Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 0-3 | Blikar á toppnum næsta mánuðinn Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 21. júní 2025 13:16 Blikar fögnuðu þremur mörkum í dag. vísir/Viktor Breiðablik vann öruggan 3-0 sigur gegn Stjörnunni í Garðabæ í dag, í síðustu umferð Bestu deildar kvenna fyrir EM-hléið sem nú tekur við næsta mánuðinn. Sigurinn kom Blikum upp fyrir Þrótt og aftur á toppinn. Blikar byrjuðu af krafti strax frá fyrstu mínútu þegar Birta Georgsdóttir fékk boltann hátt uppi á velli Stjörnukvenna og kom honum fyrir markið þar sem Agla María Albertsdóttir var mætt en hún náði ekki að koma boltanum á rammann. Agla María Albertsdóttir kemur boltanum fyrir markið.vísir/Viktor Blikakonur voru duglegar að sækja en voru þrívegis dæmdar rangstæðar áður en fyrsta markið kom eftir aukaspyrnu Öglu Maríu Albertsdóttir. Boltinn féll í teiginn og skoppaði fyrir Sammy Smith sem tók boltann viðstöðulaust og kom honum í netið. Breiðablik var með nokkra yfirburði í fyrri hálfleik en Stjörnukonur áttu nokkrar góðar sóknir en náðu ekki að gera sér mat úr þeim. Birta Georgsdóttir með boltann í Garðabæ í kvöld.vísir/Viktor Stjörnukonur komu fullar eldmóðs út í seinni hálfleik og náðu nokkrum góðum sóknum. Það dugði þó ekki til. Á 53. mínútu bætti Birta Georgsdóttir við öðru marki Blika eftir að Betsy Hassett missti boltann klaufalega frá sér á eigin vallarhelmingi. Stuttu síðar skoraði Berglind Björg Þorvaldsdóttir þriðja mark Blika eftir skemmtilega og hraða sókn. Fleiri urðu mörkin ekki og fara Blikar inn í landsleikjahléið með 25 stig á toppi deildarinnar ásamt Þrótti. Berglind Björg Þorvaldsdóttir með boltann í dag. Hún skoraði eitt markanna og er markahæst í deildinni.vísir/Viktor Atvik leiksins Á 41. mínútu fellur Birna Jóhannsdóttir í teig Blika eftir tæklingu Heiðu Ragneyjar. Ásmundur dæmdi ekkert á þetta og það var mjög erfitt að sjá í endursýningu hvor þeirra náði boltanum. Hefði auðveldlega geta fallið Stjörnumegin og víti dæmt. Stjörnur og skúrkar Birta Georgsdóttir er virkilega öflug sóknarlega fyrir Blika og átti virkilega góðan leik. Betsy Hassett missir boltann klaufalega í öðru marki Blika. Fyrirliðinn Agla María Albertsdóttir með hornspyrnu.vísir/Viktor Stemning og umgjörð Það þarf varla að segja það en umgjörðin hér í Garðabæ er alltaf uppá 10. Dómarar Ásmundur Þór Sveinsson, Guðni Freyr Ingvason og Breki Sigurðsson dæmdu leikinn þokkalega. Eina vafamálið sem er mér í huga gerðist á 42. mínútu þegar Birna Jóhannsdóttir féll í teig Blika eftir tæklingu Heiðu Ragneyjar. Það er mjög erfitt að sjá á endursýningunni hvor þeirra átti snertinguna á boltann og hvort Stjarnan hefði átt að fá víti. Samantha Smith skoraði fyrsta mark Breiðabliks í dag.vísir/Viktor Besta deild kvenna Stjarnan Breiðablik