Upp­gjörið: Breiða­blik - ÍA 1-4 | Skaga­menn völtuðu yfir Blika

Hjörvar Ólafsson skrifar
Viktor Jónsson skoraði eitt  marka Skagamanna í leiknum en hefði að ósekju mátt skora meira.  
Viktor Jónsson skoraði eitt  marka Skagamanna í leiknum en hefði að ósekju mátt skora meira.   Vísir/Anton

ÍA vann sannfærandi sigur, 1-4, þegar liðið sótti Breiðablik heim í níundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Fyrri hálfleikur var heldur betur fjörugur og skemmtilegur en eftir rólega byrjun þar sem Blikar voru meira með boltann og Skagamenn vörðust fimlega af þolinmæði opnuðust allar flóðgáttir hjá gestunum af Skaganum.

Erik Tobias Sandberg hóf markaveisluna þegar hann potaði boltanum í netið af stuttu færi eftir tæplega hálftíma leik. Nokkrum mínútum síðar Ómar Björn Stefánsson búinn að tvöfalda forystu Skagamanna. Ómar Björn stýrði þá boltanum í markið af stuttu færi.

Varnarlína Blika var í miklum vandræðum með hraða Ómars Björns í þessum leik en það var einmitt hraði og kraftur framherjans sem honum upp að endamörkum í þriðja marki Skagaliðins. Ómar Björn lagði boltann á Viktor Jónsson sem skoraði auðvelt mark.

Blikar löguðu stöðuna skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Kristófer Ingi Kristinsson nældi í vítaspyrnu sem Tobias Thomsen skilaði rétta leið. Hlynur Sævar Jónsson var brotlegur í vítaspyrnunni sem Árni Marínó Einarsson var nálægt því að verja.

Staðan 3-1 eftir viðburðarríkan og skemmtilegan fyrri hálfleik.

Skagamenn hefðu getað unnið leikinn stærra

Breiðablik varð einum leikmanni færri á 70. mínútu leiksins þegar Arnór Gauti Jónsson fékk að líta sitt annað gula spjald og þar af leiðandi rautt fyrir að brjóta á Viktori Jónssyni.

Viktor fékk þrjú upplögð marktækifæri til þess að bæta við mörkum fyrir Skagamenn á síðasta stundarfjórðungi leiksins. Gísli Laxdal Unnarsson sem kom inná sem varamaður um miðjan seinni hálfleikinn rak síðasta naglann í líkkistu Blika með marki sínu í uppbótartíma seinni hálfleiks. 

Niðurstaðan 1-4 sigur Skagamanna sem binda þar með enda á þriggja leika taphrinu sína í deildinni á meðan Blikar voru að tapa sínum öðru deildarleik í röð.

Blikar eru nú fjórum stigum á eftir Víkingi sem trónir á toppi deildarinnar með 20 stig. Skagamenn náðu hins vegar ekki að spyrna sér af botni deildarinnar með þessum sigri en ÍA, KA og ÍBV eru á botninum með níu stig hvert lið.

Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks.Vísir/PAWEL

Halldór: Linur varnarleikur veldur mér miklum áhyggjum

„Fyrstu 20 mínútur leiksins voru bara flottar og það leit allt út fyrir bara ánægjulega kvöldstund. Svo komast þeir yfir og það veldur mér vonbrigðum hvernig við bregðumst við því að lenda undir. Það var heilmikið eftir af leiknum og óþarfi að fara út úr leikplaninu okkar og fá á okkur tvö ódýr mörk í kjölfarið,“ sagði Halldór að leik loknum.

„Það er sama uppi á tengingnum í þessum leik og í tapinu á móti FH í síðustu umferð. Við eigum í miklum vandræðum með að verjast fyrirgjöfum, löngum boltum og háum boltum. Andstæðingurinn má varla komast inn í vítateig okkar þá er hann búinn að skora. Þetta er áhyggjuefni og við þurfum að laga þetta í hvelli,“ sagði Halldór enn fremur.„Við erum klárlega að skapa nógu mikið af stöðum og færum til þess að skora fleiri mörk þannig að sóknarleikurinn veldur mér ekki áhyggjum. Það hversu linir við erum í varnarleiknum veldur mér hins vegar hugarangri,“ sagði þjálfari Blika.

