Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt Lovísa Arnardóttir skrifar 4. nóvember 2026 11:13 Þorbjörg Sigríður mælti fyrir frumvarpi sínu um vændi í gær og þingmenn ræddu það. Samsett Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á vændisákvæði hegningarlaga á Alþingi í gær. Umræða var á þingi um gagnsemi aðgerðanna, gögnin sem styðja refsiaukninguna og öryggi þeirra sem selja vændi. Ráðherra segir að með refsiaukningu eigi að tryggja fælingarmátt. Erfitt sé að útrýma vændi eins og öðrum afbrotum en breytingin eigi að tryggja að betur verði komið í veg fyrir það.
Vændiskaup hafa verið refsiverð á Íslandi frá árinu 2009. Fyrstu vændiskaupabrotum er í dag að jafnaði lokið með 200 þúsund króna lögreglustjórasekt. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að frumvarpinu sé ætlað að draga úr eftirspurn eftir vændi, sporna gegn mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri brotastarfsemi og kynferðisbrotum. Sambærileg breyting hafi verið gerð á sænsku hegningarlögunum á síðasta ári. Í frumvarpinu er lagt til að sektir verði afnumdar sem refsing fyrir vændiskaup. Þannig verði ekki lengur heimilt að ljúka vændiskaupamálum með lögreglustjórasekt, heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. „Vændiskaupendur hafa hingað til notið ákveðinnar sérmeðferðar innan réttarvörslukerfisins og getað sloppið með sekt fyrir brot sín. Það er óásættanlegt. Við vitum að vændi og mansal eru nátengd og verðum að beina sjónum að eftirspurninni sem heldur starfseminni gangandi,“ segir Þorbjörg í tilkynningu um málið á vef ráðuneytisins. Jafnframt er lagt til að hámarksrefsing fyrir brot sem beinast gegn börnum verði þyngd úr tveggja ára fangelsi í fjögurra ára fangelsi. Þá geti gáleysi um aldur barns einnig varðað refsingu samkvæmt ákvæðinu og að skýrt verði tekið fram að vændiskaup séu refsiverð þótt annar maður greiði fyrir þau. Þá er í tilkynningu ráðuneytisins einnig fjallað um tengsl vændis við skipulagða brotastarfsemi og að grunur sé um að stór hluti kvenna sem auglýstar eru í vændi séu þolendur mansals. Öryggi seljenda og glæpavæðing Nokkur umræða var um málið á þingi í gær. Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, spurði dómsmálaráðherra, til dæmis, hvort hugsað hefði verið um alla þá sem mögulega geti borið „skarðan hlut frá borði“ við þessa breytingu. Það hafi komið fram síðustu ár í rannsóknum að sænska leiðin hafi meira skaðað en verndað kynlífsverkafólk og þolendur að því leytinu til að starfsemin sé þvinguð til að vera glæpavæddari en hún var og þar af leiðandi jaðarsettari. Hildur benti einnig í þessum samhengi á skert aðgengi kynlífsverkafólks að heilbrigðisþjónustu og löggæslu og að kynlífsverkafólk velti því fyrir sér hvoru megin laganna það stendur. Rauða regnhlífin, hagsmunasamtök kynlífsverkafólks á Íslandi, hefur ályktar um málið og skrifað umsögn um frumvarpið og skrifuðu um það grein á Vísi í vikunni. Hildur spurði hvort dómsmálaráðherra hefði eitthvað meira „en trú og von“ um að með breytingunum væri tryggt að þolendur yrðu ekki enn jaðarsettari og viðkvæmari. Ráðherra svaraði því og sagðist þekkja málaflokkinn ágætlega. Hún hefði fundað með Rauðu regnhlífinni og það væri hópur fólks í þessum sporum en sá hópur spegli ekki allan þann hóp sem starfi við vændi. „Ég viðurkenni að hugur minn, eða fókus, er ekki síst á þeim sem búa við þær aðstæður að hafa ekki valið sér vændi að starfsvettvangi,“ sagði hún og að rannsóknir bentu til þess að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem stundi vændi sé í þeirri stöðu. Hún spurði Hildi hvort hún væri að tala fyrir lögleiðingu vændis en Hildur svaraði því ekki og benti þess í stað á að í ráðleggingum GRETU, eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali, væri ekki talað um harðari refsingar gegn vændiskaupendum. Þorbjörg segir að við vinnslu frumvarpsins hafi verið horft til reynslu Stígamóta, reynslu kvenna og stúlkna sem hafi verið í vændi, afleiðinga þess og radda þolenda mansals. „Vændi er í dag refsivert, við vitum hvernig vændismarkaðurinn opererar, en nú erum við að reyna að ná betur fram en verið hefur að varnaðaráhrifin nái fram tilgangi sínum í því að nöfn sakborninga verði birt.“ Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bað í sinni ræðu um gögn til að styðja þessa refsiaukningu og bebenti að markmið laganna 2009 hafi verið að draga úr vændi sem hafi ekki tekist miðað við gögn sem eru til. Raunhæft að útrýma vændi? Ráðherra sagði gögnin ekki einhlít en það verði einnig að horfa til þess hvort að rannsókn málanna hafi verið í forgangi hjá lögreglu, hvort þau hafi verið frumkvæðismál og hvort það sé ástæða til að breyta því. Hún sagði frumvarpið einn lið í aðgerðum stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, spurði ráðherra hvort hún raunverulega teldi það raunhæft að útrýma vændi eða draga úr því. Hún spurði einnig hvort til greina kæmi, fyrst stór hluti þeirra sem selja vændi er útlendingar, að efla löggæslu á landamærum og reyna að skima betur fyrir brotahópum sem koma til landsins í þessum tilgangi. Ráðherra sagði að við því að það yrði að horfa á vændi eins og önnur afbrot. Refsingar útrými ekki endilega afbrotum en þær hafi fælingarmátt. Þá sagði hún alls konar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi eins og að styrkja landamæri, fjölga lögreglumönnum og að það komi frumvarp síðar í haust. Umræðan var lengri og er hægt að hlusta á hana hér.
Vændi Mansal Kynbundið ofbeldi Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Vill afnema sektir við vændiskaupum Dómsmálaráðherra hyggst afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað komi í staðinn. 7. júlí 2026 14:43 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Vill afnema sektir við vændiskaupum Dómsmálaráðherra hyggst afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað komi í staðinn. 7. júlí 2026 14:43