Eurovision: Hera mynduð úr launsátri Við mynduðum Heru Björk nánast úr launsátri í dag þegar hún veitti erlendum fjölmiðlum óteljandi viðtöl á hótelinu í Osló þar sem íslenski Eurovisionhópurinn dvelur á. Fjölmiðlarnir spyrja Heru að ólíklegustu hlutum eins og um heilsu hennar, ástandið á Íslandi, hvaða lönd eru líkleg til að sigra Eurovision, fjölskylduna og eldgosið svo eitthvað sé nefnt. Lífið 27. maí 2010 15:22
Eurovision: Hvar eru lífverðirnir Hera? Karlmennirnir í íslenska hópnum þurftu að standa í kringum Heru eins og lífverðir á skemmtistaðnum Euroclub í gærkvöldi. Lífið 27. maí 2010 14:00
Eurovision: Rífur kjaft fyrir Heru Valgeiri Magnússyni umboðsmanni hefur með ótrúlegum hætti tekist að búa til spennandi stemningu í kringum Heru. Lífið 27. maí 2010 11:45
Eurovision: Hera gælir við ráðherrann Störe - myndir Hera Björk bræddi utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Störe, með nærveru sinni. Hann vildi ólmur hitta hana í gær. Lífið 27. maí 2010 09:30
Eurovision: Hera gerir allt vitlaust - myndband Við sýnum þennan stutta myndbút sem var tekinn af Heru Björk og Jónatan þegar þau mættu á fjölmiðlafundinn sem haldinn var í Telenor höllinni eftir fyrri undanúrslitakeppni Eurovision sem fram fór í fyrradag. Lífið 26. maí 2010 19:25
Eurovision: Hera í ham - myndband Við fylgdumst með Heru Björk í hádeginu í dag þegar hún tók á móti fjölmiðlum á hótelinu í Osló þar sem hún dvelur ásamt fylgdarliði. Lífið 26. maí 2010 18:00
Eurovision: Við stefnum klárlega á sigur Við hittum Jónatan Garðarsson sem heldur utan um íslenska Eurovisionhópinn í Osló í hádeginu í dag. „Það sem ég geri er að skipuleggja þetta frá a-ö. Núna eru margir í hópnum sem hafa gert þetta áður og vita hvaða kröfur ég geri," segir Jónatan. Sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði. Lífið 26. maí 2010 17:30
Eurovision: BBC vill Heru Björk Annað kvöld verður tveimur keppendum sem Bretum þykir að hafi slegið í gegn í gærkvöldi boðið að vera í beinni útsendingu á BBC þegar seinni riðillinn er sýndur þar annað kvöld. Hera Björk er annar af keppendunum en ekki hefur fengist uppgefið hver hinn keppandinn er. Fólk er að velta fyrir sér hvort það sé Grikkinn eða Belginn. Breski Eurovisionklúbburinn hefur spáð Heru Björk sigri í ár. Lífið 26. maí 2010 15:30
Eurovision: Norrænir fjölmiðlar með Heru á heilanum Langflestir norrænir fjölmiðlar slá því upp að Hera Björk hafi komist áfram í umfjöllun sinni um undankeppni Eurovision í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 15:00
Eurovision: Ég verð fyrsti Íslendingurinn sem sigrar „Ég verð fyrsti Íslendingurinn til að sigra Eurovisionkeppnina,“ segir Hera Björk meðal annars í myndskeiðinu. Lífið 26. maí 2010 12:30
Eurovision: Nei, ekki aftur! Jónatan dró 16. sætið fyrir Ísland Hér má sjá þegar Jónatan Garðarsson dregur töluna 16 á blaðamannafundi í gærkvöldi. Þetta þýðir að Ísland verður númer 16 á sviðið af 25 löndum. Lífið 26. maí 2010 10:45
Eurovision: Gríska goðið fílar Ísland Við spjölluðum við söngvarann og lagahöfundinn Giorgos Alkaios, fulltrúa Grikklands í Eurovisionkeppninni, eftir lokaæfinguna í gærdag. Við spurðum gríska goðið út í atriðið hans og hvernig honum líst á íslenska hópinn. Grikkinn komst upp úr fyrri undanúrslitakeppninni með lagið OPA sem fram fór í Telenor höllinni í Osló í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 09:30
Eurovision: Hera hágrét - myndband Hera Björk grét eins og fegurðardrottningarnar þegar úrslitin voru kynnt í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 06:30
Eurovision: Fjölmiðlabann Heru Örlygur Smári lagahöfundur framlags Íslands í Eurovision og Kristjana Stefánsdóttir söngkona veittu okkur viðtal eftir æfinguna fyrir utan Telenor höllina í gærdag. Lífið 26. maí 2010 05:30
Eurovision: Í sigurvímu á blaðamannafundi eftir keppni Hera, sem var í sigurvímu eins og allir í íslenska Eurovisionhópnum, var ekki lengi að svara á léttu nótunum aðspurð hvort hún persónulega stoppaði eldgosið á Íslandi. Lífið 26. maí 2010 01:00
Eurovision: Símkerfið tilbúið fyrir átökin Búist er við miklu álagi á íslenska símkerfið í kvöld enda eru Íslendingar jafnan manna duglegastir að taka þátt í kosningunni í Eurovision. Lífið 25. maí 2010 17:45
