Enski boltinn

Iraola mun segja Isak að láta sig falla í fram­tíðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sænski framherjinn Alexander Isak og Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool.
Sænski framherjinn Alexander Isak og Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool. EPA/ADAM VAUGHAN

Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, segist ætla að segja sænska framherjanum Alexander Isak að láta sig falla ef brotið verður á honum innan teigs í framtíðinni en ummælin koma í framhaldi af því að Liverpool var svikið um að hans mati augljósa vítaspyrnu gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Kai Havertz skoraði eina mark leiksins í gær þegar Arsenal vann sinn fyrsta sigur á Anfield síðan í september 2012.

Liverpool-menn voru mjög ósáttir eftir að hvorki dómarinn Andy Madley né myndbandsdómarinn Stuart Attwell dæmdu vítaspyrnu þegar Jurriën Timber togaði í treyju Isaks er framherjinn reyndi að skalla fyrirgjöf frá Bradley Barcola í fyrri hálfleik.

Í stað þess að falla til jarðar hélt Isak sér á fótunum og sneri sér við til að ræða við Timber eftir atvikið.

Augljós vítaspyrna

„Atvikið með Alex er augljós vítaspyrna,“ sagði Iraola við Sky Sports eftir leikinn. „Hann heldur í treyjuna hans, við sjáum öll að hann heldur í treyjuna. Af því að hann fellur ekki í grasið ætla þeir ekki að dæma víti. Ég skil það ekki,“ sagði Andoni Iraola.

„Þetta er vandamálið sem við glímum við í fótboltanum. Af því að hann lætur sig ekki detta og fellur ekki í grasið. Sú staðreynd að þú sért yfirhöfuð að spyrja mig hvort hann hefði átt að falla – ef hann fellur, þá dæma þeir víti, 100%,“ sagði Iraola. Aðspurður hvort hann muni segja Isak að láta sig falla í framtíðinni bætti Iraola við: „Já, klárlega,“ sagði Iraola.

Við erum með fimmtíu myndavélar

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, lýsti einnig yfir gremju sinni með ákvörðunina. „Ég tel að þetta hafi verið augljós vítaspyrna,“ sagði Van Dijk. „Ég hef séð þetta aftur og ég hef séð svona dæmt. Þetta átti ekki að verða í dag. Við erum samt með fimmtíu myndavélar,“ sagði Van Dijk

„Af hverju þarf hann að kvarta þegar það eru svona margar myndavélar? Allir sáu þetta. Á endanum var ekkert dæmt og við töpuðum leiknum, því miður, svo vel gert hjá Arsenal,“ sagði Van Dijk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×