Íslenski boltinn

Sjáðu marka­veislu Vals­manna og vara­mannaþrennu Kristó­fers bjarga Blikum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristófer Ingi Kristinsson fagnar einu þriggja marka sinn í gær.
Kristófer Ingi Kristinsson fagnar einu þriggja marka sinn í gær. Sýn Sport

Breiðablik og Valur nálguðust Víkinga á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi með góðum útisigrum. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.

Valsmenn unnu 5-2 sigur á KA fyrir norðan þar sem Valsmenn náðu tvisvar í leiknum að skora tvö mörk á tveimur mínútum.

Adam Ægir Pálsson, Tómas Bent Magnússon, Albin Skoglund og Stefán Gísli Stefánsson skoruðu fyrir Val og eitt markið var sjálfsmark. Bjarni Aðalsteinsson og Hans Viktor Guðmundsson skoruðu fyrir KA.

Valsmenn unnu 6-1 sigur á KR og hafa því skorað ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum sínum.

Benedikt V. Warén kom Stjörnunni í 1-0 á móti Blikum á 9. mínútu en Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og var búinn að skora þrjú mörk og gjörbreyta leiknum átján mínútum síðar. Aron Bjarnason skoraði fjórða markið og kórónaði sigurinn.

Hér fyrir neðan má sjá öll tólf mörkin úr leikjum gærkvöldsins.

Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og Breiðabliks
Klippa: Mörkin úr leik KA og Vals



Fleiri fréttir

Sjá meira


×