Enski boltinn

Slot fundar með Salah í dag: „Mun á­kvarða hver næstu skref verða“

Aron Guðmundsson skrifar
Samband Salah og Slot hefur séð betri daga
Samband Salah og Slot hefur séð betri daga Vísir/Getty

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool mun eiga fund með Mohamed Salah í dag. Útkoma þess fundar mun ákvarða hvert framhaldið verður varðandi stöðu leikmannsins hjá félaginu, hvort hann verði í leikmannahópi liðsins á morgun gegn Brighton. 

Frá þessu greindi Slot á blaðamannafundi núna í morgun í aðdraganda næsta leiks Liverpool gegn Brighton á Anfield klukkan þrjú á morgun.

Salah var ekki í leikmannahópi Liverpool í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni eftir viðtal sem hann veitti blaðamönnum í kjölfar þess að hafa verið ónotaður varamaður í leik gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni.

Þar fór Egyptinn mikinn. Sagði að verið væri að henda sér undir rútuna og gera að blóraböggli fyrir slæmu gengi Liverpool upp á síðkastið. Þá sagði hann að samband sitt við Slot væri nær orðið að engu. 

Á blaðamannafundinum í morgun var Slot spurður að því hvort Salah hefði spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. 

„Við munum eiga fund núna á eftir. Útkoma þess fundar mun ákvarða hver næstu skref verða.“

Slot segist þurfa að eiga samtal við Salah. 

„Næst þegar að ég þarf að tala um Mohamed Slaha þá ætti það að vera með honum en ekki hér. Það er ekki mikið meira sem ég get sagt á þessari stundu. Ég mun tala við hann í dag og eftir þann fund vitum við hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“

Slot segist hafa rætt reglulega bæði við Salah frá leiknum gegn Sunderland í upphafi desember, þá hafi fulltrúar Liverpool einnig verið í sambandi við fulltrúa leikmannsins síðan þá. 

Á blaðamannafundinum varð Slot einnig spurður að því hvort hann vildi að Salah yrði áfram leikmaður Liverpool.

„Ég hef enga ástæðu til að vilja ekki að Salah verði áfram,“ svaraði Hollendingurinn.

Það ætti því að koma í ljós seinna í dag hvort að fundur Salah og Slot hafi verið árangursríkur og hvort Egyptinn verði í leikmannahópi Liverpool gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Eftir leik Liverpool gegn Brighton mun Mohamed Salah halda til móts við egypska landsliðið sem hefur leika á Afríkumótinu þann 22.desember næstkomandi.

Liverpool er sem stendur í 10.sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 23 stig, tíu stigum á eftir toppliði Arsenal.

Leikur Liverpool og Brighton verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 2 á morgun og hefst klukkan þrjú.


Tengdar fréttir

„Hvað getur Slot gert?“

Sérfræðingur Sýnar Sport telur ólíklegt að Mo Salah spili fleiri leiki fyrir Liverpool, ekki nema aðstæður breytist til muna hjá félaginu og að þjálfarinn verði látinn taka poka sinn.

„Endanlegt ippon fyrir Slot“

Á meðan Mohamed Salah spilaði sig út sem fórnarlamb heima í Liverpool þá fóru liðsfélagar hans og sóttu þrjú stig á San Siro í Meistaradeildinni. Arnar Gunnlaugsson og Sigurvin Ólafsson eru á því að Arne Slot sé sigurvegarinn eftir úrslitin í gær og að Salah spili ekki aftur fyrir Liverpool.

Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök

Arne Slot, stjóri Liver­pool, spyr sig hvort Mohamed Salah sjálfur sé á því að hann hafi gert mistök eftir að hafa farið hamförum í viðtali á dögunum. Eins og við var að búast var hann spurður út í stöðu Salah eftir sigur gegn Inter í kvöld en vildi heldur að spurningarnar snerust um þá leik­menn sem spiluðu leikinn.

Dramatískur sigur Liver­pool án Salah

Mark á lokamínútunum gegn Inter Milan tryggði Salah lausu Liverpool liði 1-0 kærkominn sigur í Meistaradeildinni í stormasamri viku fyrir félagið.

Kom stjórn­endum Liver­pool á óvart hversu harðorður Salah var

Leik­menn Liver­pool bjuggust við því að Mohamed Salah myndi tjá sig um stöðu sína hjá félaginu eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Leeds United um komandi helgi. Það kom stjórn­endum Liver­pool hins vegar  á óvart hversu harðorður Salah var um sam­band sitt við þjálfarann Arne Slot.

Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“

Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær.

Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“

Íslenskir stuðningsmenn Liverpool eru í losti eftir að Egyptinn Mohamed Salah kastaði handsprengju eftir jafntefli liðsins við Leeds í gær. Allt logar hjá félaginu sem og stuðningsmönnum eftir að Egyptinn lét stjórnendur liðsins heyra það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×