Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Atli Ísleifsson skrifar 26. júní 2026 07:34 Inga Sæland er mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið telur að gagnrýni Sambands íslenskra sveitarfélaganna á breytingu sem gerð var á reglugerð um um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir, eigi ekki við rök að styðjast.
Sveitarfélögin sökuðu í vikunni ríkið um að ganga á bak orða sinna og brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaganna um ábyrgðarskiptingu varðandi börn með fjölþættan vanda sem undirritað var á síðasta ári. Sveitarfélögin vilja meina að með nýrri reglugerð hafi ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem falli undir samkomulagið, en þau hafi að jafnaði verið um 35 á landinu öllu. Settar hafi verið „kerfislegar skorður sem útiloki börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið standi straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga um þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu“. Í tilkynningu á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins segir hins vegar að ráðuneytið telji forsendur skýrar að gagnrýnin eigi ekki við rök að styðjast. Vísað er í ýmsar skýrslur auk þess að komið hafi fram í samtölum og á formlegum fundum milli fulltrúa ríkis og sveitarfélaga sameiginlegur skilningur um að börn sem hafi mjög mikla þjónustuþörf vegna fötlunar sinnar í daglegu lífi falli ekki undir samkomulagið sum undirritað var 19. mars 2025. „Grunnþjónustuþörf þessara barna leiðir fyrst og fremst af fötlun og langvarandi stuðningsþörfum. Ef sá hópur væri á ábyrgð ríkisins væri það annars konar og mun víðtækara samkomulag en það sem gert var 19. mars 2025. Slík túlkun samræmist hvorki þeim skýrslum sem unnar hafa verið um málaflokkinn né þeim áralöngu viðræðum sem fóru fram milli ríkis og sveitarfélaga áður en samkomulagið var gert,“ segir á vef ráðuneytisins.
Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Börn og uppeldi Félagsmál Heilbrigðismál Tengdar fréttir Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga undrast vinnubrögð ríkisins við reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Stjórnin telur að með reglugerðinni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 2025. 24. júní 2026 13:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga undrast vinnubrögð ríkisins við reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Stjórnin telur að með reglugerðinni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 2025. 24. júní 2026 13:00