Uppgjörið: ÍR - Álftanes 75-94 | Sjóðheitir heimamenn lentu á vegg Haraldur Örn Haraldsson skrifar 30. janúar 2025 18:31 ÍR lenti á vegg í kvöld eftir gott gengi að undanförnu. vísir/anton
ÍR tók á móti Álftanes í Skógarseli í Bónus-deild karla fyrr í kvöld. Þetta var hörkuleikur sem hefði getað farið á báða bóga en á endanum vann Álftanes 75-94 eftir að þeir stækkuðu forskotið töluvert á lokamínútum leiksins. Leikurinn fór frekar hægt af stað hjá báðum liðum en eftir um fjögurra mínútna leik virtist sóknarleikur Álftnesinga vera kominn í gang. Það reyndist hinsvegar ekki alveg vera saga leikhlutans þar sem þá mundi líða rúmlega tvær mínútur af leiknum án þess að nokkurt lið skoraði stig. Það var svo á síðustu tveimur mínútum leikhlutans sem leikurinn lifnaði við. Justin James kom með alvöru troðslu fyrir gestina og þar á eftir keyrðu liðin upp og niður, og skiptust á að skora þangað til tíminn rann út. Staðan 14-23 eftir þennan leikhluta. Annar leikhluti var töluvert skemmtilegri sem heild en sá fyrri. Bæði lið virtust vera kominn í fínan gír sóknarlega, en þó greinilega Álftanes í meira stuði. Varnarleikurinn var hinsvegar á köflum bara ekki til staðar hjá báðum liðum. Justin James var frábær fyrir gestina í fyrri hálfleik og endaði með 19 stig, fimm fráköst og þrjár stoðsendingar. Staðan 33-49. Seinni hálfleikurinn byrjaði en ÍR virtist ekki vera komnir út á völl. Álftanes valtaði nefnilega yfir þá á fyrstu mínútum þriðja leikhlutans. Eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik voru þeir búnir að auka forskotið í 20 stig. Þá fyrst mættu ÍR-ingar til leiks en þeir gerðu það með krafti. Oscar Jorgensen og Jacob Falko voru að finna pláss og tíma í sínum aðgerðum. Þá hægt og bítandi fóru þeir að minnka forskotið. Staðan þegar einn leikhluti var eftir þá 61-69 og gríðarlega spennandi loka leikhluti í siglingu. ÍR hélt þá áfram með sitt áhlaup á Álftnesinga í fjórða leikhluta. Þeir náðu mest að minnka muninn í fimm stig en það var þegar um sex mínútur voru eftir af leiknum. Álftnesingar náðu hinsvegar að grípa í handbremsuna og stöðva þessa endurkomu hjá ÍR. Þeir keyrðu bara upp ákefðina og byggðu upp forskotið á nýjan leik á síðustu mínútum leiksins. Matej Kavas leikmaður ÍR missti þá stjórn á skapi sínu í lokinn og honum var vísað í sturtu. Leikar enduðu svo 75-94 í frábærum leik. Atvik leiksins Álftanes fær villu og körfu góða, setja svo vítið niður og koma muninum upp í 13 stig. Gríðarlega mikilvægt fyrir þá þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Þarna tryggðu þeir endanlega sigurinn. Stjörnur og skúrkar Justin James átti virkilega góðan leik fyrir Álftanes þar sem hann gerði 34 stig, var með níu stoðsendingar og fimm fráköst. David Okeke var einnig gríðarlega sterkur fyrir Álftanes þar sem hann fiskaði villu eftir villu inn í teig. Matej Kavas verður að teljast sem skúrkur í þessum leik þar sem hann gjörsamlega missti stjórn á skapi sínu við dómarana í lok leiks. Honum var vísað beint í sturtu, sem var hárrétt niðurstaða. Dómararnir Þetta var erfiður leikur að dæma, þar sem þetta var mjög fýsískur leikur og mikið af baráttum. Línan hjá dómurunum var hinsvegar ekki alveg jöfn fannst mér en í svona erfiðum leik er það líkast til skiljanlegt. Stemmning og umgjörð Mætingin í Skógarsel var nokkuð ágæt, en stemningin var eins og höllin væri full. Stuðningsmenn