Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 20:04 Fabian Hurzeler svekkir sig á hliðarlínunni á Anfield í dag. AP/Jon Super Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, virtist skjóta á leikstíl Liverpool eftir 2-0 tap á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Sjálfsmark Pascals Gross og snyrtilegt mark Alexanders Isak dugðu Liverpool til sigurs. Brighton var þó meira með boltann og var með hærra gildi væntra marka (xG) en andstæðingarnir, nokkuð sem Hürzeler var fljótur að benda á á blaðamannafundi eftir leik. „Ég held að allir á vellinum hafi séð að það var eitt lið sem virkilega reyndi að skapa og reyndi að vinna þennan leik og þess vegna verð ég að hrósa leikmönnunum mínum,“ sagði knattspyrnustjóri Brighton. „Ég held að allir á vellinum, og þið líka, hafi fundið að þarna fór tækifæri forgörðum hjá okkur, því þetta snýst ekki bara um það sem gerðist eftir markið eða mörkin sem þeir skoruðu,“ sagði Hürzeler. „Áður en þeir skoruðu fengum við líka eitt, tvö góð færi og í dag held ég að munurinn hafi einfaldlega verið sá að þeir skoruðu en við ekki. Þeir héldu hreinu því þeir vörðust vel með miðvörðunum sínum, með bakverðinum [Ronald] Araujo og með [Milos] Kerkez,“ sagði Hürzeler. „Ég held að þeir hafi komist fyrir mörg skot. Þeir vörðu teiginn virkilega vel. Við höfðum ekki þessa skilvirkni. Við gátum ekki haldið hreinu því við gerðum einföld mistök og töpuðum mikilvægum einvígjum,“ sagði Hürzeler. „En í heildina sá ég lið sem getur tekið margt jákvætt úr þessu. Ég sá lið sem hafði virkilega trú á okkar nálgun, hélt sig við leikáætlunina og gafst aldrei upp. Það er mjög svekkjandi því við höfum öll á tilfinningunni að hér hafi tækifæri farið forgörðum í dag,“ sagði Hürzeler. Liverpool vann hins vegar fjórða sigur sinn í röð í öllum keppnum undir stjórn Iraola og fór liðið fyrir vikið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Mættum mjög góðum andstæðingi „Ég er ánægður með þennan fjórða sigur í röð,“ sagði Iraola. „Ég held að við höfum mætt mjög góðum andstæðingi í dag, svipað og Villarreal um daginn – lið sem eru tæknilega mjög góð. Ég held að lykillinn í dag hafi verið hvernig við byrjuðum. Við þurftum sterka byrjun, að vera ágengir, vinna boltann aftur, vinna einvígin okkar og vera hættulegir í skyndisóknum. Ég held að við höfum gert það og þetta var annars konar leikur en þeir þar sem við fengum fyrsta markið á okkur,“ sagði Iraola.
Enski boltinn Liverpool FC Brighton & Hove Albion Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira