Viðskipti innlent

Embla Medi­cal hlaut út­flutnings­verðlaun for­setans og Ragnar Kjartans heiðraður

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sveinn Sölvason, forstjóri Embla Medical, tók við verðlaununum í dag. Börkur Arnarson tók við verðlaununum fyrir hönd Kjartans.
Sveinn Sölvason, forstjóri Embla Medical, tók við verðlaununum í dag. Börkur Arnarson tók við verðlaununum fyrir hönd Kjartans. Baldur Kristjáns og aðsend

Fyrirtækið Embla Medical hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2025. Sveinn Sölvason, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samhliða var Ragnar Kjartansson heiðraður fyrir störf sín á alþjóðavettvangi. Vegna fjarveru Ragnars tók Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerí, við verðlaununum fyrir hans hönd.

Í tilkynningu um verðlaunin segir að Embla Medical sé leiðandi alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja og móðurfélag Össurar. Félagið hafi verið stofnað með það að markmiði að styðja við frekari vöxt, enda hafi það haslað sér völl á fleiri sviðum heilbrigðistækni á undanförnum árum. Kjarninn sé sem fyrr lausnir og þjónusta fyrir fólk með hreyfanleikaáskoranir.

Sveinn Sölvason forstjóri Embla Medical tók við verðlaununum Íslandsstofa

Upphaf fyrirtækisins megi rekja til ársins 1971, þegar Össur Kristinsson stoðtækjafræðingur stofnaði stoðtækjaverkstæði á Íslandi. Fyrsta varan var sílikonhulsa sem vakti strax athygli á erlendum mörkuðum og lagði grunninn að að þeirri alþjóðlegu vegferð sem félagið hefur verið á síðan.

Starfar í 40

Í dag starfar Embla Medical í 40 löndum með um 4.500 starfsmenn, þar af 700 manns í höfuðstöðvunum í Reykjavík.

Á meðal helstu áfanga í sögu félagsins megi nefna skráningu á markað árið 1999, umfangsmikla alþjóðlega stækkun með kaupum á erlendum fyrirtækjum, og þróun hátæknilausna sem hlotið hafa fjölda alþjóðlegra verðlauna.

Í tilkynningunni segir að rannsóknir og vöruþróun hafi ávallt verið í forgrunni. Félagið eigi nú yfir 2.100 skráð einkaleyfi, fleiri en nokkuð annað íslenskt fyrirtæki á sviði lífvísinda.

Sjá einnig: Össur stofnar móður­fé­lagið Embla Medi­cal

Þá hafi tekjur félagsins meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum, úr 58,5 milljörðum króna árið 2014 í 118 milljarða árið 2024. Meirihluti tekna kemur frá Bandaríkjunum og Evrópu og vaxandi hluti frá Asíumörkuðum.

„Þessi mikli vöxtur byggir á stöðugum fjárfestingum í rannsóknum og þróun, þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru í forgrunni. Embla Medical hefur einsett sér að bæta lífsgæði fólks með sérhæfðum heilbrigðislausnum og tryggu aðgengi að hágæða þjónustu um allan heim,“ segir í tilkynningunni og að verðlaunin séu viðurkenning á þeirri alþjóðlegu sókn og framsýni sem hafi einkennt starfsemi félagsins í meira en hálfa öld.

Ragnar færist áreynslulaust á milli miðla

Við sama tilefni var afhent heiðursviðurkenning, sem árlega er veitt einstaklingi sem þykir með starfi sínu og verkum hafa borið hróður Íslands víða um heim. Eins og kom fram að ofan hlaut listamaðurinn Ragnar Kjartansson viðurkenninguna í ár.

Ragnar Kjartansson fæddist árið 1976 í Reykjavík, þar sem hann býr og starfar. Hann nam myndlist við Listaháskóla Íslands og vakti snemma athygli – bæði fyrir myndlist sína og sem meðlimur í hljómsveitinni Trabant, þar sem hann sameinaði tónlist, sviðslistir og sjónræna tjáningu á sinn einstaka hátt.

Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerí, Guðrún Ásmundsdóttir,Kjartan Ragnarsson, foreldrar Ragnars Kjartanssonar með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Íslandsstofa

Í tilkynningu segir um Ragnar:

„Ragnar ólst upp í leikhúsumhverfi - foreldrar hans eru leikkonan og leikstjórinn Guðrún Ásmundsdóttir og leikarinn og leikstjórinn Kjartan Ragnarsson. Þessi arfur hefur mótað list hans. Hann beitir leikrænum aðferðum og sviðsetningu og færist áreynslulaust á milli miðla í verkum sínum: tónlist verður að höggmynd, málverk að gjörningi og kvikmynd að uppstillingu. Í verkum hans mætast gáski og harmur, einlægni og íronía - í tilraun til að fanga marglaga tilfinningar og félagslegar spurningar samtímans.

Ragnar vakti fyrst alþjóðlega athygli á Feneyjartvíæringnum árið 2009, þar sem hann sýndi fyrir hönd Íslands. Síðan þá hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars Performa Malcolm McLaren árið 2011 og Ars Fennica árið 2019. Verk hans hafa verið sýnd í virtustu listasöfnum heims, svo sem Metropolitan Museum of Art, Barbican Centre og Louisiana Museum of Modern Art, auk þess sem þau eru í eigu margra helstu safna bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, þar á meðal Museum of Modern Art og Guggenheim í New York.

Hér heima hefur hann haldið stórar sýningar í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands, og átt farsælt samstarf við i8 gallerí í meira en tvo áratugi - sem hefur kynnt og selt verk hans á alþjóðlegum vettvangi.

Ragnar Kjartansson hefur ekki aðeins sett íslenska samtímalist á kortið heldur haft djúpstæð áhrif á þróun hennar. Verk hans leika sér með klisjur, fegurð og tilfinningar, takast á við flókin málefni með næmni og leikgleði – og halda áhorfendum sífellt á tánum. Með frumleika og djörfung hefur hann opnað dyr fyrir íslenska list á heimsvísu, fært nýjar hugmyndir inn í hinn alþjóðlega listheim og hvatt nýjar og komandi kynslóðir listamanna til dáða.“

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerí og Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu.Íslandsstofa

Verðlaunahafar fá verðlaunagrip

Útflutningsverðlaunin eru nú veitt í 37. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Íslensk erfðagreining, Trefjar, Icelandair, Bláa lónið og Marel og á síðasta ári hlaut líftæknifyritækið Kerecis verðlaunin.

Verðlaunahafinn fær til eignar verðlaunagrip, listaverk, eftir íslenskan listamann auk þess sem verðlaunahafinn getur notað merki verðlaunanna á kynningarefni sitt næstu fimm ár frá afhendingu þeirra.

Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Magnús Þór Torfason, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Hildur Árnadóttir frá Íslandsstofu en Íslandsstofa ber ábyrgð á kostnaði og framkvæmd við verðlaunaveitinguna.


Tengdar fréttir

„Ég er mjög stolt af því að vera íslensk“

„Ég er mjög stolt af því að vera íslensk,“ sagði tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir þegar henni var veitt heiðursviðurkenning forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Hún hefur farið sigurför um heiminn undanfarið og fékk viðurkenninguna fyrir að bera hróður Íslands víða um heim með tónlist sinni. 

Kerecis hlýtur Út­flutnings­verð­launin og Lauf­ey heiðruð

Líftæknifyrirtækið Kerecis hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2024. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samhliða var Laufey Lín Jónsdóttir heiðruð fyrir störf sín á alþjóðavettvangi.

For­setinn heiðraði Hönnu Birnu

Útflutningsverðlaun forseta Íslands voru veitt í 35. skipti við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Fyrirtækið Gangverk hlaut verðlaunin að þessu sinni. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fékk heiðursviðurkenningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×