Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 12:03 Michael Carrick getur ekki leynt vonbrigðum og svekkelsi sínu í tapleiknum á móti Chelsea á Stamford Bridge um helgina. AP/Ian Walton Manchester United sat um tíma í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en liðið endaði umferðina í einu sæti ofar en fallsæti þökk sé betri markatölu en liðið fyrir neðan.
Þótt knattspyrnustjórinn Michael Carrick vilji ekki tala um að liðið sé komið í fallbaráttu blasa staðreyndir málsins við og Simon Stone hjá breska ríkisútvarpinu fór að velta fyrir sér hugsanlegum fjárhagslegum áhrifum falli United niður um deild næsta vor. Hann bendir á það að í maí hafi hinn virti bloggari um fjármál knattspyrnunnar, Paul Quinn, reiknað út að „algert tekjutap“ Tottenham yrði á bilinu 197–235 milljónir punda ef liðið félli. Það eru á bilinu 32,2 til 38,5 milljarðar króna. Are Manchester United really at risk of a relegation scrap? https://t.co/9lG9aEaZeT— BBC News (UK) (@BBCNews) November 1, 2026 Stone tekur það þó fram að þar sem United er eitt þeirra félaga í deildinni sem fá hæstar sjónvarpstekjur myndu fallhlífargreiðslurnar sem standa föllnum félögum til boða við fall úr ensku úrvalsdeildinni ekki vera nálægt því að dekka tapið. Svo eru það samningar stórstjarnanna. „Ólíklegt þykir að margir, ef nokkrir, leikmenn í hópnum séu með fallákvæði í samningum sínum, og þótt United hafi gríðarlegar viðskiptatekjur er ekki vitað að hve miklu leyti þær yrðu fyrir áhrifum af ákvæðum sem virkjast við fall,“ skrifaði Simon Stone. Það yrði auðvitað mjög slæmt að þurfa að standa við þessa stóru launasamninga þegar tekjutapið yrði svo mikið. Nógu erfitt hefur verið fyrir félagið að losna við leikmenn á slíkum risasamningum síðustu ár. Samningarnir myndu kannski standa eftir en styrktaraðilar gætu nýtt sér fallið úr deildinni til að lækka styrki sína. United skuldar einnig 1,15 milljarða punda, sem samanstanda meðal annars af skuldabréfum sem endursamið var um í júní á hærri vöxtum. Sú slæma staða er líka ástæða til að hafa áhyggjur komi upp tími þar sem tekjurnar hrynja. Félagið er einnig að setja saman áætlanir um fjáröflun fyrir nýjan leikvang en þær á að leggja fram annaðhvort síðla árs 2027 eða snemma árs 2028. Fall úr deildinni gæti einnig komið í veg fyrir slík plön. Einhverjir stuðningsmenn hafa bent á að það eina jákvæða við fall úr deildinni væri að þá myndu þeir loksins losna við Glazers-fjölskylduna sem eigendur. Það yrði samt margra ára verk að koma United aftur á stall sem eitt besta lið Englands færi allt á versta veg.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Sjá meira