Luis Enrique tekur við liði Paris Saint Germain Spánverjinn Luis Enrique er næsti þjálfari franska stórliðsins Paris Saint Germain. Fótbolti 5. júlí 2023 15:17
Allir Evrópuleikirnir á Stöð 2 Sport Samningar hafa náðst um að komandi leikir íslensku liðanna í undankeppni Meistaradeildar og Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í júlí verði allir sýndir á Stöð 2 Sport. Fótbolti 5. júlí 2023 15:04
Anna Björk í landsliðið eftir tveggja ára bið Anna Björk Kristjánsdóttir, nýjasti liðsmaður Vals, hefur fengið sæti í íslenska landsliðshópnum í fótbolta en hún kemur inn vegna meiðsla Ástu Eirar Árnadóttur, fyrirliða Breiðabliks. Fótbolti 5. júlí 2023 14:46
Ancelotti tekur við brasilíska landsliðinu næsta sumar Carlo Ancelotti verður þjálfari brasilíska fótboltalandsliðinu á næsta ári en þetta staðfesti forseti brasilíska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 5. júlí 2023 14:32
„Ísland á EM er alltaf risastórt“ Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði mark Íslands í 2-1 tapi á móti gríðarlega sterku spænsku landsliði í fyrsta leik íslenska nítján ára landsliðsins á EM á Möltu. Fótbolti 5. júlí 2023 10:31
Staðfest að Galtier er hættur með Paris Saint Germain Christophe Galtier verður ekki áfram þjálfari franska stórliðsins Paris Saint Germain en eitt verst geymda leyndarmál síðustu vikna var endanlega staðfest í morgun. Fótbolti 5. júlí 2023 09:16
Sjáðu Dag opna markareikninginn í MLS Dagur Dan Þórhallsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Orlando City í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt. Fótbolti 5. júlí 2023 08:30
„Við komum okkur alveg í séns hérna í lokin en tíminn var heldur betur knappur“ Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var eðlilega mjög svekktur eftir tap FH gegn Íslandsmeisturum Vals í Kaplakrika nú í kvöld. FH spilaði mjög vel á köflum en Valsarar gerðu út um leikinn á 15 mínútna kafla í seinni hálfleik þegar liðið skoraði þrjú mörk með skömmu millibili. FH-ingar náðu hins vegar að klóra í bakkann og skoruðu tvö mörk í lokin en lengra komst FH ekki. Fótbolti 4. júlí 2023 22:35
„Þurfum að taka það með okkur í næsta leik“ Ólafur Ingi Skúlason þjálfari íslenska U19-ára landsliðsins sagði strákana eiga hrós skilið fyrir að vinna sig inn í leikinn gegn Spánverjum. Ísland tapaði 2-1 gegn feykisterku spænsku liði. Fótbolti 4. júlí 2023 22:30
„Við erum búnir að leggja mikið á okkur til að komast hingað“ Hlynur Freyr Karlsson fyrirliði U19-ára liðs Íslands var nokkuð sáttur með frammistöðu liðsins gegn geysisterku liði Spánar í dag. Ísland mætir næst Noregi á Evrópumótinu. Fótbolti 4. júlí 2023 22:18
„Það er ekkert eðlilega gaman að vera í KA í dag” Ívar Örn Árnason leikmaður KA var himinlifandi eftir að KA tryggði sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti í 19 ár. KA vann sigur á Breiðablik eftir vítaspyrnukeppni í kvöld. Fótbolti 4. júlí 2023 21:26
Umfjöllun og myndir: Ísland - Spánn 1-2 | Tap í fyrsta leik á EM Íslensku strákarnir í U19 töpuðu gegn Spánverjum 1-2. Spánverjar komust yfir með marki úr hornspyrnu í fyrri hálfleik. Þeir bættu síðan við öðru marki þegar tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleik eftir afar klaufalegan varnarleik hjá Íslandi. Ágúst Orri Þorsteinsson minnkaði muninn í uppbótartíma með laglegu skoti. Fótbolti 4. júlí 2023 21:22
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór/KA 0-1 | Akureyringar með mikilvægan sigur Þór/KA sótti sterk þrjú stig í annars bragðdaufum leik í Keflavík í 11. umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Leiknum lauk með eins mark sigri gestanna, 0-1. Þór/KA er komið upp í þriðja sæti deildarinnar eftir sigurinn. Fótbolti 4. júlí 2023 20:12
Liðsfélagi Ingibjargar fór grátandi af velli um helgina en fær að fara á HM Guro Pettersen, markvörður Vålerenga og norska landsliðsins, fékk grænt ljóst frá landsliðslæknum og verður því með á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Fótbolti 4. júlí 2023 13:30
„Þetta verður mitt síðasta heimsmeistaramót“ Brasilíska goðsögnin og markahæsta kona HM frá upphafi hefur staðfest að komandi heimsmeistaramót í Ástralíu og Nýja-Sjálandi verði hennar síðasta. Fótbolti 4. júlí 2023 12:31
Hver einasta sekúnda af fagnaðarlátum leikmanna bætist nú við leiktímann Reglur fótboltans eru alltaf í þróun og við og við eru gerðar athyglisverðar breytingar á fótboltareglunum. Fótbolti 4. júlí 2023 12:00
Hraktist í burtu eftir erjur við stuðningsmenn liðsins Sænski markvörðurinn Hedvid Lindahl, sem hefur leikið nærri 200 landsleiki fyrir Svíþjóð, hefur rift samningi sínum við Djurgården í kjölfar deilna við stuðningsmenn liðsins. Fótbolti 4. júlí 2023 11:31
Fjórir tvíburar í besta fótboltalandsliði heims Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta er ríkjandi heimsmeistari og efst á heimslista FIFA þegar liðið mætir á heimsmeistaramótið í Ástralíu og Nýja Sjálandi sem hefst seinna í þessum mánuði. Fótbolti 4. júlí 2023 11:01
Hetja Úkraínu eyddi nóttum með ófrískri eiginkonu í neðanjarðarbyrgi Georgiy Sudakov var hetja úkraínska 21 árs landsliðsins sem vann óvæntan sigur á Frökkum í átta liða úrslitum í Evrópukeppni 21 árs landsliða. Fótbolti 4. júlí 2023 10:30
Karlalandsliðið á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í fótbolta verða sýndir á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin. Þetta er meðal atriða í samstarfssamningi Sýnar og Viaplay sem tilkynnt var um í dag. Fótbolti 4. júlí 2023 10:21
Karlrembupabbinn orðlaus þegar Sviss kynnti liðið sitt fyrir HM kvenna Sviss verður með á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta sem hefst seinna í þessum mánuði í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Fótbolti 4. júlí 2023 10:01
Ísland byrjar á leik við langdýrasta mann EM Íslenska U19-landsliðið í fótbolta karla hefur í dag keppni á sjálfu Evrópumótinu sem fram fer á Möltu. Andstæðingarnir í fyrsta leik eru ógnarsterkt lið Spánverja. Fótbolti 4. júlí 2023 09:31
Breiðablik og Ísland í aðalhlutverki í stórri grein á ESPN ESPN gefur lesendum sínum sína upplifun af Meistaradeildarleikjunum sem fóru fram í Kópavogi á dögunum. Ræddu meðal annars við einn svekktan leikmann sem fékk ekki að heyra Meistaradeildarlagið fyrir rassskellinn á móti Blikum. Fótbolti 4. júlí 2023 08:02
Eyddi þremur árum í að fá Messi til Inter Miami Eigandi Inter Miami hefur sagt frá því hvernig hann fór af því að fá argentínska knattspyrnugoðið Lionel Messi til að semja bið bandaríska félagið. Fótbolti 4. júlí 2023 07:30
Evrópumeistararnir fá engar bónusgreiðslur á HM Leikmenn enska kvennalandsliðsins í fótbolta furða sig á því að þær muni ekki fá neinar árangurstengdar bónusgreiðslur frá enska knattspyrnusambandinu, FA, út frá því hvernig liðinu gengur á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi sem hefst síðar í mánuðinum. Fótbolti 4. júlí 2023 07:01
Segir Chelsea hafa verið besta lið Englands undanfarin ár Mauricio Pochettino, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Lundúnaliðið hafi verið besta lið Englands undanfarin tíu til fimmtán ár. Fótbolti 3. júlí 2023 23:30
Newcastle gerði Tonali að dýrasta Ítala sögunnar Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle hefur gengið frá kaupum á ítalska knattspyrnumanninum Sandro Tonali frá AC Milan. Fótbolti 3. júlí 2023 22:46
„Frábærar í fyrri en seinni hálfleikur var hryllilegur“ Þróttur sigraði Selfoss 3-0 á heimavelli fyrr í kvöld. Nik Chamberlain, þjálfari liðsins, var sáttur með niðurstöðu leiksins en óánægður með frammistöðu liðsins í seinni hálfleik. Fótbolti 3. júlí 2023 22:32
Staðfesta 76 ára Hodgson sem setur stefnuna á efri hlutann Crystal Palace hefur staðfest að Roy Hodgson muni stýra liðinu á næsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni og þessi tæplega 76 ára gamli þjálfari er strax farinn að setja markið hátt. Fótbolti 3. júlí 2023 20:30
Patro Eisden staðfestir komu Stefáns Inga Stefán Ingi Sigurðarson, markahæsti leikmaður Bestu-deildar karla, er genginn til liðs við belgíska félagið Patro Eisden frá Breiðablik. Fótbolti 3. júlí 2023 19:55