Mál Alberts Guðmundssonar
Má spila þrátt fyrir áfrýjun Áfrýjun Ríkissaksóknara á sýknu Alberts Guðmundssonar kemur ekki í veg fyrir að hann leiki fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu. Nýleg breyting á viðbragðsáætlun KSÍ tekur af allan vafa um það. Hann er þó meiddur á læri og því ljóst að hann muni ekki taka þátt í næsta landsleikjaglugga. Fótbolti 1.11.2024 16:26
Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Ríkissaksóknari segist telja verulegar líkur á að sýknu Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns í nauðgunarmáli verði snúið í sakfellingu í Landsrétti. Innlent 1.11.2024 14:55
Dómi í máli Alberts áfrýjað Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja dómi í máli Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns. Hann var fyrir þremur vikum sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Innlent 1.11.2024 13:59
Miður að misbrestur hafi orðið í þjónustu neyðarmóttökunnar Anne María Steinþórsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, segir ljóst að misbrestur hafi orðið á þjónustu neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrota í júní síðasta sumar þegar kona leitaði þangað vegna kynferðislegs ofbeldis. Hún segir það miður. Innlent 11.10.2024 14:31
Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Albert Guðmundsson var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun en dómari málsins mat framburð hans trúverðugari en framburð konunnar sem kærði hann. Þá er hún sögð hafa verið margsaga í framburði sínum. Innlent 10.10.2024 20:12
Möguleiki á að Albert komi til móts við landsliðið: „Verðum bara að bíða og sjá“ Möguleiki er á því að Albert Guðmundsson komi til móts við íslenska landsliðið í yfirstandandi landsliðsverkefni. Þetta segir Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands. Fótbolti 10.10.2024 18:47
Efast um að málinu verði áfrýjað Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar, segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um sýkna Albert af ákæru um nauðgun vera lögfræðilega rétta niðurstöðu. Innlent 10.10.2024 14:15
Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótboltamaðurinn Albert Guðmundsson hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að hann var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun. Honum er létt eftir erfitt ár, og kveðst afar þakklátur fjölskyldu og vinum. Fótbolti 10.10.2024 14:02
Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga „Þessi niðurstaða auðvitað lítur að sakamáli og hvort ströng skilyrði séu uppfyllt til þess að dæma mann til fangelsisrefsingar, og breytir í rauninni engu um upplifun brotaþola af þessu kvöldi eða af samskiptum við ákærða,“ segir Eva B. Helgadóttir, réttargæslumaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson. Innlent 10.10.2024 13:54
Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide svaraði því ekki hvort reynt yrði að freista þess að fá Albert Guðmundsson inn í landsliðshópinn sem mætir Wales á morgun og Tyrklandi á mánudag, í Þjóðadeildinni í fótbolta. Fótbolti 10.10.2024 13:28
Åge ræður hvort kallað verði í Albert Eftir að landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun er það í höndum landsliðsþjálfarans Åge Hareide að ákveða hvort hann taki þátt í leikjunum við Wales og Tyrkland, í Þjóðadeildinni. Fótbolti 10.10.2024 13:08
Albert sýknaður Albert Guðmundsson knattspyrnumaður var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun. Hann var ákærður fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir klukkan eitt í dag. Innlent 10.10.2024 12:02
Stjarnan Villi vekur athygli Ítala Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Ítalskur samfélagsmiðlanotandi sýnir Vilhjálmi mikinn áhuga og fer um víðan völl í umfjöllun sinni um stjörnulögmanninn. Lífið 14.9.2024 11:49
Fiorentina þarf ekki að kaupa Albert verði hann dæmdur Albert Guðmundsson var lánaður frá Genoa til Fiorentina í sumar en í samningi félaganna er ákvæði sem þýðir að Fiorentina þarf að kaupa leikmanninn að tímabilinu loknu. Sú klásúla fellur úr gildi verði Albert dæmdur fyrir kynferðisbrot. Fótbolti 13.9.2024 22:45
