Innlent

Hildi og Inga Þór sagt upp

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp störfum í dag. 
Fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp störfum í dag.  Facebook/Reykjavíkurborg

Hildur Lillendahl Viggósdóttir verkefnastjóri er ein þeirra sem var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í dag eftir átján ár í starfi. Þá var Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra á skrifstofu menningarborgar, einnig sagt upp störfum. 

„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg á ísland punktur is,“ skrifar Hildur í Facebook-færslu. 

Hún sem starfaði sem verkefnastjóri skrifstofu borgarstjórnar og hafði starfað hjá borginni í tæpa tvo áratugi. Meðal annars annaðist hún utanumhald og framkvæmd kosninga í Reykjavík. 

Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. 

Sjá einnig: Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi

Í morgun hafi Hildur Lillendahl setið á Keflavíkurflugvelli á leið sinni heim úr fjögurra daga ferð og séð fréttir um „leynifund“ í Ráðhúsinu. Hún hafi sent á skrifstofuna og spurt hvað væri í gangi en engin svör hafi borist fyrr en henni barst póstur frá yfirmanni sínum um að henni byðist sálfræðiaðstoð en ekki væri óskað eftir frekara vinnuframlagi hennar.

„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Átján og hálft ár. Ég hef sinnt starfinu mínu af svo ógeðslega mikilli samviskusemi og metnaði að stundum hefur mér fundist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér,“ skrifar Hildur.

„Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo áratugi eða... eða bara eitthvað. En svona er þetta.“ 

Hún segist afar sár og vonsvikin en ætli að reyna njóta erlendis þar sem hún er stödd um þessar mundir.

„Lélegasta afmælisgjöf allra tíma“

Ólympíufaranum Inga Þór Jónssyni var sagt upp störfum í dag og greindi frá starfslokunum á Facebook. Hann verður 64 þann 1. nóvember, daginn sem hann lýkur störfum. 

„Lélegasta afmælisgjöf allra tíma, rekinn úr starfi hjá Reykjavíkurborg frá og með 1.1,“ skrifar hann.

Hann starfaði sem verkefnastjóri viðburða og markaðs hjá Fjölskyldugarðinum. Starfið í Fjölskyldugarðinum er ekki það fyrsta sem Ingi sinnti hjá borginni en hann var viðburðastjóri í Ráðhúsinu og vann á skrifstofu borgarstjóra í tíð Jóns Gnarr. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×