Eurovision: Tilbúin fyrir stóru stundina - myndir Hera Björk og Örlygur Smári höfundar lagsins Je Ne Sais Quoi eru ánægð með síðustu æfinguna sem fram fór í Telenor höllinni í Osló dag. Í kvöld flytur Hera ásamt söngvurum lagið í beinni útsendingu í fyrra undanúrslitakvöldi Evrópusöngvakeppninnar sem hefst klukkan 19:00 í kvöld. Sautján lög verða flutt og komast tíu lög áfram í úrslitakeppnina á laugardag. Skoða má Heru Björk og hennar fólk í myndasafninu en þau verða síðust á svið í kvöld. Lífið 25. maí 2010 16:45
Eurovision: Sigmar þulur er bjartsýnn - myndband Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður trúir því eins og íslenska þjóðin að Hera Björk og hennar föruneyti komist áfram í aðalkeppnina sem er á laugardaginn næsta. Lífið 25. maí 2010 15:30
Eurovison: Kjóllinn geymdur á öruggum stað Við kíktum í morgun á hótelið þar sem íslenski hópurinn dvelur. Þar hittum við Emilíönu Tómasdóttur hárgreiðslukonu, Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, Elínu Reynisdóttur förðunarfræðing og Birnu Gyðu Björnsdóttur danshöfund. Lífið 25. maí 2010 12:30
Eurovision: Fær enga athygli í Osló - myndband Örlygur Smári segist ekki vera kominn til Noregs til að baða sig í athygli. Hann er ánægður með að fókusinn sé á Heru. Lífið 25. maí 2010 11:00
Samstilltur Eurovision hópur - myndband Meðfylgjandi myndband sýnir hópinn skunda í rigningunni í gær í rútuna á leið þeirra í Telenor höllina í Osló. Lífið 25. maí 2010 10:00
Eurovisionkveðja frá Osló - myndband „Við erum að fara upp á herbergi með smá pizzu áður en við förum á æfingu núna í kvöld í Telenor-höllinni," sagði Pétur Örn Guðmundsson söngvari sem var með fangið fullt af pizzum þegar við hittum hann og söngkonurnar Heiðu Ólafs og Ernu Hrönn á Radisson hótelinu í Osló í gærkvöldi. Þá senda söngvararnir Íslendingum hlýja Eurovisionkveðju í meðfylgjandi myndskeiði. Hera Björk á rauða dreglinum. Lífið 25. maí 2010 06:00
Hera Björk stelur senunni í Osló - myndir Opnunarhátíð Eurovisionkeppninnar var haldin hátíðleg í Ráðhúsi Oslóar í gær þar sem norski dúettinn Bobbysocks söng meðal annars lagið La det swinge við mikinn fögnuð viðstaddra. Hera Björk fékk gríðarlega mikla athygli fjölmiðla þegar hún mætti á rauða dregilinn. Lífið 24. maí 2010 20:03
Eurovision-hópurinn vel stemmdur fyrir lokarennslin - myndir Örlygur Smári er bjartsýnn og segir einfaldleika íslenska atriðisins gera það að verkum að myndvinnslan er fyrsta flokks. Lífið 24. maí 2010 13:00
Kjóll Jóhönnu Guðrúnar vakti athygli á stóra sviðinu Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún mun klæðast í forkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld vakti mikla athygli á æfingum í Moskvu í gær. Mikil leynd hefur hvílt yfir honum en það er fatahönnunartvíeykið Andersen & Lauth sem á heiðurinn að honum. Tíska og hönnun 8. maí 2009 09:00
Alíslenskt undanúrslitakvöld Annað undanúrslitakvöldið í Eurovisionforvalinu brestur á eftir Spaugstofuna á laugardaginn. Okkur er boðið upp á fjögur lög, það fyrsta, "Fósturjörð“, er eftir Einar Scheving. Einar hefur verið í fremstu röð íslenskra trommara lengi og vakti mikla athygli nýlega fyrir jazzplötuna Cycles. Lagið hans er dramatískur ættjarðaróður sem Páll Rósinkranz syngur hnarreistur. Lífið 15. janúar 2009 06:00
Sökuð um svindl í Eurovision "Við þurfum svo sem enga bakraddasöngvara. Ég er til dæmis svo kröftugur að ég gæti tekið þetta einn. Þótt þetta séu toppmenn í húsbandinu var þetta óþarfi og hugsað sem alger uppfylling,“ segir Egill Einarsson, Lífið 15. febrúar 2008 06:00
Euro-nördar gráta Haffa Haff Eurovision-nördar hafa látið í ljós óánægju sína með að Haffi Haff komst ekki áfram um síðustu helgi. Tónlist 13. febrúar 2008 04:00
Haffi, Gröndal og jötnarnir Áfram heldur Eurovisionmaraþonið í Laugardagslögum Rúv. Í kvöld er komið að fjórða og síðasta undanúrslitakvöldið og að því yfirstöðnu verður loksins ljóst hvaða átta lög keppa til sigurs á stóra úrslitakvöldinu 23. febrúar. Tónlist 9. febrúar 2008 03:00
Partí-Hanz rindill við hlið helmassaðs Gaz-manns Mercedes Club með syngjandi vöðvabúnt í viðbragðsstöðu. Lífið 9. janúar 2008 06:00