„Mér fannst við eiga góða möguleika á að koma okkur inn í leikinn með marki fram að því að við urðum manni færi um miðjan seinni hálfleik. Eftir það var brekkan aftur á móti brattari og því miður fengum vði ekkert út úr þessum leik,“ sagði Halldór.

„Að mínu áttum við að fá víti þegar Ágúst Orri var felldur í fyrri hálfleik og svo fékk Valgeir olnbogaskot frá Ómari Birni sem hefði mátt taka öðruvísi á en var gert,“ sagði hann um ákvarðanir Twana Khalid Ahmed, dómara leiksins, í þessum leik.

Dean Martin: Vinnusemi og dugnaður skilaði þessum sigri

„Það var gríðarlega vinnusemi, dugnaður og hlaup í þessum leik hjá leikmönnum Skagaliðsins og þú uppskerð alltaf eins og þú sáir þegar það er lögð svona mikil vinna í verkefnið. Það er kærkomið að fá verðlaun fyrir frammistöðuna,“ sagði Dean Martin sem stýrði Skagamönnum í fjarveru Jóns Þórs Haukssonar sem tók út leikbann í þessum leik. 

„Við spiluðum vel á móti Víkingi í síðasta leik en fengum ekkert fyrir það. Þessi leikur var áframhald á flottri frammistöðu okkar og nú fengum við þrjú stig sem er ánægjulegt. Við þurfum svo bara að halda áfram á þessari braut,“ sagði Deano þar að auki. 

„Við náðum að útfæra leikplanið okkar fullkomlega og við héldum okkur algjörlega við það sem lagt var upp með sem er mjög jákvætt. Við erum góðir og erfiðir við að eiga þegar við erum þéttir í varnarleiknum, duglegir og kraftmiklir í sóknarleiknum,“ sagði hann.

Dean Martin í leik með Skagamönnum á sínum tíma. Mynd/Daníel

Atvik leiksins

Erfitt er að pikka út eitt atrði í þessari rússibanareið sem þessi leikur var, þá einkum og sér í lagi fyrri hálfleikur. Segja má að saga leiksins hafi verið hversu greiða leið Skagamenn áttu upp kantana í skyndisóknum sínum. Skagamenn hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum úr vel útfærðum upphlaupum sínum þar sem hraði og kraftur einkenndu aðgerðir gestanna.

Stjörnur og skúrkar

Ómar Björn ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti en hann lagði upp eitt mark og skoraði annað. Erik Tobias Sandberg var öflugur í hjarta varnarinnar og Haukur Andri Haraldsson var mótórinn sem knúði áfram miðsvæðið hjá Skagaliðinu.

Oliver Stefánsson var öflgur í vinstri kantbakvarðarstöðunni og Jón Gísli Eyland Gíslason var svo með áætlunarferðir upp hægri kantinn í seinni hálfleik og skapaði fjölda færi fyrir samherja sína. Viktor Jónsson var svo síógnandi og hefði hæglega skorað meira en eitt mark að þessu sinni. 

Dómarar leiksins

Það var í nógu að snúast hjá dómurum leiksins þeim Twana Khalid Ahmed, Þórði Arnari Árnasyni, Bergi Daða Ágústssyni og Arnari Þór Stefánssyni. Þeir félagarnir létu leikinn flæða vel og voru með flestar stóru ákvarðanir sína á tæru.

Ágúst Orri Þorsteinsson gerði tilkall til vítaspyrnu í fyrri hálfleik og þar hefði ég bent á punktinn en Twana var ekki á sama máli. Ómar Björn hefði svo að mínu viti átt að fá rautt spjald þegar hann gaf Valgeiri Valgeirssyni olnbogaskot undir lok fyrri hálfleiks.

Dómararnir fá sjö í einkunn fyrir sín störf.

Stemming og umgjörð

Það voru tæplega 800 manns sem lögðu leið sína í Kópavoginn á þennan leik en stemmingin var súr hjá heimamönnum sem voru ekki ánægðir með störf sinna manna og dómara leiksins. Skagamenn voru að sama skapi gulir og glaðir. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira