægt að segja að allt frá því að málið var sett á dagskrá hefur farið fram fagleg og góð undirbúningsvinna, uppbyggileg og gagnrýnin umræða og víðtækt samráð haft við sérfræðinga og þá sem nýta þjónustuna.

Starfshópur var skipaður af starfsmönnum, stjórnendum, foreldrum, starfsmönnum mennta- og lýðheilsusviðs og kjörnum fulltrúum sem fjölluðu um allar þær vangaveltur og ábendingar sem komu upp um málið.

Aukið valfrelsi eykur lífsgæði fjölskyldna, gefur fjölskyldum betra tækifæri til að eyða sínu sumarfríi sem ein heild. Aukið valfrelsi gefur starfsmönnum meira svigrúm til að eyða sínu sumarfríi eins og þeim og þeirra fjölskyldu hentar best.

Mikil breyting hefur orðið á faglegu starfi innan leikskóla í landinu á undanförnum árum, á meðan þjónustan hefur ekki tekið breytingum miðað við það nútíma samfélag sem við búum við í dag. Kröfur atvinnulífsins hafa breyst, þær eru orðnar meiri og ítarlegri með tilheyrandi auknu álagi á fjölskyldur. Í ljósi COVID tíma eykst þetta álag til muna. Það er því eðlilegt og nauðsynlegt að Hafnarfjarðarbær auki þjónustu sína og stuðning í takt við aukið álag á barnafjölskyldur.

Þá stendur eftir að þessar breytingar eru framfarir fyrir foreldra, forráðamenn og starfsfólk leikskóla Hafnarfjarðarbæjar. Þessar breytingar auka valfrelsi, lífsgæði og þjónustu.

Það er mikil blessun fyrir Hafnarfjarðarbæ að eiga jafn faglegt, drífandi og dásamlegt starfsfólk á leikskólum bæjarins. Forréttindi sem einkenna Hafnarfjörð og setja bæinn í fremstu röð.

Margrét Vala Marteinsdóttir

Greinarhöfundur er varaformaður fræðsluráðs Hafnafjarðarbæjar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×