
Heilsugæsla

Árinni kennir illur ræðari
Heilsugæslan og mönnun hennar hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið. Meðal annars eru mál heimilislækna á Akureyri áberandi. Björn Valur Gíslason fyrrverandi varaformaður Vinstrihreyfingarinnar Græns Framboðs (VG) ritar grein á akureyri.net í síðustu viku og talar þar meðal annars um einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.

Læknar í Kópavogi fá ekki að sinna sjúklingum fyrir norðan
Tveimur læknum með starfstöðvar í Kópavogi verður ekki leyft að mæta til Akureyrar inn á milli og sinna sjúklingum sínum þar. Forstjóri Heilsuverndar segir að þarna sé verið að mismuna sjúklingum eftir búsetu.

Ákveðnir árgangar hvorki bólusettir við mislingum né hettusótt
Nýlega hafa greinst á Íslandi bæði mislingar og hettusótt. Sama bóluefni er notað við þessum sjúkdómum en fólk fætt á bilinu 1975 til 1987 er margt ekki fullbólusett. Bóluefni standa fólki til boða en þó ekki nema það hafi verið útsett eða á leið til útlanda.

Yfirmenn segi ljósmæður hitta konur of oft og of lengi
Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir álag aukast, verkefnum fjölga og að allt að þriðjungur allra ljósmæðra á landinu íhugi nú að yfirgefa starfsstéttina. Ljósmæður fái ekki faglegt svigrúm til að vinna vinnuna sína og stjórnvöld taki málið ekki alvarlega.

Heilsugæslustöðin á Akureyri í nýtt húsnæði
Heilsugæslustöðin á Akureyri flytur og mun opna í nýju húsnæði mánudaginn 19. febrúar næstkomandi við Sunnuhlíð 12 á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fólk með mislinga beðið um að taka upp símann
Fólk sem telur mögulegt að þau eða börnin þeirra hafi smitast af mislingum eru beðin um að fara ekki á heilsugæslu eða sjúkrahús. Þess í stað eigi þau að hringja í 1700 eða hafa samband við heilbrigðisstarfsmenn í gegnum netið.

Kollsteypa með dropateljara á Akureyri
Í talsvert einfaldaðri mynd má segja að heilbrigðiskerfið íslenska eigi sér fjórar stoðir. Heilsugæsla, sjúkrahúsþjónusta, sérfræðiþjónusta og öldrunarþjónusta. Þrjár af þessum fjórum stoðum eiga undir verulegt högg að sækja á Akureyri og svar ríkisstjórnarinnar, ábyrgðaraðila kerfisins, virðist vera að fela einkafyrirtæki að leysa vandann.

Oftar veik síðustu tvö ár en áratuginn á undan
Heilsa landsmanna hefur farið versnandi síðustu tvö árin samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúls Gallup. Í nýjasta þjóðarpúlsi þeirra segir að Íslendingar hafi verið oftar veikir síðustu tvö ár en áratuginn þar á undan.

Löng bið eftir lækni og dæmi um að fólk fái ekki tíma
Dæmi eru um að ekki sé hægt að bóka tíma hjá lækni á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir skort á fagfólki hjá stofnuninni og mikið álag.

Aðeins helmingur íbúa með fastan heimilislækni þvert gegn stefnu stjórnvalda
Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld stefni að því að landsmenn séu með fastan skráðan heimilislækni á það aðeins við um helming íbúa á höfuðborgarasvæðinu. Ástæðan er skortur á heimilislæknum að sögn formanns félags þeirra. Það hafi áhrif á aðgengi og gæði þjónustunnar. Heilsugæslan sé í raun verr stödd en Landspítalinn.

Opið bréf til heilbrigðisráðherra
Áttu nokkuð heilsugæslu, láttu vita innan þriggja vikna?

Fækkun heilsugæslustöðva og hvar eru heimilislæknarnir?
Árið 2016 voru boðnar út þrjár nýjar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins tveir aðilar sóttu um og opnuðu tvær nýjar heilsugæslur árið 2017. Í október það ár voru 213.000 manns skráðir á 19 heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu.

Fræðadagur skerðir þjónustu heilsugæslunnar
Fræðadagur heilsugæslunnar fer fram í dag. Þar af leiðandi verður skert þjónusta hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, en öllum verkefnum sem hún telur brýn verður sinnt.

