Uppgjörið: ÍBV - FH 2-1 | Dramatískt sigurmark í Eyjum Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 29. maí 2025 15:32 Eyjamenn lönduðu þremur stigum í dag. Vísir/Lýður Það var hátíð í Vestmannaeyjum þegar ÍBV tók á móti FH á Þórsvelli í 9.umferð Bestu deildar karla í kvöld. Eyjamenn sem höfðu ekki unnið í síðustu fjórum leikjum og sátu í 10. sæti fyrir leikinn, náðu loks að snúa við blaðinu með dramatískum 2-1 sigri í dag. Leikurinn fór vel af stað og voru FH-ingar sterkari aðilinn framan af. Þeir áttu góða spilkafla, á meðan ÍBV átti í erfiðleikum að tengja sendingar og margar sendingar þeirra fóru forgörðum. Á 29. mínútu skoraði Úlfur Ágúst Björnsson fyrsta mark leiksins eftir mistök hjá Marcel Zapytowski í marki ÍBV. Kjartan Kári Halldórsson komst inn í sendingu Marcel og lagði boltann á Úlf sem tók boltann í fyrsta og skrúfaði boltann í netið. Nokkuð einkennandi fyrir fyrsta hálfleik ÍBV þar sem leikmenn liðsins áttu erfitt með nákvæmar sendingar og misstu boltann frá sér í óþarfa. Á 42. Mínútu féll Hermann Þór Ragnarsson í teig FH-inga eftir að Böðvar Böðvarsson hljóp utan í hann. ÍBV menn hefðu viljað sjá vítaspyrnu þarna en Ívar Orri dómari leiksins dæmdi hornspyrnu. Seinni hálfleikur var svo svipaður og fyrri hálfleikur þar sem FH náði góðum spilköflum en náðu ekki að skapa sér hættuleg færi. Á 63. mínútu kom svo seinna mark leiksins eftir langa fyrirgjöf frá Felix Erni Friðrikssyni sem Böðvar Böðvarsson skallar út í teig og Hermann Þór Ragnarsson þrumaði boltanum í netið. ÍBV sigldi svo sigrinum heim á 92. mínútu þegar Sverrir Páll Hjaltested skoraði eftir langt innkast frá Felix Erni Friðrikssyni og tryggði ÍBV sigurinn. Atvik leiksins Marcel Zapytowski ákvað að fara í smávegis skógargöngu þegar hann reyndi að hreinsa boltann í burtu fyrir utan vítateig sinn. Kjartan Kári var fljótur að lesa boltann og renndi boltanum á Úlf sem skrúfaði boltann listilega í netið. Stjörnur og skúrkar Úlfur Ágúst Björnsson og Kjartan Kári Halldórsson voru öflugir hjá FH-ingum þó svo að lítið hafi sést til þeirra síðarnefnda í seinni hálfleik. Alex Þór Hilmarsson og Þorlákur Breki Baxter voru sprækir hjá ÍBV og Vicente Valor einnig sem kom inn á á 64. mínútu. Skúrkur dagsins var Marcel Zapytowski sem gaf FH-ingum í raun og veru markið sitt eftir hrikalega sendingu. Hann átti svo því miður fleiri sendingar sem voru ekki nógu góðar. Stemmning og umgjörð Það var ekki jafn mikil stemning í þessari brekku og í dalnum. Það mætti svo alveg ræða aðeins um vallarklukku vallarins og strætóskýlin sem eru notuð fyrir varamannabekkinn. Dómarar Ívar Orri Kristjánsson, Birkir Sigurðarson og Eysteinn Hrafnkelsson dæmdu leikinn í dag á Þórsvelli í Vestmannaeyjum. Mjög fínt flæði á leiknum, engir umdeildir dómar að mínu mati. Besta deild karla ÍBV FH Íslenski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn