Innlent

Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri

Jón Þór Stefánsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar er við leit.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er við leit. Vísir/Vilhelm

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð tíunda tímanum í morgun. Talið er að boðið komi frá einkaneyðarsendi, en það gaf upp tvær staðsetningar, annars vegar inn við Meradali og hins vegar úti á sjó, suður frá Þorlákshöfn.

Björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan hafi síðan verið við leit. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu.

Hann segir að þyrla gæslunnar og  hafi hafið leit á punktinum sunnan Þorlákshafnar og ekkert fundið. Þyrlan hafi síðan stefnt á Meradali. Eftirlitsflugvélin TF-Sif hefur síðan farið í loftið og leitar suður af Þorlákshöfn.

Ekki liggur fyrir frá hverjum þetta boð hafi komið. Að sögn Ásgeirs þykir líklegra að boðið hafi komið frá Þorlákshöfn, en þrátt fyrir það hafi verið ákveðið að leita af sér allan grun á hinni staðsetningunni. Einnig var haft samband við fiskiskip á svæðinu.

Ekkert vit að vera á ferðinni þarna

Sölvi Rafn Rafnsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir í samtali við fréttastofu að veðrið á vettvangi sé snælduvitlaust.

„Það er ekkert vit í því að vera þarna á ferð. Það er bæði kalt og þá gengur á með dimmum éljum. Það er gríðarleg vindkæling. Þess vegna erum við að leggja áherslu á þessa leit því menn endast ekkert lengi í þessu, nema þeir séu þeim mun betur klæddir. En svo vitum við ekkert hvort þetta sé raunverulegt. Við erum bara leita af okkur grun,“ segir Sölvi.

Einhverjir bílar eru á bílastæðum skammt frá vettvangi og hefur lögreglan verið að reyna að hafa samband við eigendur þeirra bíla.

Leitin er umfangsmikil að sögn Sölva, en um fimmtíu björgunarsveitarmenn frá Suðurnesjum og frá höfuðborgarsvæðinu taka þátt í leitinni.

Uppfært klukkan 15:42

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að staðan sé nokkurn veginn óbreytt. Um sjötíu björgunarsveitarmenn séu við leit í leiðinlegu veðri. Þá fari birtuskilyrðum ekki batnandi þegar líða tekur á daginn. Ekkert hafi fundist sem útskýri neyðarboðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×