Spænski boltinn

„Geta unnið Meistaradeildina án Mbappe“
Fyrrum framkvæmdastjóri PSG segir að það sé kominn tími til að Kylian Mbappe yfirgefi félagið. Félagið telur að franska stórstjarnan sé búinn að ákveða að yfirgefa félagið frítt næsta sumar.

Spænska goðsögnin Luis Suárez látin
Spænska knattspyrnugoðsögnin Luis Suárez er látin. Hann var 88 ára gamall.

Blind sá nýja möguleika á Spáni
Hollendingurinn Daley Blind er genginn til liðs við spænska úrvalsdeildarliðið Girona en hann kemur til félagsins frá þýsku risunum Bayern Munchen.

„Tyrkneski Messi“ genginn í raðir Real Madrid
Hinn 18 ára gamli Arda Güler, sem stundum hefur verið nefndur „tyrkneski Messi,“ er genginn í raðir spænska stórveldisins Real Madrid frá Fenerbache.

Mbappé ætlar ekki framlengja samning sinn við PSG
Kylian Mbappé mun ekki að spila áfram með Paris Saint-Germain þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Það bendir því allt til þess að hann verði seldur í sumar.

Ný lög gegn kynþáttaníði nefnd í höfuðið á Vinícius Júnior
Yfirvöld í brasilísku stórborginni Rio de Janiero hafa ákveðið að nefna ný lög gegn kynþáttaníði í höfuðið á framherja Real Madrid og brasilíska landsliðsins, Vinícius Júnior.

Fyrirliðinn yfirgefur Chelsea eftir ellefu ára samband
Cesar Azpilicueta, fyrirliði enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, hefur yfirgefið félagið eftir ellefu ára veru hjá liðinu og skrifað undir eins árs samning við Atlético Madrid.

PSG-markvörðurinn útskrifaður af gjörgæsludeildinni
Sergio Rico, markvörður Paris Saint-Germain, er kominn af gjörgæsludeildinni, þar sem hann hefur dvalið síðan að hann varð fyrir slysi í lok maí.

Ancelotti tekur við brasilíska landsliðinu næsta sumar
Carlo Ancelotti verður þjálfari brasilíska fótboltalandsliðinu á næsta ári en þetta staðfesti forseti brasilíska knattspyrnusambandsins.

Cesc Fabregas hefur lagt skóna á hilluna
Hinn 36 ára gamli Cesc Fabregas, lék á ferli sínum fyrir Arsenal og Chelsea á Englandi en á Spáni lék hann fyrir uppeldisfélag sitt Barcelona. Einnig spilaði hann fyrir Monaco í Frakklandi. Hann var hluti af einu besta landsliði allra tíma er hann lék fyrir spænska landsliðið. Nú er ferli þessa snillings lokið því skórnir eru komnir á hilluna góðu.

Azpilicueta valdi Atletico Madrid
Spánverjinn Cesar Azpilicueta verður leikmaður Atletico Madrid á næstu leiktíð. Hann kemur á frjálsri sölu frá enska félaginu Chelsea.

Modric tekur í það minnsta eitt ár í viðbót með Madrídingum
Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Modric hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við spænska stórveldið Real Madrid.

Man City staðfestir að Gundogan fari til Barcelona
Ilkay Gundogan, fyrirliði Manchester City, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ensku meistarana.

Chelsea nælir í framherja Villareal
Framherjinn Nicolas Jackson hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea og styttist í að hann verði kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður liðsins. Talið er að samningur hans gildi til ársins 2031.

Osasuna fær ekki að keppa í Sambandsdeild Evrópu
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að spænska félagið Osasuna fái ekki að taka þátt í Sambandsdeild Evrópu á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa unnið sér inn sæti í keppninni á nýafstöðnu tímabili.

Benítez tekur við Celta Vigo
Rafael Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool, Newcastle United, Real Madríd og fleiri liða, er tekinn við liði Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni. Hann mun því ekki taka við Ítalíumeisturum Napoli eins og umræða var um.

