Króatar Dags lentu í kröppum dansi í fyrsta leik á EM Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 18:38 Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu Vísir/getty Lærisveinar Dags Sigurðssonar í landsliði Króatíu lentu í basli í fyrsta leik sínum á EM í handbolta gegn Georgíu í E-riðli í kvöld en sigldu að lokum heim mikilvægum þriggja marka sigri, lokatölur 32-29.
Georgía ekki hátt skrifað lið á yfirstandandi Evrópumóti á meðan að Króatar unnu til silfurverðlauna á síðasta heimsmeistaramóti fyrir ári síðan og bjuggust flestir við öruggum sigri þeirra í kvöld. Það var hins vegar ekki í raunin og Georgíumenn, sem töpuðu í tvígang fyrir íslenska landsliðinu í undankeppni EM, létu heldur betur finna fyrir sér í kvöld. Georgía byrjaði leikinn af krafti og þegar að fyrri hálfleikur var rétt rúmlega hálfnaður leiddu þeir með sex mörkum. Króatar náðu hins vegar að brúa bilið og komast yfir fyrir lok hálfleiksins en á þeim tímapunkti leiddu þeir með einu marki 15-14. Króatar héldu forystunni fyrstu mínútur seinni hálfleiksins en svo sigu Georgíumenn aftur fram úr. Þegar að rétt innan við tíu mínútur eftir lifðu leiks stóðu leikar hins vegar jafnir 26-26 og voru lokamínúturnar æsispennandi. Það býr hins vegar seigla í leikmönnum Dags og þeir reyndust sterkari á lokametrunum og fór svo að Króatía fór með þriggja marka sigur af hólmi, 32-29 og byrjar EM á sigri. Mario Šoštarić var markahæstur í liði Króata í kvöld með sjö mörk. Þá skoraði Luka Cindric sex mörk. Króatar mæta Hollandi í næstu umferð á mánudaginn kemur. Hollendingar mæta Svíum seinna í kvöld í fyrsta leik liðanna á mótinu. Evrópumeistararnir í fluggír Í C-riðli halda ríkjandi Evrópumeistarar Frakka áfram að valta yfir andstæðinga sína. Frakkar völtuðu yfir landslið Úkraínu, 46-26 og eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar og öruggir áfram í milliriðla. Markaskorunin dreifðist ansi jafnt í liði Evrópumeistaranna en þeir Benoit Kounkoud og Dylan Nahi voru markahæsti í liði þeirra með sex mörk hvor. Seinna í kvöld mætast Tékkar og Norðmenn í sama riðli en með sigri tryggja Norðmenn sig áfram í milliriðla og setja upp úrslitaleik við Frakka um toppsæti riðilsins í lokaumfrðinni. Spánverjar í góðum málum Og í A-riðli Alfreðs Gíslasonar og þýska landsliðsins höfðu Spánverjar betur gegn Austurríkismönnum og tryggðu sig þar með áfram í milliriðla. Lokatölur 30-25, fimm marka sigur Spánverja sem mæta Þjóðverjum í lokaumferðinni í leik sem gæti orðið úrslitaleikur um toppsæti riðilsins takist Þjóðverjum að vinna Serba í kvöld.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira