Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 10:07 Leitarsvæðið er girt af. Vísir/Einar Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að um sé að ræða sjónskoðun og leit með myndavél sem framkvæmd verður af sérhæfðum leitarmönnum sem munu síga niður í sprunguna. Töluverður viðbúnaður er á vettvangi. Vísir/Einar Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Rætt var við bróður Lúðvíks, Elías, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðtalið er hægt að hlusta á og lesa að neðan. Markmiðið ekki björgun Í tilkynningu lögreglu kemur einnig fram að aðstæður á vettvangi séu afar krefjandi. Öll framkvæmdin taki mið af ítarlegu áhættumati sem unnið var í samstarfi innlendra og erlendra sérfræðinga. Vegna þessa sé markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður á vettvangi en ekki björgun. Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu fyrr í morgun að undirbúningur hefði gengið vel. Um tólf manna teymi kæmi að aðgerðum í dag, meðal annars frá lögreglu, sérsveit ríkislögreglustjóra, slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og hjálparsveit skáta í Kópavogi, sem legði til sérhæfðan mann í rústabjörgun og búnað. Allir sem koma að verkefninu eru sérþjálfaðir í línuvinnu og fjallabjörgun, að sögn Bjarneyjar. Sérfræðingar í rústabjörgun koma að aðgerðinni. Vísir/Einar Í tilkynningu segir að áhersla sé lögð á að tryggja öryggi þeirra sem að aðgerðinni koma. „Ekki verða veittar upplýsingar um leitaraðgerðina meðan á henni stendur en upplýsingar verða sendar á fjölmiðla um leið og þær liggja fyrir og aðstandendur hafa verið upplýstir,“ segir að lokum. Aðstæður verða skoðaðar en markmiðið er ekki björgun. Vísir/Einar
Grindavík Féll í sprungu í Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. 26. október 2026 11:18 Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024. 17. febrúar 2026 06:41 Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. 21. ágúst 2026 06:47 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Sjá meira
Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. 26. október 2026 11:18
Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024. 17. febrúar 2026 06:41
Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. 21. ágúst 2026 06:47