Kostar vel yfir sjötíu milljarða að losa 33 ára Gundogan undan nýja samningnum
Ilkay Gundogan, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, gengur í raðir spænska stórveldisins Barcelona þegar núverandi samningur hans við City rennur út.

Fyrrverandi leikmaður Stoke og Newcastle til Real Madríd
José Luis Mato Sanmartín, betur þekktur sem Joselu, er genginn í raðir Real Madríd á láni frá Espanyol. Framherjinn hefur komið víða við á ferli sínum og spilaði meðal annars með Stoke City og Newcastle United á Englandi.

Bakvörður Man United til Barcelona
Ona Batlle, hægri bakvörður Manchester United, hefur samið við Spánar- og Evrópumeistara Barcelona til ársins 2026. Samningur hennar við Man United rennur út í lok júnímánaðar og því fer hún frítt til Katalóníu.

Endurbætur á Nývangi í skugga fjármálaóreiðu Barcelona
Barcelona mun leika heimaleiki sína næsta tímabil á Ólympíuleikvangnum í borginni en umfangsmiklar endurbætur á Nývangi eru komnar á fullt og reiknað er með að þær taki 18 mánuði. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er um 1,5 milljarður Evra.

Dreymir um að spila fyrir Real Madríd
Brasilíski framherjinn Richarlison fer ekkert í grafgötur með það að honum dreymi um að spila fyrir spænska stórveldið Real Madríd. Carlo Ancelotti, þjálfari framherjans þegar hann var hjá Everton, stýrir Real í dag.

Vinícius mun leiða nefnd sem berst gegn kynþáttaníði
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins – FIFA, hefur staðfest að Vinicíus Júnior, framherji Real Madríd, muni leiða nefnd skipaða af leikmönnum. Markmið nefndarinnar er að berjast gegn kynþáttaníði.

„Dagurinn sem ég geng í raðir besta knattspyrnufélags í sögu leiksins“
Jude Bellingham var í dag kynntur til leiks sem nýr leikmaður spænska stórveldisins Real Madrid.

Bellingham orðinn leikmaður Real
Knattspyrnumaðurinn Jude Bellingham er orðinn leikmaður Real Madríd. Gæti hann orðið dýrasti Englendingur sögunnar.

Brasilía mætir Spáni í vináttuleik til að berjast gegn rasisma í garð Vinícius
Brasilía og Spánn munu mætast í vináttulandsleik í mars á næsta ári þar sem markmiðið verður að berjast gegn kynþáttafordómum sem Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid og brasilíska landsliðsins, hefur þurft að þola á Spáni.

Vinícius fetar í fótspor Ronaldo
Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior mun feta í fótspor Cristiano Ronaldo á komandi tímabili í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Vini Jr., eins og hann er kallaður, mun nefnilega klæðast treyju númer 7 hjá stórveldinu Real Madríd.

Real Madrid og Dortmund búin að komast að samkomulagi um Bellingham
Real Madrid og Borussia Dortmund hafa komist að samkomulagi um kaupverðið á enska miðjumanninum Jude Bellingham.

Atlético Madrid vill fá Zaha
Diego Simeone hefur mikinn áhuga á að fá Wilfried Zaha, leikmann Crystal Palace, til Atlético Madrid.

Benzema fetar í fótspor Ronaldos og fer til Sádi-Arabíu
Franski knattspyrnumaðurinn Karim Benzema er á leið til Sádi-Arabíumeistara Al-Ittihad. Benzema lék sinn síðasta leik fyrir Real Madrid í gær í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar eftir fjórtán ára veru hjá félaginu.

Stóðu heiðursvörð um tárvotan Lahoz eftir að hann dæmdi sinn síðasta leik
Það var tilfinningaþrungin stund fyrir dómarann Antonio Mateu Lahoz eftir leik Mallorca og Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni, La Liga, í gær. Lahoz var að dæma sinn síðasta leik í deildinni og leikmenn liðanna stóðu heiðursvörð um dómarann eftir að hann flautaði til leiksloka.