Þúsundir barna bíða mánuðum saman Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. september 2026 19:00 Salvör Nordal er umboðsmaður barna. Vísir/Einar Yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur um biðlista sýna að staðan hefur víða versnað. Þá fjölgar börnum sem eru viðriðin ofbeldis- og kynferðisbrotamál.
Umboðsmaður barna birtir í tíunda skipti upplýsingar um bið barna eftir þjónustu. Mat umboðsmannsins er að stjórnvöld þurfi að grípa til aðgerða með það að markmiði að koma í veg fyrir að börn þyrftu að bíða eftir þjónustu sem þau þarfnist og eigi rétt á. „Nýjustu tölur sýna að staðan hefur víða versnað og að þúsundir barna bíða mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu,“ segir í tilkynningu frá umboðsmanni. „Það er til að mynda ótækt að biðtími barna eftir heilbrigðisþjónustu samræmist ekki þeim almennu viðmiðum sem embætti landlæknis hefur sett um biðtíma en samkvæmt þeim á skoðun hjá sérfræðingi að fara fram innan 30 daga frá því að beiðni er lögð fram og meðferð að fara fram innan 90 daga frá greiningu.“ Biðlistar í greiningu lengjast Hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2705 börn eftir greiningu og hafa 2591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Frá því í febrúar hafa 252 börn bæst á listann en börnum sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði hefur fjölgað um 691. 744 börn eru á biðlista hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, 697 þeirra hafa verið á lista í yfir þrjá mánuði. Til samanburðar voru 738 börn sem biðu eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna þegar umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum í desember 2021. Í tilkynningunni er tekið fram að ábendingar hafi borist um að bið eftir þjónustu hjá þessum tveimur áðurnefndu miðstöðvum varpi aðeins ljósi á hluta þess tíma sem börn þurfi að bíða eftir greiningu fyrir til dæmis ADHD eða einhverfu. Umboðsmaður óskaði því eftir fjölda á biðlista hjá tuttugu stærstu sveitarfélögunum en þær upplýsingar hafi enn ekki borist. Hundruð barna bíða eftir sálfræðiþjónustu „Staðan hefur einnig versnað hjá göngudeild BUGL,“ segir í tilkynningunni. 42 eru á biðlista þar og 31 þeirra hefur beðið í yfir þrjá mánuði sem er meðalbiðtími. Í síðustu athugun í febrúar hafði ekkert barn beðið lengur en þrjá mánuði og því er um töluverða aukningu að ræða. Heilbrigðisstofnun Norðurlands býður upp á sálfræðiþjónustu og eru 206 börn á biðlista þar. Þegar litið er til höfuðborgarsvæðisins eru 153 börn á biðlista eftir sálfræðiþjónustu hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Meðalbiðtími á Norðurlandi er fjórtán mánuðir, eða 428 dagar, en á höfuðborgarsvæðinu er það 118 dagar. Hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands biðu 102 börn í byrjun september en tólf hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands. Ekkert barn bíður eftir meðferð á Stuðlum, Lækjarbakka, SÓK, Esju eða Bjargey og afar fá börn bíða eftir úrræði BOFS, MST-þjónustu eða styrktu fóstri. Fjölgun mála hjá lögreglu áhyggjuefni „Það er mikið áhyggjuefni hversu mikil aukning hefur orðið á því að börn hafi stöðu sakbornings eða brotaþola í ofbeldisbrotamálum,“ segir í tilkynningunni. 44 börn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli eftir fyrstu sex mánuði ársins en ellefu börn stöðu sakbornings. 103 hafa stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamáli og 137 stöðu brotaþola. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2019 þegar tuttugu börn höfðu stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli og 94 í ofbeldismáli. Þá hafði 91 barn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli og 104 í ofbeldisbrotamáli. „Þetta er alvarleg þróun og það er mikilvægt að stjórnvöld greini hvaða orsakir liggja til grundvallar þessari aukningu til þess að hægt sé að grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða.“ Í lok ágúst voru ellefu börn sem biðu eftir meðferð í Barnahúsi vegna brota sem þau höfðu orðið fyrir en ekkert þeirra hafði beðið lengur en þrjá mánuði.
Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Heilbrigðismál Einhverfa ADHD Réttindi barna Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira