

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Á fyrirlestrunum verður fjallað um hvernig foreldrar geta á markvissan hátt skapað ríkulegt mál- og læsisumhverfi fyrir börnin sín og ýtt undir áhuga þeirra á lestri.
Félag hjúkrunarfræðinga ætlar að greiða innritunargjöld fyrir karlmenn sem fara í hjúkrunarfræði. Aðeins nítján karlar eru í námi eins og staðan er núna. Ísland er með eitt lægsta hlutfall karla í hjúkrun á öllum Vesturlöndum.
Keppnin verður haldin í íþróttahúsinu við Vesturgötu þann 28. apríl.
Kennsla hefst í Lýðháskólanum á Flateyri í september. Markmiðið með skólanum er að hjálpa ungu fólki að finna sína hillu í lífinu með því bjóða upp á fjölbreytt nám með víða skírskotun.
Framkvæmdir hófust árið 2015 en kostnaður er áætlaður um þrír milljarðar króna.
Lárus H. Bjarnason hefur verið rektor Menntaskólans við Hamrahlíð síðan árið 1998 en hann hefur tekið þá ákvörðun að hætta nú í vor. Lárus segir margt standa upp úr á þessum langa ferli en helst séu það frábæru nemendurnir.
Karlmanni hefur verið gert að endurgreiða rúmlega 360 þúsund krónur þar sem hann þáði atvinnuleysisbætur samhliða fjarnámi í einum áfanga í framhaldsskóla.
Þing Kennarasambands Íslands hefst í dag og stendur fram á föstudag.
Háskólanemar á Íslandi vinna mikið og telja fjárhagsstöðu sína erfiða
Vísinda- og tækniráð hefur rætt nauðsyn þess að gera breytingar á skattlagningu styrkja til háskóla. Rektor HR telur að vilji sé til breytinga.
Skólinn tekur til starfa haustið 2018.
Flóttafólk mun öðlast rétt á námslánum hjá LÍN samkvæmt nýjum úthlutunarreglum sjóðsins. Þá verður framfærslugrunnur námsmanna innanlands hækkaður í 96% en fulltrúi stúdenta í stjórn lánasjóðsins segir hækkunina vera langt frá því að vera næga kjarabót fyrir stúdenta.
Lilja Alfreðsdóttir staðfesti úthlutunarreglur sjóðsins.
Starfsemi skólans verður auglýst og kynnt 15.apríl.
Elsa María Guðlaugs Drífudóttir var kjörin formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta á landsþingi LÍS, sem slitið var á sunnudag.
Skóla-og frístundasvið mun fá utanaðkomandi fagaðila til að sætta hóp foreldra og skólastjórnendur í Breiðholtsskóla.
Menntamálaráðherra kynnti í gær hugmyndir um að gera fimmta árið í kennaranámi að launuðu vettvangsnámi og að hluti af námslánum kennaranema gæti orðið að styrk.
Nemendur geta innritast í hvorn skólann sem er en tekið hluta af námi sínu við hinn skólann eða erlendan samstarfsskóla.
Vilji er til þess bæði á meðal Sambands íslenskra sveitarfélaga og háskólanna að breyta kennaranámi. Nemendur á fimmta ári verði í launuðu vettvangsnámi. Hugmyndin byggist á vinnu samstarfshóps sem hefur starfað saman í þrjú ár.
Menntamálaráðherra segir að styrkja þurfi umgjörðina um kennarann á öllum skólastigum.
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir áhyggjuefni ef skólastjórnendur eru úrræðalausir til að takast á við alvarleg brot eftir álit umboðsmanns Alþingis. Brottvísun pilts fyrir stafrænt kynferðisofbeldi og vopnaburð var ólögmæt. Ráðherra boðar skoðun á verklagi.
Nýtt lúxushótel með veitingasölum fyrir áttahundruð gesti rís nú við Geysi í Haukadal. Gamli íþróttaskólinn á Geysi verður rammaður inn í hótelið.
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir félagsmenn sína tilbúna í verkfall ef ekki nást samningar við ríkið á næstunni. Hún segir kjaraviðræður stranda á fjármögnun vinnumats kennara frekar en krónutölu launa.
Íslenskt menntakerfi stendur á tímamótum að sögn Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra sem lítur til Finnlands og Kanada. Börn af erlendum uppruna megi ekki vera jaðarsett og skortir aðstoð.
Félag framhaldsskólakennara hefur kallað samninganefnd félagsins saman næstkomandi mánudag.
Pilturinn hafði orðið uppvís að því að bera hníf í skólanum og birta óviðeigandi mynd af skólasystur sinni í lokuðum Facebook hópi.
Reykjavíkurborg hyggst brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla á næstu árum samkvæmt aðgerðaáætlun sem kynnt var í borgarráði í gær.
Uppbygging rannsókna og doktorsnáms við Háskóla Íslands undanfarna tvo áratugi hefur komið skólanum í fremstu röð alþjóð legra rannsóknaháskóla. Þjóðir heims fjárfesta í rannsóknarháskólum til að byggja upp samfélag sem drifið er áfram af menntun, rannsóknum og nýsköpun. Hér á landi hefur verið stigið skref í þá átt með uppbyggingu háskólastigsins en til að byggja upp blómlegt þekkingarsamfélag á Íslandi til framtíðar þarf samstillt átak háskóla, stjórnvalda og atvinnulífs.
Ég vil afnema hina svokölluðu 25 ára "reglu“ við innritun nemenda í framhaldsskóla. Frá árinu 2012 hefur framhaldsskólum verið heimilt að forgangsraða umsóknum um skólavist eftir tiltekinni flokkun á umsækjendum. Einn liður í reglugerðinni sem liggur til grundvallar kveður á um að umsækjendum 25 ára og eldri, og njóta ekki forgangs af öðrum ástæðum, er raðað næstsíðast við flokkun umsókna.
Verzlunarskóli Íslands ætlar í apríl að leggja próf fyrir nemendur sem eru að ljúka námi eftir þriggja ára nám og þá sem eru að ljúka námi eftir fjögurra ára nám. Prófað verður í íslensku og stærðfræði.