Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar 12. júlí 2025 09:01 Í áratugi hefur flugnám á Íslandi hvílt á herðum áhugasamra einstaklinga og án aðstoðar frá yfirvöldum að mestu leyti. Það hefur oft borið á því að yfirvöld setji frekar stein í götu flugnámsins með hækkandi gjöldum, skattlagningu, íþyngjandi reglugerðum og takmörkunum alls konar á flugvöllum frekar en að ýta undir það og búa flugnemum betra umhverfi til að læra flug í sínu heimalandi. Skilning og þekkingu skortir oft á málaflokknum innan stjórnkerfisins og þeim embættum sem hafa flugið á sinni könnu og almannaflugið (General aviation) og flugnámið sett undir sama hatt og stór áætlunarflugfélög þegar kemur að rekstrarkostnaði og viðhaldi. Það er í raun og veru alveg furðulegt að sjaldnast virðist leitað til þeirra sem til þekkja varðandi innleiðingu reglugerða og laga þegar haft er í huga að þjóðin býr á afskekktri eyju og að flugið er lífæð þjóðarinnar við umheiminn. Þetta er nefnilega alls ekki sjálfsagt mál, heldur þarf að búa almannafluginu sérstaklega betra umhverfi og styðja við það að öllu leyti þar til ástandið verður orðið ásættanlegt. Almannaflugið er stundum kallað "grasrótin" og eins og nafnið gefur til kynna er hún grunnstoð alls flugs á Íslandi. „Grasrótin“ Allir flugmenn byrja á að læra flug í grasrótinni og fljúga svo sína fyrstu tíma þar til að öðlast reynslu. Flugkennsla á flugvél má byrja 16 ára þar sem fyrstu réttindi eru ekki veitt fyrr en 17 ára. Einkaflug, fisflug, svifflug(má byrja 13 ára), listflug, þyrluflug, mótorsvifflug, svifvængjaflug, mótordrekar, fallhlífastökk, svifdrekaflug, fjarstýrðar flugvélar, drónakappflug, heimasmíðaðar flugvélar og atvinnuflugmannsnám(má byrja 18 ára)...er allt hluti af grasrótinni. Grasrót flugsins á Íslandi - Grunnstoð fyrir flugfélögin og þróun þeirra Kostir Íslands fyrir hagkvæmt flugnám Ísland er einstakt land til flugnáms. Stuttar vegalengdir í flugskólana fyrir nemendur til og frá flugvöllum Reykjavíkur og Akureyrar sem lækkar kostnað við námið, stutt flug frá velli í æfingasvæði og til snertilendinga og ægifagurt landslag hvert sem litið er. Nú er reyndar æfingasvæði flugkennslunar í Reykjavík og svifflugkennslu á Sandskeiði ógnað vegna fyrirhugaðra vindmylla á Mosfellsheiði. Fyrsta sóló sumarsins hjá Svifflugfélagi Íslands þegar Alexander Tryggvi Hjartarson flaug sitt fyrsta sóló á svifflugu. Friðjón Bjarnason Baldur Jónsson aldursforseti félagsins afhenti honum A-prófs merkið. Friðjón Bjarnason Flugnám á flugvél krefst þeirra skilyrða að það sé framkvæmt við stjórnaða flugvelli með flugturni og flugumferðarstjórn enda er sá þáttur í fjarskiptum mikilvægur í þjálfun flugmanna auk þess að venjast því að þekkja og kunna vel á merkingar, ljósabúnað, umferðarreglur og flug með annarri flugumferð. Á flugvél má byrja 16 ára að læra flug. Fyrsta skrefið er Soloprófið svokallaða (Einflugsleyfi) og gerir flugnemum kleift að fljúga einir án þess að mega fljúga með farþega. Næsta skref er einkaflugmannsprófið sem veitir þeim réttindi 17 ára til að fljúga á einshreyfils flugvél með farþega án endurgjalds. Eftir það koma næturáritun(NIT), fjölhreyflaáritun(MEP), blindflugsáritun(IR), atvinnuflugmannsréttindin(CPL) og flugkennararéttindi(FI) fyrir þá sem stefna á þau. Flugnám á Reykjavíkurflugvelli.Jón Björgvin Jónsson Ef flugnemar fá ekki það umhverfi sem til þarf til að öðlast flugréttindi á hagkvæman hátt verður skortur á flugmönnum í landinu og íslensku flugfélögin fá þá ekki þá flugmenn sem þau þurfa á að halda. Það yrði alvarlegt mál og augljóst að á næstu árum muni vanta flugmenn um allan heim og ef við styðjum ekki Íslendinga til flugnáms á Íslandi missum við þá til erlendra flugskóla sem margir eru með samninga við erlend flugfélög um að sjá þeim fyrir nýjum flugmönnum. Höfundur er flugkennari, skólastjóri flugskóla og starfandi flugstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fréttir af flugi Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 12.07.25 Halldór Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar