Erlent

Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Garðurinn var rýmdur í kjölfar árásarinnar. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Garðurinn var rýmdur í kjölfar árásarinnar. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Getty

Maður lést eftir að tígrisdýr réðst á hann í dýragarðinum Yorkshire Wildlife Park á Englandi, að sögn lögreglu í Suður-Jórvíkurskíri. Hann er sagður hafa farið inn á afgirt svæði þar sem tígrisdýrið dvaldi.

Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á manninn og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC).

Viðbragðsáætlun var virkjuð samstundis, segir í tilkynningu á síðu garðsins. Hann hafi verið rýmdur í kjölfar atviksins og verði hann áfram lokaður á morgun.

Talsmaður dýragarðsins segir að starfsmenn séu harmi slegnir vegna atviksins. 

„Hugur okkar og innilegar samúðarkveðjur eru hjá fjölskyldu og ástvinum þess sem lést,“ er haft eftir honum í umfjöllun BBC. Forsvarsmenn garðsins vinni nú náið með lögreglu og viðeigandi yfirvöldum til að komast til botns í málinu.

Árásin náðist á myndupptöku sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögregla hvetur fólk til að deila myndefninu ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×