Gert að endurgreiða gjald vegna afhendingar sjúkraskrár
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið gert að endurgreiða manni 15.791 krónur eftir að hafa rukkað viðkomandi um upphæðina vegna afhendingar á sjúkraskrá hjá heilsugæslunni.

Helgi nýr framkvæmdastjóri sviðs fjármála og rekstrar hjá HH
Helgi Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hann taka til starfa bráðlega.

Heilbrigðisráðherra reddaði vatninu í Aratungu
Mikill kurr er á meðal íbúa í uppsveitum Árnessýslu, ekki síst í Bláskógabyggð verði niðurstaðan sú að loka eigi heilsugæslustöðinni í Laugarási og opna nýja stöð á Flúðum eða á öðrum þéttbýlisstöðum í uppsveitunum. Heilbrigðisráðherra mætt á fund með íbúum til að hlusta á þeirra sjónarmið.

Skerða þjónustu heilsugæslunnar vegna kvennaverkfalls
Reikna má með að starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði verulega skert þriðjudaginn 24. október næstkomandi vegna boðaðs kvennaverkfalls. Heilsugæslustöðvar verða opnar en munu eingöngu sinna bráðaerindum þennan dag.

Svona verður fyrirkomulag bólusetninga á höfuðborgarsvæðinu
Boðið verður upp á bólusetningar við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa á heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá miðvikudeginum 18. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilsugæslunni.

Sjötíu milljónir til að vinna með kvíða hjá börnum
Nýtt meðferðarúrræði á netinu gæti tryggt mun fleiri börnum og forráðamönnum þeirra um allt land árangursríka geðheilbrigðisþjónustu. Háskólinn í Reykjavík og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vinna saman að verkefninu sem heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt með 70 milljóna króna framlagi.

Læknar sinntu hálsbrotinni risaeðlu og fótbrotnum Sonic
Fjórar heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu, sem breytt hafði verið í bangsaspítala, önnuðu vart eftirspurn í dag þegar þangað streymdu misslasaðir bangsar og áhyggjufullir eigendur þeirra

Ótækt að börn bíði í tvö ár eftir nauðsynlegri þjónustu
Umboðsmaður barna segir of mörg börn á bið eftir nauðsynlegri þjónustu, og það of lengi. Áætlanir stjórnvalda um snemmtæka íhlutun geti ekki staðist ef ekki er úr bætt.

Sigríður Dóra nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára. Skipunin tekur gildi á föstudag.

Ráðning heilsugæsluforstjóra enn í ferli
Ráðning í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiðsins, sem auglýst var laust til umsóknar í maí, er enn í ferli.

Gervigreind komin til starfa hjá Heilsugæslunni
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur samið við heilsutæknifyrirtækið Dicino um áframhaldandi þróun gervigreindarverkfæris sem nýtist í netspjalli Heilsuveru. Gervigreindin spyr sjúkling út sjúkdómseinkenni og áhættuþætti og ritar sjálfvirka læknaskýrslu á íslensku.

Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem auglýst var laust til umsóknar í maí. Meðal þeirra eru Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, maður ársins 2021, og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga.

125 ára sunnlensk samstaða verði rofin með flutningi heilsugæslunnar
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur að hugmyndir sem uppi séu um flutning heilsugæslunnar í Laugarási í nágrannasveitarfélag geti skaðað samstarf sveitarfélaga í Uppsveitum Árnessýslu á öllum sviðum. Það sé miður ef til standi að rjúfa rúmlega aldarlanga samstöðu í Uppsveitum um heilsugæslu í Laugarási. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps segir augljóst að hentugra sé að heilsugæslan flytjist á Flúðir.

Gervigreind gæti sparað tíma og pening í heilsugæslunni
Ný rannsókn fjögurra íslenskra vísindamanna sýnir að gervigreind getur aðstoðað við að raða sjúklingum eftir einkennum. Einkenni margra ganga yfir af sjálfu sér án inngrips á heilsugæslu.

Embætti forstjóra Heilsugæslunnar laust til umsóknar
Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið auglýst laust til umsóknar af heilbrigðisráðuneytinu.

Heilsugæslustöðvar lokaðar um páskana en hægt að fá ráðgjöf í síma
Heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar yfir páskana, frá skírdegi og fram yfir annan í páskum. Þetta eru dagarnir 6. til 10. apríl.

Pistill um ristil
Í dag, 3. mars, er alþjóðlegur dagur krabbameina í ristli og endaþarmi og er dagurinn tileinkaður vitundarvakningu um þessi mein.