heimamanna voru töluvert fjölmennari og því heyrðist betur í þeim en það verður ekki tekið af hópi ungra stuðningsmanna Álftanes sem studdu sitt lið af krafti. Það var einnig gaman að sjá hvernig stuðningsmannahóparnir kölluðu hvort á annað, með léttum grínsöngvum fram og til baka. Umjgörðin var til fyrirmyndar og þá má sérstaklega minnast á öflugt starf starfsmanna og sjálfboða aðila sem sá virkilega vel um bæði áhorfendur, og einnig undirritaðan fréttamann. Kjartan Atli var sáttur.Vísir/Anton Brink Kjartan Atli Kjartansson þjálfari Álftanes var ánægður með sína menn eftir að þeir unnu ÍR í kvöld. Þetta var jafn leikur en hann segir að reynslan í sínum hóp hafi farið langt með að klára þennan leik. „Mér fannst við vera að ná því að búa til fín skot í kringum körfuna. Þannig ég segi kannski ekki að það hafi farið um mig. Ég var einmitt að segja við félaga mína hérna úr Breiðholtinu sem maður hefur mætt oft á parketinu fyrir leik, að það er svo gaman þegar lið endurspegla baklandið. Þetta ÍR lið gerir það rosa vel að endurspegla sitt bakland. Þeir berjast og gefast aldrei upp. Þannig ég er bara ánægður með að við höfum náð að standa það af okkur. Maður er ekkert í einhverri sólskins stemningu þegar þeir eru á einhverju ‘rönni’ eins og maður segir. Mér fannst við samt vera búa til fín færi og mér fannst við einnig eiga nokkra ása upp í erminni. Svo fannst mér við bara ná taktinum og sigla þessu heim nokkuð vel.‟ Sagði Kjartan. Álftanes virtist vera með tak á þessum leik lengi vel en í fjórða leikhluta náðu ÍR-ingar að minnka muninn niður í fimm stig. Þá svöruðu einfaldlega Álftnesingar og kláruðu leikinn mjög faglega. „Þetta er náttúrulega bara ofboðslega reynslumikill hópur og þeir eru náttúrulega bara vanir að fá svona áhlaup á sig, og standa það af sér. Þannig mér finnst það vera svona frumforsendan á því að við sigldum þessu heim. Við urðum talsvert meira beinskeyttari í sókninni og við fórum að ráðast á þá með meiri broddi. Justin var að finna David og Hauk mjög vel þegar þeir voru að sökkva inn á hann. Þannig þetta voru bara flottar ákvarðanir hjá okkur sóknarlega og svo bara læstist vörnin vel. Bara mjög flott frammistaða undir lokin og við gerðum vel í að klára þennan leik.” Sagði Kjartan. Líður öllum vel þegar hann er með boltan Justin James átti frábæran leik fyrir Álftanes í kvöld en Kjartan var sammála því og er virkilega ánægður með hann. „Þetta er gríðarlega mikill karakter. Hann er að dekka sterkustu sóknarmennina, hann og Hörður voru að skipta Jakob Falko á milli sín. Hann leggur sig mikið fram á báðum endum, og tekur góðar ákvarðanir með boltan. Ég held það líði öllum vel þegar hann er með boltann í höndunum því hann er mjög gjarn á að finna réttu lausnina. Hann er náttúrulega hár og með góða bolta meðferð, þannig hann sér vel yfir vörnina. Hann var virkilega flottur í kvöld og það er búið að vera stígandi í honum með hverjum leiknum.” Deildin er virkilega jöfn 0g með þessum sigri jafna Álftnesingar fjögur önnur lið af stigum. Þegar það eru ekki margir leikir af deildinni fram að úrslitakeppni er því hver leikur gríðarlega mikilvægur. „Þetta er alveg gríðarlega sérstök deild. Það er náttúrulega sagt í hverju einasta viðtali eftir alla leiki að þetta er ótrúlega jöfn deild en hún er það líka. Þetta er jafnasta deild í Evrópu. Það sem er svo mikilvægt og ég er búinn að