Aron hafði betur í Íslendinga uppgjöri Meistaradeildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. febrúar 2020 21:00 Aron skoraði tvö mörk er Börsungar unnu nauman sigur á heimavelli. Vísir/Getty
Barcelona vann nauman tveggja marka sigur, 30-28, á Pick-Szeged í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk í liði Pick-Szeged. Sigur Börsunga kom ekki á óvart en hann var torsóttur í meira lagi. Liðið var á toppi A-riðils í Meistaradeildinni fyrir leik kvöldsins og talið sigurstranglegra áður en leikur hófst. Gestirnir í Pick-Szeged voru á öðru máli og byrjuðu leikinn einkar vel. Svo vel raunar að þeir voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, staðan þá 15-13 gestunum í vil. Börsungar náðu vopnum sínum í síðari hálfleik, jöfnuðu metin og komust svo yfir. Fór það svo að ógnarsterkt lið Börsunga vann leikinn með tveggja marka mun, 30-28. Skiptu mörk Arons þar miklu en hann skoraði tvö mörk í liði Barcelona í kvöld. Stefán Rafn gerði gott betur í liði Pick-Szeged en hann gerði fjögur mörk úr aðeins fjórum skotum. Því miður dugðu þau ekki til sigurs. Var þetta síðasta umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og bæði lið fara áfram í 16-liða úrslit. Börsungar unnu riðilinn með 26 stig en Pick-Szeged var í 3. sæti með 20 stig.
Handbolti Mest lesið NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Körfubolti Ronaldinho og Usain Bolt reyna fyrir sér í þjálfun Sport Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Skoraði nánast alveg eins mark í fyrra en Del Piero gerði betur Fótbolti Magnaður viðsnúningur hjá Aserum Fótbolti Ótrúlegt átta marka jafntefli hjá Juventus og Dortmund Fótbolti Ódýr vítaspyrna tryggði tíu Madrídingum endurkomusigur Fótbolti Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Handbolti Tottenham slapp með sigur eftir furðulegt sjálfsmark Fótbolti Hættir að verja mark Frakklands til að verja tíma með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi Sjá meira