Albert mættur í dómsal Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur, þar sem aðalmeðferð í máli hans fer fram í dag og á morgun. Hann sætir ákæru fyrir nauðgun. Innlent 12.9.2024 09:30
Albert mætir fyrir dóm á fimmtudag Aðalmeðferð í máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag og föstudag. Albert kemur til landsins og mun gefa skýrslu fyrir dómi. Innlent 10.9.2024 13:25
Ákærður fyrir nauðgun Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Innlent 9.7.2024 16:14
Albert neitaði sök Ákæra á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot var þingfest í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Albert mætti ekki við þingfestinguna en samkvæmt heimildum Vísis neitaði verjandi hans sök fyrir hans hönd. Innlent 3.7.2024 12:55
Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Ákæra hefur verið gefin út á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot. Innlent 2.7.2024 10:21
Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Ríkissaksóknari hefur fellt ákvörðun héraðssaksóknara í máli Alberts Guðmundssonar, leikmanns Genóa í knattspyrnu, úr gildi og lagt fyrir héraðssaksóknara að höfða sakamál á hendur honum. Hann verður því ákærður fyrir kynferðisbrot. Innlent 24.5.2024 16:27
Mál Alberts sýni að skýra þurfi reglurnar Horft var til eldra fordæmis þegar tekin var ákvörðun um að ekki væri heimilt að velja Albert Guðmundsson, leikmann Genóa í knattspyrnu, í næsta landsliðverkefni. Ríkissaksóknari á eftir að taka endanlega ákvörðun í máli hans. Ekki er deilt um túlkun reglna innan stjórnar en ljóst er að skýra verði reglurnar. Innlent 23.5.2024 19:22
„Reglurnar hjá KSÍ eru skýrar“ Åge Hareide kynnti í morgun landsliðshóp Íslands sem mætir Englandi föstudaginn 7. júní á Wembley og Hollandi mánudaginn 10. júní á De Kuip. Albert Guðmundsson er ekki í hópnum og Hareide staðfestir að hann hafi ekki haft heimild til að velja Albert. Fótbolti 22.5.2024 11:43
Íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu máls Alberts Kona sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir nauðgun íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á málinu. Hún hefur tíu daga til að ákveða sig. Degi áður en kærufrestur rennur út leikur karlalandsliðið í knattspyrnu við það ísraelska í umspili um sæti á EM 2024. Innlent 12.3.2024 15:12
Unga konan sem kærði Albert muni eyða ævinni í að vinna úr málinu Lögmaður konunnar sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot skoðar nú hvort kæra skuli ákvörðun héraðssaksóknara um að láta málið niður falla til ríkissaksóknara. Málið hafi verið afar erfitt fyrir ungu konuna, sem muni eyða ævinni í að vinna úr því. Innlent 24.2.2024 15:30
Mál Alberts látið niður falla Héraðssaksóknari hefur fellt niður kynferðisbrotamál gegn knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni. Síðasta sumar var hann kærður fyrir kynferðisbrot. Innlent 24.2.2024 13:18
Mál Alberts komið til héraðssaksóknara Héraðssaksóknari tekur ákvörðun hvort knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson verði ákærður fyrir kynferðisbrot. Málið er komið á borð héraðssaksóknara að lokinni rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.12.2023 10:26
Mál Alberts komið til ákærusviðs Rannsókn á máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar er lokið og það er komið á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19.9.2023 11:55
Albert segist saklaus af ásökunum um kynferðisbrot Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson hefur hafnað ásökunum um kynferðisbrot. Hann hefur verið kærður og fær ekki að koma fram fyrir Íslands hönd á meðan. Innlent 24.8.2023 09:21
Albert sagður neita sök Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segist saklaus af meintu kynferðisbroti sem hann hefur verið kærður fyrir. Forsvarsmenn liðsins ætla að standa með honum. Innlent 23.8.2023 21:07
Albert Guðmundsson kærður fyrir kynferðisbrot Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Knattspyrnusambandi Íslands barst staðfesting á kærunni í morgun. Hann fær ekki að koma fram fyrir hönd Íslands á meðan málið er rannsakað. Innlent 23.8.2023 15:26