Erlent

Navanethem Pillay hlaut friðar­verð­laun Nóbels

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
 Navanethem „Navi“ Pillay hlaut friðarverðlaunin.
Navanethem „Navi“ Pillay hlaut friðarverðlaunin. EPA

Norska Nóbelsnefndin ákvað að Navanethem „Navi” Pillay skildi hljóta friðarverðlaun Nóbels. Hún er menntaður lögmaður og er í dag dómari við Alþjóðadómstólinn í máli Mjanmar.

Pillay hlaut verðlaunin fyrir viðleitni sína til að efla frið og alþjóðalög auk þess að hafa sýnt fram á mikið hugrekki. Hún hafi af miklum heilindum rutt brautina í átt að heildstæðari alþjóðlegri réttarskipan.

„Verðlaunahafi ársins hefur átt lykilþátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð séu sótt til saka,“ segir í tilkynningu nefndarinnar.

Pillau er frá Suður-Afríku og fæddist inn í fjölskyldu af indversk-tamílskum uppruna á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hún er menntaður lögmaður og tókst á við kerfislæga mismunun, aðskilnað og útilokun. Til að mynda starfaði hún við að verja Nelson Mandela og aðra sem risu gegn aðskilnaðarstefnunni.

Hún hefur gegnt dómarastörfum við Hæstarétt í Suður-Afríku, Alþjóðlega stríðsglæpadómstólinn í málefnum Rúanda og Alþjóðlega sakamáladómstólinn . Hún var einnig mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og fór fyrir óháðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd SÞ um hernumdu palestínsku svæðin. 

„Þegar Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn fyrir Rúanda staðfesti að nauðgun og kynferðisofbeldi gætu talist glæpur gegn mannkyni – sem og þjóðarmorð – voru áhrif hennar veigamikill þáttur.“

Vísað er hér í þjóðarmorð sem áttu sér stað í Rúanda árið 1994.

Á sama tíma átti Pillay lykilþátt í að ákæra sakborning fyrir að hvetja til þjóðarmorðs með útbreiðslu áróðurs.

Réttarríkið sé undirstaða kerfis sem tryggir frið

„Í sögulegum alþjóðlegum dómsmálum hefur hún sýnt að lagaleg úrræði geta stuðlað að því að koma í veg fyrir stríðsátök og ofbeldi. Navi Pillay hefur einnig lagt sitt af mörkum til að styrkja stofnanir alþjóðalaga. Sjálfstæði hennar, sérþekking og staðfesta hafa gert hana að einum virtasta alþjóðlega lögfræðingi okkar tíma,“ segir í tilkynningunni.

Með því að veita Pillay verðlaunin vill norska Nóbelsnefndin minna heiminn á að réttarríkið sé undirstaða þess kerfis sem á að tryggja frið og leysa deilur án ofbeldis. 

„Sagan hefur sýnt að heimur án réttarríkis er óréttlátur, óskynsamlegur og ómannúðlegur.“

Með störfum sínum hafi Pillay látið ríki og þjóðarleiðtoga sæta ábyrgð auk þess að veita fórnarlömbum ofbeldis og átaka von. Ferill hennar minni heiminn á nauðsyn þess að styðja, styrkja og efla hið alþjóðlega réttarríki.

Sýnt var beint frá blaðamannafundi þar sem verðlaunahafinn var tilkynntur.

María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar frá Venesúela, hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Í rökstuðningi nefndarinnar sagði að hún fengi verðlaunin fyrir sleitulausa baráttu sína fyrir lýðræði í Venesúela og að tryggja friðsamleg umskipti til lýðræðis frá einræði í landinu. 

Hún endaði á að gefa Donald Trump Bandaríkjaforseta verðlaunapeninginn en hann hefur ítrekað sagst vilja fá verðlaunin.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×