Upp­gjörið: Höttur - Tinda­stóll 85-97 | Tinda­stóll eltir Stjörnuna á­fram á toppnum eftir sigur á Egils­stöðum

Gunnar Gunnarsson skrifar
Tindastóll vann góðan sigur á Egilsstöðum.
Tindastóll vann góðan sigur á Egilsstöðum. vísir/anton

Tindastóll er áfram tveimur stigum á eftir Stjörnunni í úrvalsdeild karla í körfuknatteik eftir leiki kvöldsins. Tindastóll vann nokkuð þægilegan sigur á Hetti á Egilsstöðum í kvöld með fínum leik í seinni hálfleik. Staða Hattar í fallbarátunni er farinn að verða svört.

Höttur fór betur af stað, í fyrsta leikhluta gekk sóknarleikur liðsins vel. Leikmenn virtust klárir í að hlaupa kerfin og fengu góð skot. Tindastóll náði þó að saxa á í restina og áttu síðustu körfuna sem minnkaði muninn í 26-23.

Höttur hitti vel í fyrsta leikhluta, 55% á móti 35% Tindastóls. Nýting Tindastóls batnaði í öðrum leikhluta og þá kom áhlaupið. Eftir um fjögurra mínútu komst liðið í fyrsta sinn yfir síðan í upphafi þegar Adomas Drungilas setti niður þriggja stiga körfu. Tindastóll náði síðan átta siga forskoti en Hetti tókst að stoppa skriðið þar og saxa síðan á það, niður í 48-51 fyrir hálfleik.

Refsiglaðir Tindastólsmenn

Hattarmenn oft klaufar í sóknarleiknum í kvöld, aldrei þó meir en í byrjun þriðja leikhluta. Þeir töpuðu boltanum fyrstu þrjár sóknirnar og var refsað jafn oft. Tindastóll komst fljótt í ríflega tíu stiga forskot og hélt því nokkuð þægilega. Ekki mætti úr skák þegar Justin Roberts, Bandaríkjamaðurinn í liði Hattar, rann og snéri sig. Hann hvíldi út leikhlutann.

Bæði lið stilltu upp aðeins óhefðbundnari liðum í leikhlutanum, það er hvíldu stóru mennina. Höttur notaði Nemanja Knezevic nær ekkert í seinni hálfleik og það sama mátti segja um Drungilas hjá Tindastóli. Í staðinn keyrðu þau ágætlega hraðan sóknarleik og skutu duglega. Stólarnir hittu vel og fóru með 15 stiga forskot inn í síðasta leikhlutann, 65-80.

Tindastóll stóðst áhlaupið

Höttur opnaði leikinn með 10-0 áhlaupi í byrjun fjórða leikhluta og kom stöðunni í 75-80. Benedikt Guðmundsson brást við með að taka leikhlé. Leikmenn hans svöruðu vel, settu niður tvær þriggja stiga körfur í röð og komust aftur í 11 stiga forustu.

Höttur reyndi að taka leikhlé, hrista upp í leiknum og gera áhlaup en Tindastóll hélt sínu forskoti. Höttur náði aldrei stoppum sem hefðu gert þeim að minnka muninn. Tindastóll fór því heim með 85-97 sigur.

Giannis Agravanis var stigahæstur hjá Tindastóli í leiknum með 27 stig. Obie Trotter skoraði 24 fyrir Hött. Báðir settu niður fimm þriggja stiga körfur.

Hvað skildi á milli?

Tapaðir boltar. Höttur var með 16 tapaða bolta en Tindastóll 7. Það sem skildi líka á milli var að Tindastóll virtist refsa í hvert einasta skipti sem Höttur gerði slík mistök. Tindastólsmenn voru fljótir fram þegar þeir unnu boltann og fengu körfur sem virtust einfaldar, en trúlega fyrst og fremst vel undirbúnar.

Hvað gekk vel?

Það sem Tindastóll gerði hvað best var að nýta takmarkaðan tíma til að búa stig. Nokkrum sinnum hafði liðið ekki nema um fimm sekúndur, annað hvort var skotklukkan að renna út eða leiktíminn. Þá var stillt upp í hratt kerfi sem oftar en ekki gekk upp. Stundum var smá heppni með en hún fylgir oft þegar færni og áræðni eru fyrir hendi.