vera segja er að þú verður bara að taka einn leik í einu, eina æfingu í einu. Þú mátt ekki vera að horfa of langt fram í tímann, bara halda fókus. Því það koma upp allskonar forsendur og þú getur ekki verið að plana fram í tíman. Þú bara vaknar á morgnana, reimir á því skóna, heldur áfram að vinna í því sem þú ert að vinna í og tekur einn dag í einu. Það er bara lykillin að þessu þegar deildin er svona jöfn. Missa aldrei sjón á verkefninu og þeirri stefnu sem liðið er á.” Borche Ilievski, þjálfari ÍR.vísir/anton brink Borche Ilievski þjálfari ÍR var svekktur en ánægður með ýmislegt hjá sínum mönnum í kvöld eftir að liðið hans tapaði fyrir Álftanes með 19 stigum. ÍR var nefnileg mjög nálægt því á tímapunkti að snúa taflinu við. „19 stiga munur er ekki í raun rétt úrslit miðað við hvernig leikurinn spilaðist, en leikar enduðu víst þannig. Við höfðum ekki styrkinn í að klára leikinn eins og við erum yfirleitt með. Við erum 16 stigum undir í hálfleik og náum að vinna okkur inn í leikinn þannig að það er fimm stiga munur þegar það eru um fimm mínútur eftir af leiknum. Við höfðum bara því miður ekki styrkinn í að klára leikinn. Það var tvennt mikilvægast í þessum leik. Við fundum aldrei lausn á David Okeke. Hann átti frábæran leik og sérstaklega inn í teignum, það var eitt af ástæðunum. Svo var auðvitað Justin James mjög góður í leiknum, en Okeke gerði gæfumuninn í kvöld fyrir mér.” ÍR-ingar voru komnir 20 stigum undir á einum tímapunkti í þriðja leikhluta en unnu sig hratt aftur inn í leikinn. Borche segir að það hafi í raun og veru verið fyrsta skiptið í leiknum sem þeir fundu einhvern takt. „Þá byrjuðum við að spila eins og lið. Við fundum þá fimm gæja sem virkuðu best saman á vellinum, það tókst ekki alveg í fyrri hálfleik. Þeir lögðu gríðarlega á sig í að koma til baka en því miður eins og ég segi höfðum við ekki styrkinn í að klára þetta. Sérstaklega í stöðunni þegar við erum fimm sigum undir, þá áttum við nokkrar sóknir þar sem við vorum stoppaðir. En það er bara körfubolti. 19 stiga munur er ekki beint saga þessa leiks en til hamingju Álftanes. Ég held að mínir menn hafi mögulega verið of stressaðir fyrir þessu og brugðust ekki nægilega vel við. Sérstaklega við dómarana, það kom mér á óvart og ég bað þá afsökunnar. Þeir eru eins og við, þeir gera mistök og þá á maður ekki að bregðast við eins og minn leikmaður gerði. Ég talaði við hann og honum líður illa yfir því hvernig hann brást við en þannig er bara staðan,” sagði Borche en hann var að vitna í atvik sem átti sér stað í lok leiksins þegar Matej Kavas snöggreiddist við dómarana og honum var vísað af velli.
Bónus-deild karla ÍR UMF Álftanes Tengdar fréttir „Sem betur fer spilum við innanhúss” Álftanes mætti í Breiðholtið í kvöld þar sem þeir mættu ÍR í Bónus deild karla. Álftanes vann leikinn 75-94 en þrátt fyrir 19 stiga mun var leikurinn gríðarlega jafn lengi vel. Justin James leikmaður Álftanes átti stórleik þar sem hann gerði 34 stig, fimm fráköst og níu stoðsendingar. 30. janúar 2025 21:59
„Sem betur fer spilum við innanhúss” Álftanes mætti í Breiðholtið í kvöld þar sem þeir mættu ÍR í Bónus deild karla. Álftanes vann leikinn 75-94 en þrátt fyrir 19 stiga mun var leikurinn gríðarlega jafn lengi vel. Justin James leikmaður Álftanes átti stórleik þar sem hann gerði 34 stig, fimm fráköst og níu stoðsendingar. 30. janúar 2025 21:59