Erlent

Hútar vilja há­þróaðar stýri­flaugar frá Rússum

Samúel Karl Ólason skrifar
Hútar hafa skotið fjölmörgum eldflaugum að frakt- og herskipum á Rauðahafi á undanförnum mánuðum.
Hútar hafa skotið fjölmörgum eldflaugum að frakt- og herskipum á Rauðahafi á undanförnum mánuðum. AP/Ansar Allah Media

Erindrekar frá Íran hafa komið að viðræðum milli yfirvalda í Rússlandi og Húta í Jemen, sem vilja fá háþróaðar eldflaugar frá Rússum til að sökkva skipum á Rauðahafi. Hútar hafa gert ítrekaðar árásir á skip á svæðinu og óttast er að umræddar eldflaugar gætu aukið getu þeirra til muna.

Hópurinn stjórnar Sanaa, höfuðborg Jemen, og stórum hlutum landsins í norðri og vestri. Átökin hafa leitt til hrikalegs mannúðarástands í Jemen, þar sem fátækt er mikil. Hungursneyð og smitsóttir hafa leikið í íbúa landsins grátt.

Frá því hernaður Ísraela á Gasaströndinni hófst hafa Hútar, sem njóta stuðnings frá Íran eins og Hamas og Hezbollah, gert ítrekaðar dróna- og eldflaugaárásir á fraktskip og herskip á Rauðahafi. Þeir hafa sökkt að minnsta kosti tveimur skipum og tekið eitt hervaldi.

Bretar og Bandaríkjamenn hafa gert fjölmargar árásir gegn Hútum og skotið niður fjölda eldflauga og dróna. Hútar hafa einnig skotið niður að minnsta kosti tvo bandaríska MQ-9 Reaper dróna með flugskeyti.

Sjá einnig: Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir

Sjö heimildarmenn Reuters fréttaveitunnar sem þekkja til viðræðnanna segja að ekki sé búið að taka ákvörðun í Kreml um hvort senda eigi Hútum eldflaugarnar sem þeir vilja.

Þar er um að ræða svokallaðar Yakhont eða P-800-eldflaugar, sem eru hljóðfráar stýriflaugar sem hannaðar eru til að sökkva skipum og eiga að geta drifið allt að þrjú hundruð kílómetra. Stýriflaugarnar voru fyrst þróaðar árið 1993 en þær fljúga á rúmlega tvöföldum hljóðhraða í um tíu til fimmtán metra hæð í átt að skotmörkum sínum og geta verið búnar allt að 250 kílógrömmum af sprengiefni.

Slíkar eldflaugar myndu gera Hútum kleift að gera mun skæðari árásir á fraktskip á Rauðahafi og ógna vestrænum herskipum sem hafa verið notuð til að verja skipasiglingar um hafsvæðið á undanförnum mánuðum.

Hér að neðan má sjá gamla frétt NBC News um tilraunir Rússa með eldflaugarnar.

Tengja stýriflaugarnar við kröfu Úkraínumanna

Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum að Ebrahim Raisi, fyrrverandi forseti Írans, sem lést í þyrluslysi í maí, hafi byrjað á því að hafa milligöngu milli Rússa og Húta. Þá segir miðillinn að rússneskir erindrekar hafi tvisvar sinnum fundað með sendinefnd Húta í Tehran í Íran á þessu ári.

Þar eru þeir sagðir hafa rætt hvort Rússar væru tilbúnir til að senda Hútum áðurnefndar stýriflaugar í tugatali.

Til að koma slíkum vopnum í hendur Húta, þyrfti það að gerast án þess að Bandaríkjamenn og aðrir kæmust að því og Rússar þyrftu einnig að þjálfa Húta í notkun stýriflauganna. Ferlið væri nokkuð umfangsmikið.

Rússar hafa þó áður sent Yakhont-stýriflaugar til Hezbollah í Líbanon.

Bandaríkjamenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að veiti þeir Úkraínumönnum leyfi til að nota bandarísk vopn til árása í Rússlandi, muni ráðamenn í Kreml ákveða að senda Hútum stýriflaugar. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði Reuters að vísbendingar væru um að viðræður Rússa og Húta tengdust að einhverju leyti kröfum Úkraínumanna um áðurnefnd leyfi.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði til að mynda í júní að Rússar gætu sent langdræg vopn til andstæðinga Bandaríkjanna og annarra víðsvegar um heim.

Öryggissérfræðingar segja í höndum Húta myndu stýriflaugarnar gerbreyta öryggisástandinu í Mið-Austurlöndum. Hútar gætu ekki eingöngu notað þær gegn breskum og bandarískum herskipum, eða fraktskipum, heldur einnig gegn skotmörkum í Sádi-Arabíu.

Sádar eru sagðir hafa komið áhyggjum sínum á framfæri við yfirvöld í Rússlandi.


Tengdar fréttir

Lofar að svara árásum Húta af hörku

Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. 

Þrír drepnir í árás Ísraela í Jemen

Þrír voru drepnir og um 80 manns særðust í loftárásum Ísraela á hafnarborgina Hodeida í Jemen í gær. Árásin er viðbragð við loftárás Húta á Tel Aviv í Ísrael þar sem einn lét lífið og tíu særðust.

Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi

Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal.

Skip sökk eftir loftárás Húta

Flutningaskipið Rubymar sökk í Rauðahafinu í gærkvöldi eftir loftárás Húta í Jemen. Skipið er það fyrsta til þess að sökkva vegna aðgerða Húta í tengslum við stríðið á Gasa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×