Atvik leiksins

Gott dæmi um þetta var glæsileg flautukarfa frá Giannis í þriðja leikhluta. Það voru um fjórar sekúndur eftir, Tindastóll átti innkast undir eigin körfu. Boltinn gekk hratt út til hægri á Ginnis sem var langt fyrir utan línuna, hann stökk upp og skaut. Ljósið kviknaði þegar boltinn lenti í spjaldinu áður en hann datt ofan í.

Hvað þýða úrslitin?

Tap Njarðvíkur fyrir Val í kvöld þýðir að Tindastóll hefur orðið fjögurra stiga forskot í þá áttina. Stjarnan er tveimur stigum á undan Stólunum svo þau virðast vera að stinga af á toppnum. Sigur Álftaness á ÍR setti Hött í mjög vonda stöðu í fallbaráttunni, liðið er núna sex stigum frá því að koma sér upp úr fallsæti þegar sex umferðir eru eftir.

Benedikt: Ber mikla virðingu fyrir þessum stigum

Benedikt Guðmundsson er þjálfari Tindastóls.Vísir/Anton Brink

Frábær frammistaða í bæði sókn og vörn seinni hálfleik tryggði Tindastóli 85-97 sigur á Hetti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Egilsstöðum í kvöld. Tindastóll var þremur stigum yfir í hálfleik en skoraði fyrstu sex stigin í þriðja leikhluta og var lengst af með nokkuð þægilegt ríflega tíu stiga forskot eftir það.

„Ég var sérstaklega ánægður með byrjunina á seinni hálfleik sem og þriðja leikhlutann þar sem við náum þessum varnarstoppum sem við vorum að leita eftir. Við náðum ekki að tengja stoppin eins í fyrri hálfleik en það var allt annað í þeim seinni þannig Höttur skoraði töluvert í honum,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Tindastóls eftir leikinn.

Höttur skoraði fyrstu tíu stigin í fjórða leikhluta og minnkaði muninn í fimm stig. Benedikt tók þá leikhlé sem skilaði því að Tindastóll skoraði tvær þriggja stiga körfur í röð og náði aftur ríflega 10 stiga forskoti.

„Við vorum með 15 stiga forskot eftir þriðja leikhluta en það er komið niður í fimm stig eftir tvær mínútur sem sýnir að það má ekkert líta af Hattarliðinu, það hættir ekki heldur refsað. Ég vildi sjá að menn væru aðeins einbeittari en sem betur fer náðum við að snúa þessu við. Þessi tveir þristar komu okkur aftur í bílstjórasætið. Annars var stemmingin með Hattarmönnum og þetta hefði getað farið hvernig sem er.

Ég er virkilega ánægður með þessi tvö stig. Við vorum að spila við lið sem berst fyrir lífi sínu í deildinni á útivelli sem hefur reynst mörgum liðum erfiður. Ég ber mikla virðingu fyrir Hattarliðinu og þessum stigum.“

Stórkostlegur seinni hálfleikur Giannis

Eitt af því sem gladdi Benedikt í kvöld var þriggja stiga flautukarfa Giannis Agravanis í lok þriðja leikhluta. Hún var nánast frá miðju. Giannis var stigahæstur Tindastóls í kvöld með 27 stig. „Hann var frábær í seinni hálfleik. Hann spilaði frábæra vörn, sérstaklega í þriðja leikhluta og var með 25 stig í seinni hálfleik eftir að hafa strögglað og aðeins skorað 2 stig í fyrri hálfleik. Þessi flautukarfa endurspeglaði hans frammistöðu í seinni hálfleik.“

Stutt er í að félagaskiptaglugginn loki og fréttir hafa borist af því að Tindastóll sé að landa reynslumiklum manni úr Evrópuboltanum. „Það skýrist bara rétt áður en glugginn lokar. Það er möguleiki sem datt upp í hendurnar á okkur og við erum að sjá hvort gangi eftir. Ef hann gerir það þá er það flott, annars áfram gakk.“

Tindastóll á síðan toppleik við Stjörnuna í Garðabæ á sunnudag. „Vonandi komumst við heim í kvöld fyrir veðri, síðan er það endurheimt og undirbúningur fyrir Stjörnuna þannig við getum ekki fagnað neitt mikið.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira