Utan vallar

Utan vallar: Fær íslenska þjóðin nostalgíukvöld í Laugardalnum í kvöld?
Eitt það mest spennandi við landsleik Íslands og Liechtenstein á Laugardalsvellinum í kvöld er kannski það hvað verður hlutverk Gylfa Þórs Sigurðssonar í leiknum.

Utan vallar: Á fleygiferð upp Rushmore-fjall íslenskra þjálfara
Eftir erfiða og heldur sérstaka byrjun á þjálfaraferlinum er Arnar Gunnlaugsson sigurvegari íslensks fótbolta þessi dægrin. Víkingarnir hans hafa unnið sex af síðustu níu titlum sem í boði hafa verið. Liðið í ár er í umræðunni sem besta lið Íslandssögunnar og Arnar er á góðri leið með að klífa upp á topp Rushmore-fjalls íslenskra þjálfara.

Utan vallar: Hefja nýjan kafla í Tel Aviv í stöðu sem Íslendingar þekkja vel
Undanfarna daga hefur setningin „Breiðablik mun hefja nýjan kafla í sögu íslensks fótbolta“ oft borið á góma og verið rituð. Nú er komið að þeirri stund. Í kvöld mun Breiðablik svo sannarlega rita upphafsorðin í nýjum kafla í sögu íslensks fótbolta sem fyrsta íslenska karlaliði til að leika í riðlakeppni í Evrópu.

Utan vallar: Steikjandi hiti Tel Aviv tekur á móti brautryðjendum Breiðabliks
Vegferð karlaliðs Breiðabliks í fótbolta í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu hefst hér í Ísrael, nánar tiltekið Tel Aviv, á fimmtudaginn kemur þegar að Blikar heimsækja sigursælasta lið Ísrael, Maccabi Tel Aviv. Lið sem þjálfað er af þekktum fyrrum markaskorara úr ensku úrvalsdeildinni.

Utan vallar: Framför og full ástæða til bjartsýni þrátt fyrir grátleg úrslit
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir Portúgal með minnsta mun á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2024 í gær, þriðjudag. Nokkrum dögum áður tapaði einnig liðið á súran hátt gegn Slóvakíu. Þrátt fyrir það virðist landinn talsvert bjartsýnni eftir þetta verkefni drengjanna heldur en undanfarin misseri.

Utan vallar: Mannlegur Grealish ber af hjá Evrópumeisturunum
Jack Grealish var ekki meðal þeirra sjö leikmanna Manchester City sem komst í lið ársins í Meistaradeild Evrópu. Það er samt eitthvað svo mannlegt við Grealish að það er ekki annað hægt en að líka vel við hann, þó þú haldir með rauða liðinu í Manchester-borg.

Utan vallar: Skattaskýrslunni skilað
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í undankeppni EM 2024 síðar í mánuðinum. Svo virðist sem þjóðarpúlsinn sé mátulega jákvæður um þessar mundir eftir afar erfiða mánuði hjá íslenska liðinu. En er innistæða fyrir bjartsýni fyrir undankeppnina?

Úrslitastund sem undirstrikar allt það sem er að
Ég er eiginlega enn pirraður eftir aðfaranótt mánudags. Ekkert annað orð en anti-climax kemur í hugann til að lýsa lokastundum Ofurskálarinnar. Hvernig svo sturlaður úrslitaleikur á einum stærsta íþróttaviðburði ársins getur endað með þessum hætti er átakanlegt.

Sjálfsblekking Arsenal-manna
Nokkur hópur stuðningsmanna Arsenal virðist lifa í ákveðinni sjálfsblekkingu varðandi ímynd félagsins. Það endurspeglaðist vel á leik liðsins við Brentford um helgina en þar tapaði liðið stigum aðra helgina í röð.

Utan vallar: Leikþáttur til þess að blása ryki í augu forseta IHF
Fyrir rétt rúmum tveimur vikum síðan voru öll liðin á HM í handbolta að fara á taugum út af Covid-prófum. Í dag er enginn að tala um þau enda virðist sá gjörningur hafa verið einn stærsti leikþáttur seinni ára.

Utan vallar: Úr neðanmálsgrein hjá þjóðinni í fyrirsögn
Þegar Ómar Ingi Magnússon var kjörinn Íþróttamaður ársins í fyrra ráku sumir upp stór augu og spurðu einfaldlega: Hver er þetta? Nú spyr enginn hver Ómar Ingi sé. Nema viðkomandi búi í helli.

Utan vallar: Kaupa aftur hlutabréf í Heimi í sögulegu lágmarki
Síðast þegar FH keypti hlutabréfin í Heimi Guðjónssyni í sögulegu lágmarki reyndist það snilldarráð. En geta FH-ingar endurtekið leikinn?

Utan vallar: Er KSÍ að taka brýnt samtal eða blóðuga seðla?
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar í Abú Dabí á sunnudaginn kemur við landslið Sádi-Arabíu og hjálpar Sádum þannig við undirbúning sinn fyrir HM í Katar sem hefst 20. nóvember. Í því samhengi er vert er að spyrja: Hvað liggur þar að baki?

Utan vallar: Lið í hlekkjum hugarfarsins
Klárum þetta augljósa fyrst. Stéphanie Frappart dómari óð í villu og svíma í umspilsleik Portúgals og Íslands á þriðjudaginn og kom sér vel fyrir á listanum yfir óvini íslenska ríkisins. En galin frammistaða hennar tók líka athyglina frá slakri spilamennsku Íslands meðan enn var jafnt í liðum. Og spilamennska sem er þessi er ekki einsdæmi hjá íslenska liðinu.

Utan vallar: Íslendingar áberandi er Meistaradeildin mætti til Köben
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar er liðið tók á móti Sevilla í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á heimavelli sínum Parken. Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson hófu leik á bekknum á meðan fjöldi Íslendinga var í stúkunni, þar á meðal einn í fjölmiðlastúkunni.

Utan vallar: Ógeðslega ósanngjarnt
Ég botna ekki í því hvert alþjóðafótboltinn er að stefna með því að láta heppni ráða svona miklu um það hvaða þjóðir komast á stórmót, eins og raunin er farin að vera varðandi umspil í Evrópu. Ætli Ísland verði aftur eins óheppið í dag og árið 2020?

Utan vallar: Hugur manns er hjá þeim sem halda bæði með FH og Man. United
Að vera bæði FH og Manchester United stuðningsmaður í dag er algjört kvalræði og þau hin sömu hljóta að þurfa á miklum og jákvæðum stuðningi að halda eftir enn eina martraðarhelgina.

Utan vallar: Svartnættið í Manchester
Það er vissulega aðeins ein umferð búin í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta en stór hópur stuðningsfólks Manchester United hefur þegar gefið upp von. Á meðan ársmiðahafar í Manchester-borg íhuga að labba út af leik Man United og Liverpool íhugar íslenskt stuðningsfólk að finna sér önnur áhugamál.

Utan vallar: Hvernig ertu í lit?
„Þegar ég sé svona gæja eins og þig, finnst mér öll veröldin breyta um svip. Þú hefur þannig áhrif á mig, að ég fell í yfirlið“ sungu Dúkkulísurnar á níunda áratugnum í laginu Svarthvíta hetjan mín sem hefur reglulega verið leikið af stuðningsmönnum sem óður til hetjanna í liði KR þegar best lætur.

Utan vallar: Komust á Rushmore-fjall íslenska handboltans
Valur var með langbesta lið landsins í handbolta karla í vetur. Það er staðreynd, ekki skoðun. En hversu gott er Valsliðið 2021-22 í sögulegu samhengi?

Utan vallar: Fullkomnunarárátta Pep kemur í veg fyrir að City taki síðasta skrefið
Leit Manchester City að hinum heilaga kaleik heldur áfram. Liðið virtist vera á leið í úrslit Meistaradeildar Evrópu annað árið í röð þegar hinn fullkomni stormur lenti á liðinu og liðið féll úr leik í Madríd gegn liði – og þjálfara – sem virðist andstæðan við Man City undir stjórn Pep.

Utan vallar: Skiptar skoðanir hvort sala ungra leikmanna hafi áhrif á gæði í Bestu deildinni
Í liðinni viku seldi Breiðablik tvo unga og efnilega drengi til stórliða á Norðurlöndunum. Báðir leikmenn komu við sögu í einum leik Breiðabliks á síðasta tímabili og spurning hvort hlutverk þeirra hefði verið enn stærra í ár.

Utan vallar: Standast strákarnir okkar stóra prófið?
Þrátt fyrir gott gengi á EM getur enn allt gerst í dag. Strákarnir okkar geta farið á flugi inn í milliriðil með stig í töskunni eða flogið heim til sín. Það er stutt á milli í þessu.

Utan vallar: Komið að uppskerudegi
Það er janúar og íslenska karlalandsliðið í handbolta er að hefja leik á stórmóti. Eins og öll ár á þessari öld nema eitt.

Utan vallar: Ljós við enda ganganna
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu lýkur í dag undankeppni sinni fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Katar síðla vetrar á næsta ári. Eftir erfiða mánuði þar sem svartnættið var allsráðandi virðist loks vera ljós í enda ganganna.

Utan vallar: Enginn hlær lengur að Arnari Gunnlaugssyni
Fyrir þremur árum virtist Arnar Gunnlaugsson ekki í miklum tengslum við raunveruleikann þegar hann ræddi um sína fótboltaheimspeki, þá nýtekinn við Víkingi. En núna er hann heitasti þjálfari landsins.

Utan vallar: Er Solskjær of mikið ljúfmenni fyrir Man. United?
Það er óhætt að segja að það sé mikil pressa á norska knattspyrnustjóranum Ole Gunnari Solskjær eftir slakt gengi Manchester United liðsins að undanförnu.

Utan vallar: Hatrið orðið lýjandi fyrir ungt íþróttafólk
Þegar fólk nær ákveðnu stigi af frægð og frama hættum við sjá það sem manneskjur. Þau eru ekki lengur mennsk í okkar augum, það er ekki hlutverkið sem við höfum gefið þeim. Við höfum afmennskað þau að mörgu ef ekki öllu leyti.

Utan vallar: Southgate gjörsamlega í bullinu, eða hvað?
Þeir voru ekki lengi að snúast gegn honum. Gareth Southgate. Landsliðseinvaldinum sem setti mikla ábyrgð á herðar ungstirna enska landsliðsins í vítaspyrnukeppninni gegn Ítalíu í gær. Þjálfari með allt niðrum sig. Glórulaus ákvörðun. Reka manninn!

Utan vallar: Guðdómlegur réttur þeirra ríku til að verða ríkari
Hvað gerist ef þú lokar hóp af moldríkum miðaldra forréttindapésum inni og gefur þeim andrými til að kokka upp eins lygilega aðferð og mögulegt er til að græða pening?