Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. desember 2025 13:46 Sigvaldi datt úr hópnum vegna meiðsla í síðasta landsliðsverkefni og missti þar með sæti sitt í liðinu á EM í janúar. vísir „Spurning sem mig grunar að brenni á mörgum er valið á hornamönnunum“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson á blaðamannafundi þar sem EM-hópurinn var kynntur.
Klippa: Snorri Steinn útskýrir valið á hornamönnunum Reynslan varð fyrir valinu í vinstra horninu Landsliðsþjálfarinn valdi þá Orra Frey Þorkelsson og Bjarka Má Elísson í vinstra hornið en skilur Stiven Tobar Valencia eftir heima. Snorri segir ekkert við Stiven að sakast, reynsla Bjarka vó bara þyngra þegar hann valdi hópinn. „Ég hef verið að hreyfa aðeins við þessu og prófa. Stiven var til dæmis í Þýskalandi með okkur um daginn og stóð sig frábærlega, í raun er ekkert út á hans frammistöðu að setja… Mér fannst gott að vita af Bjarka, með alla hans reynslu sem leikmaður og landsliðsmaður. Mér fannst mikilvægt, og sérstaklega í ljósi þess að þetta er fyrsta stórmótið án Arons Pálmarssonar, að henda ekki út 2-300 leikja reynslu á einu bretti, og þar fyrir utan er Bjarki Már bara frábær hornamaður.“ Óðinn fyrsti kostur í hægra horninu Í hægra hornið valdi Snorri þá Óðin Þór Ríkharðsson og Teit Örn Einarsson en skildi Sigvalda Björn Guðjónsson eftir heima. „Það er svosem ekkert leyndarmál að Óðinn Þór er hugsaður sem fyrsti kostur en ég tek Teit með sem hornamann og ekkert annað. Hann sinnir þessu hlutverki hjá félagsliði sínu, Gummersbach, spilar bakvörð í vörn og horn í sókn, þegar það á við… Ég held að það verði mikilvægt þegar líður á mótið að geta hvílt menn eins og Ómar Inga.“ Sigvaldi missti sætið í síðasta verkefni Snorri sagði síðasta landsliðsverkefni, æfingaleikina tvo gegn Þýskalandi í nóvember, hafa reynst dýrt fyrir Sigvalda Björn, sem datt út úr hópnum á síðustu stundu vegna meiðsla. Inn kom þá Teitur Örn Einarsson og hirti af honum stöðuna. Sigvaldi verður því ekki í hópnum á EM en hann hefur átt fast sæti á öllum stórmótum síðan 2019. „Þegar uppi er staðið þá var vikan í Þýskalandi dýr fyrir hann. Það var planið og meiningin að láta hann spila bakvörð og prófa hann. Hann hefur gert það ágætlega í Kolstad en mér leið betur með þetta val.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira