Erlent

Konan sem var borin út er látin

Bjarki Sigurðsson skrifar
Maricarmen var 87 ára gömul.
Maricarmen var 87 ára gömul. AP/Fernando Sánchez

Tákngervingur húsnæðiskreppunnar á Spáni, hin 87 ára gamla Maricarmen Abascal, er látin. Fyrir rúmum tveimur vikum var hún borin út úr leiguíbúð í Madrid sem hún hafði búið í í sjö áratugi.

Fasteignafélagið sem átti íbúðina hafði hækkað leiguna umtalsvert svo hún gat ekki greitt hana. Við þetta urðu íbúar borgarinnar ósáttir og boðað var til mótmæla víða um landið.

Maricarmen var minnst víða um borgina í gærkvöldi og í nótt.AP/Bernat Armangue

Svokallað Maricarmen-frumvarp var lagt fram á spænska þinginu í kjölfarið en þar átti að taka á húsnæðismarkaði. Frumvarpið var fellt og boðaði Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, til kosninga í kjölfarið. 

Maricarmen fékk að flytja aftur heim til sín nokkrum dögum eftir að hún var borin út en hún lést í gær.


Tengdar fréttir

Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, boðaði skyndilega til þingkosninga í sjónvarpsútsendingu í morgun. Húsnæðiskreppa í landinu hefur valdið ríkisstjórninni vandræðum.

Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum

Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×