Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 10:31 Noni Madueke er hér tæklaður af Alexis Mac Allister í leik Arsenal Liverpool um helgina. Þeir áttust nokkrum sinnum við í leiknum. EPA/ADAM VAUGHAN Arsenal-maðurinn Noni Madueke segir að Alexis Mac Allister hafi reynt að veiða sig til að fá rautt spjald í 1-0 sigri Arsenal á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á Anfield um helgina.
Argentínski miðjumaðurinn féll til jarðar þegar hann og Madueke stóðu augliti til auglitis á 79. mínútu leiksins en Madueke var ekki refsað. Í samtali við fréttamenn eftir leikinn sagðist Madueke ekki telja að „neitt“ hefði verið í atvikinu. „Satt best að segja held ég að þetta hafi ekki verið neitt – hvorki gult spjald né rautt. Dómarinn taldi það ekki, myndbandsdómgæslan taldi það ekki, svo við vorum öll sammála um það,“ sagði Noni Madueke. Alexis Mac Allister wanted a red card for Noni Madueke after the pair went head-to-head 🟥 https://t.co/rLDB1MNpLJ— Match of the Day (@BBCMOTD) November 1, 2026 „Þetta er eðlileg hreyfing og hann er augljóslega klókur. Hann reyndi að egna mig til að fá rautt spjald þarna en gerði það augljóslega ekki. Í huganum hugsaði ég að það væri mögulegt [að vera rekinn af velli] með VAR, eftir því hver túlkar þetta – ég veit ekki hvað þeir eru að hugsa en sem betur fer varð það ekki,“ sagði Madueke. Skytturnar unnu sinn fyrsta sigur á Anfield í fjórtán ár þegar Kai Havertz skoraði eina mark leiksins. Knattspyrnusérfræðingurinn Jamie Carragher gagnrýndi Mac Allister fyrir þátt hans í atvikinu milli hans og Madueke. „Ég er himinlifandi yfir því að Madueke var ekki rekinn af velli þarna. Við verðum að vera óhrædd við að gagnrýna fólk og segja: „Þetta er vandræðalegt. Þetta verður að hætta, þetta er fáránlegt. Ég þoli þetta ekki,“ sagði Carragher um atvikið á Sky Sports. „Sem íþrótt, sem fótbolti, verða menn í ensku úrvalsdeildinni og stuðningsmenn að gagnrýna sitt eigið fólk fyrir þetta. Ég er stuðningsmaður Liverpool og þetta er brandari hjá Mac Allister. Þessu verður að hætta,“ sagði Carragher. „Menn eru að reyna að misnota kerfið af því að þeir vita að þeir geta það. Það er verið að gefa rauð spjöld fyrir þetta. Hvort sem það kemur frá Howard Webb, ensku úrvalsdeildinni eða knattspyrnustjórunum – hættið að gefa rauð spjöld fyrir þetta,“ sagði Carragher. "We have got to start calling people out" 🗣️ Jamie Carragher discusses Alexis Mac Allister's altercation with Jurriën Timber and Noni Madueke. https://t.co/dsfVo1siYd— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) November 1, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Arsenal FC Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira