Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Taumhald Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands á Verkamannaflokkinum virðist ætla að renna honum úr greipum og stemningin innanbúðar nálgast suðupunkt eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum í vikunni. Fyrrverandi ráðherra hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og skorað á Starmer að víkja. Erlent 10.5.2026 10:27
Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Fimm eru særðir eftir að bifreið var ekið inn í þvögu gangandi vegfarenda í miðbæ Arnold í Nottinghamskíri í Bretlandi í nótt. Einn þeirra særðu er í lífshættu og var fluttur á gjörgæslu að sögn lögreglu á svæðinu. Erlent 9.5.2026 13:49
Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Niðurstöður sveitastjórnarkosninga sem fóru fram víða um Bretland fyrir helgi komu fáum á óvart þó þær séu til marks um grundvallarbreytingar í breskum stjórnmálum. Umbótaflokkur Nigels Farage bætti rúmlega sextánfalt við sig en stólparnir tveir í breskum stjórnmálum til rúmlega hundrað ára guldu afhroð. Erlent 9.5.2026 11:53
Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Karlmaður var handtekinn vegna gruns um vopnaburð nærri heimili Andrésar fyrrverandi prins. Fréttir eru um að maðurinn hafi ógnað Andrési þar sem hann var á gangi með hundum sínum. Erlent 7. maí 2026 15:43
Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Rauðu djöflarnir í Manchester United unnu glæstan 3-2-sigur á erkifjendum sínum í Liverpool á Old Trafford í gær. Róbert Wessman, forstjóri Alvotech, mætti með fríðu föruneyti á völlinn og fylgdist með sínum mönnum fara með sigur af hólmi. Lífið 4. maí 2026 10:06
Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Essa Suleiman, 45 ára bresk-sómalskur maður, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann stakk tvo menn af gyðingaættum í Lundúnum. Hann er talinn hafa stungið annan mann fyrr um daginn. Erlent 3. maí 2026 18:08
Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir stunguárás sem beindist að tveimur mönnum af gyðingaættum í Lundúnum á miðvikudag. Árásin hefur vakið óhug og reiði í gyðingasamfélagi borgarinnar. Erlent 1. maí 2026 08:34
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Erlent 1. maí 2026 00:02
Bretland og Norðurslóðir Norðurslóðir eða the High North eru ekki lengur fjarlægt og abstrakt málefni. Það hefur á stuttum tíma orðið eitt af mikilvægustu svæðunum sem mótar framtíð Evrópu og Norður-Atlantshafsins. Skoðun 30. apríl 2026 10:12
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. Lífið 30. apríl 2026 07:00
Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Tveir karlmenn af gyðingaættum voru stungnir í árás í norðurhluta Lundúna. Einn var handtekinn grunaður um árásina. Lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverkaárás. Erlent 29. apríl 2026 12:54
Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu. Erlent 29. apríl 2026 09:50
„Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag á móti Karli Bretakonungi og Kamillu drottningu í Hvíta húsinu í Washington DC. Konungshjónin hófu í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og ávarpaði Trump þau fyrir utan Hvíta húsið. Þar sagði Trump meðal annars frá því að móðir hans hefði verið skotin í Karli konungi á árum áður. Erlent 28. apríl 2026 15:48
Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Hljómsveitin Sigur Rós mun koma fram á aldarafmælishátíð David Attenborough í Royal Albert Hall í London þann 8. maí næstkomandi, á afmælisdegi Attenborough. Lífið 28. apríl 2026 15:33
Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. Erlent 28. apríl 2026 07:42
Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu „Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris. Menning 27. apríl 2026 12:02
Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu Bresk sjóferðayfirvöld hafa varað við aukinni ógn við skip undan ströndum Sómalíu eftir að flutningaskip var tekið þar í því sem er grunað um að vera sjórán. Erlent 27. apríl 2026 09:09
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna. Erlent 25. apríl 2026 18:43
Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Breska ríkisstjórnin ítrekar að Bretland muni ekki láta Falklandseyjar af hendi. Í leknum tölvupósti úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er því velt upp að endurskoða stuðning við tilkall Bretlands til eyjanna vegna meints skeytingarleysis Breta í stríðinu við Íran. Erlent 24. apríl 2026 23:39
Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Evrópusambandið gekk í gær frá 90 milljarða evra láni til Úkraínu, eftir að nýkjörinn stjórn í Ungverjalandi snéri ákvörðun Victor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra, um að beita neitunarvaldi gegn lánveitingunni. Erlent 24. apríl 2026 06:44
Forrest Gump rokksins allur Enski gítarleikarinn og rokkgoðsögnin Dave Mason er látinn, 79 ára að aldri. Mason var einn af stofnmeðlimum proggrokksveitarinnar Traffic, spilaði undir á plötum Jimi Hendrix, George Harrison og Rolling Stones, túraði með Eric Clapton og samdi slagarana „Feelin’ Alright?“ og „We Just Disagree“. Tónlist 22. apríl 2026 10:52
Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Bretar sem verða ekki orðnir átján ára fyrir árslok geta aldrei verslað tóbak löglega í Bretlandi. Frumvarp þess efnis hefur verið samþykkt í báðum deildum breska þingsins. Ráðherrar vona að með lögunum verði til reyklaus kynslóð og að álag á heilbrigðiskerfið minnki til muna. Erlent 21. apríl 2026 22:07
Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Olly Robbins, fráfarandi ráðuneytisstjóri breska utanríkisráðuneytisins, hefur staðfest að Keir Starmer forsætisráðherra vissi ekki að öryggisyfirvöld, UK Security Vetting, hefðu mælt gegn því að Peter Mandelson, sem Starmer hafði þá þegar skipað sendiherra í Washington, yrðu veittar öryggisheimildir. Erlent 21. apríl 2026 12:34
Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Elísabet II hefði orðið hundrað ára í dag. Karl Bretakonungur minntist móður sinnar, af þessu tilefni, með ávarpi til bresku þjóðarinnar í dag. Hann segir að móðir sín hefði haft miklar áhyggjur af stöðu heimsmála en hún hafi haft óbilandi trú á því að gæskan myndi alltaf sigra að lokum. Lífið 21. apríl 2026 10:47