Innlent

Rann­saka „al­var­legt at­vik“ á Edition

Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Agnar Már Másson skrifa
Lögreglumaður situr fyrir utan herbergi á 4. hæð á Edition-hóteli í miðbæ Reykjavíkur, þar sem „alvarlegt atvik“ átti sér stað að sögn lögreglu.
Lögreglumaður situr fyrir utan herbergi á 4. hæð á Edition-hóteli í miðbæ Reykjavíkur, þar sem „alvarlegt atvik“ átti sér stað að sögn lögreglu. Vísir/KTD

Lögreglan og sérsveit voru kölluð út á Edition-hótel í miðbæ Reykjavíkur í morgun vegna „alvarlegs atviks“ að sögn lögreglu. Aðgerðir standa enn yfir á fjórðu hæð hótelsins. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi í morgun frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kom að lögregla hefði verið kölluð að hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun vegna „alvarlegs atviks“. 

Sérsveitramenn voru kallaðir út til að aðstoða við lögregluaðgerðir, staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. Starfsmaður Edition staðfesti einnig í samtali við Vísi á ellefta tímanum að lögregluaðgerð stæði þar yfir.

Frá Edition í dag.Vísir/KTD

Fjórir sjúkraflutnignabílar og dælubíll voru kallaðir til að hótelinu á áttunda tímanum í morgun, að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, sem kvaðst ekki getað sagt meira um málið og vísaði á lögreglu þegar fréttastofa hafði samband.

Heimir Ríkharðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að hann geti ekki gefið upp frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Þá vildi hann ekki tjáð sig um hvort einhvern hafi sakað.

Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins væri á algjöru frumstigi. Frekari upplýsingar verði sendar fjölmiðlum í dag, eða eftir því sem málinu vindur fram.

Af vettvangi við Edition-hótel í dag.Vísir/KTD

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×