Haukur meistari í Rúmeníu Sindri Sverrisson skrifar 2. maí 2025 15:53 Haukur Þrastarson kom til Búkarest í fyrra en mun spila í Þýskalandi á næstu leiktíð. EPA-EFE/GEORGI LICOVSKI Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson varð í dag meistari þegar lið hans Dinamo Búkarest tryggði sér sigur í rúmensku úrvalsdeildinni í handbolta.
Leikmenn Dinamo vissu að með sigri gegn Potaissa Turda á heimavelli í dag yrði bilið á milli liðanna of langt fyrir gestina til að brúa. Sú varð raunin. Dinamo náði snemma afgerandi forskoti og hélt því til loka. 42-30 lokatölur, Dinamo í vil, og titillinn vís. Þrjú stig eru gefin fyrir sigur í leik í rúmensku deildinni og er Dinamo Búkarest núna með 70 stig, tólf stigum á undan Potaissa Turda þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Potaissa Turda hefði því þurft sigur í dag og í síðustu tveimur umferðunum, og treysta á að Dinamo Búkarest tapaði sínum leikjum. Yfirburðir Dinamo hafa verið algjörir í deildinni í vetur en liðið hefur unnið 22 af 23 leikjum og gert eitt jafntefli. Haukur var ekki með í dag en hefur verið öflugur fyrir Dinamo Búkarest í vetur. Eins og staðfest var í mars mun Selfyssingurinn svo yfirgefa Rúmeníu í sumar og halda til Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.
Handbolti Tengdar fréttir Snorri Steinn um Hauk: Mér finnst hann hafa valið rétt Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, fagnar félagsskiptum landsliðsmannsins Hauks Þrastarson sem er að fara frá Rúmeníu til þýska stórliðsins Rhein-Neckar Löwen. 15. mars 2025 13:33 Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Keflavík - Grindavík | Bikar í boði í Smáranum Körfubolti Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Fleiri fréttir Sara Dögg með þrettán mörk og 93 prósent skotnýtingu Náðu ekki körfunum upp og þurftu að fresta leik í Olís-deild karla Toppliðið lagði Hauka örugglega að velli Sigvaldi skoraði fjögur mörk í stórsigri Kolstad Einar fagnaði eftir Íslendingaslag Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Sjá meira
Snorri Steinn um Hauk: Mér finnst hann hafa valið rétt Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, fagnar félagsskiptum landsliðsmannsins Hauks Þrastarson sem er að fara frá Rúmeníu til þýska stórliðsins Rhein-Neckar Löwen. 15. mars 2025 13:33