

Alls sóttu 37 manns stöðu framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis. Nýr framkvæmdastjóri mun taka við af Sigtryggi Jónssyni sem hefur látið af störfum vegna aldurs.
Með Græna planinu erum við að gera loftslagsmálin að leiðarstefi við alla ákvarðanatöku.
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka skuli bókabúð Máls og menningar á Laugarvegi um óákveðinn tíma, sömu sögu er að segja um kaffihús rekið í sama húsnæði.
Reykjavíkurborg hyggst taka forystu í aðgerðum til að bregðast við efnahagssamdrætti og vaxandi atvinnuleysi eftir heimsfaraldur og mun tryggja að aðgerðirnar verði í samræmi við framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag og metnaðarfull loftslagsmarkmið borgarinnar.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er núna í útkalli á bensínstöð Atlantsolíu við Bústaðaveg en um er að ræða alvarlegan bensínleka á stöðinni að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson mun klukkan 13:00 kynna Græna planið svokallaða sem er víðtæk áætlun um fjárfestingar, framkvæmdir og atvinnusköpun í Reykjavík.
Aðgerðaráætlun um grænt plan verður tekin fyrir á borgarstjórnarfundi í dag. Í því felst að allar aðgerðir borgarinnar verða grænar.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann um þrítugt í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa í félagi við annan mann tekið bíl í heimildarleysi af bílastæði þjónustuverkstæðis Bílabúðar Benna við Tangarhöfða í Reykjavík.
Ökumaður sem valdið hafði umferðaróhappi í Árbæ var handtekinn þegar hann reyndi að koma sér af vettvangi.
Nokkrir Bandaríkjamenn sem búa hér á Íslandi hafa skipulagt samstöðufund við mótmælendur í bandaríkjunum á miðvikudaginn.
„Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR.
Styttur opnunartími skemmtistaða virðist ekki skila tilætluðum árangri.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í gær eftir tuttugu og fimm ára gamalli konu en hún er nú fundin heil á húfi.
Tveir árekstrar urðu í Reykjavík á ellefta tímanum í kvöld, í Grafarvogi var Strætó viðriðinn en í Safamýri lauk eftirför lögreglu.
Listasafn Reykjavíkur hefur nú um Hvítasunnuhelgina boðið upp á barnamenningarhátíð. Sýndingin varpaði ljósi á rannsóknarvinnu þáttökuskóla í listrænu ákalli til náttúrunnar.
„Hún hló að mér og sagði að það væri sko „allt opið.“ Ég útskýrði fyrir henni af hverju það væri ekki lokað en það væru skilti út um allt. Hún hló aftur að mér og sagði að hún mætti keyra þarna því það væri allt opið.“
Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglunnar frá fimm í gær til fimm í morgun og ellefu aðilar voru vistaðir í fangageymslu.
Húsráðandi gaf lögreglumanni hnefahögg í andlitið þegar lögregla sinnti útkalli vegna gruns um heimilisofbeldi.
Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að tryggja foreldrum barna sem sækja sjálfstætt starfandi leikskóla samskonar afslátt og gefinn var öðrum leikskólum vegna þjónustuskerðingar sem faraldurinn hafði í för með sér.
Kveikt var á svokölluðum rauntímaupplýsingastrætóskýlum í dag
Ingi Garðar Erlendsson hefur verið ráðinn stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðborgar og Björg Brjánsdóttir hefur verið ráðin stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar.
Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu.
Neyðarlínan hefur ekki verið sett á sakabekk af mér né borginni. Aðeins hefur verið óskað eftir svörum og skýrum merkjum um að atvikið sé tekið alvarlega og staðfestingu á að ekki sé um kerfisbundið vandamál að ræða heldur einstaka atvik,“ segir borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir um kröfu Neyðarlínunnar um afsökunarbeiðni
Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitunnar, er látinn, 76 ára að aldri.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, segir Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, hafa ýjað að því að fjölgun göngugatna í Reykjavík í sumar gæti valdið því að viðbragðstími lögreglu, sjúkraflutningamanna og slökkviliðs lengdist ef kæmi til eldsvoða, manntjóns eða vopnaðra rána.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálfátta í kvöld vegna elds á svölum á þriðju hæð í fjölbýli við Skúlagötu í Reykjavík.
Skipulags- og samgönguráð samþykkti í dag að að bæta við tímabundnum göngugötum frá 5. júní til 1. október 2020.
Kerfið á að vera hannað fyrir fólk. Þessi setning er mikilvæg áminning fyrir okkur sem störfum í stjórnmálum.
Búið er að setja upp sérstök skilti til að minna vegfarendur á göngugötur í miðborginni en hluti Laugavegar, Skólavörðustígs og Vegamótastígs er nú orðinn að varanlegum göngugötum.