Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 07:45 Marco Rubio í Aþenu í ljósaskiptunum í gær. AP/Mark Schiefelbein Marco Rubio kallaði í gær eftir því að ríki Evrópu litu aftur til fornra gilda heimsálfunnar. Hann sagði Evrópu þurfa að verja meiru til varnarmála og einnig þyrfti að koma böndum á fólksflutninga til heimsálfunnar. Þetta var meðal þess sem utanríkisráðherrann sagði í ræðu á hinni forfrægu Akrópólishæð í Aþenu í Grikklandi og í ummælum á blaðamannafundi með George Gerapetritis, utanríkisráðherra Grikklands.
Þangað fór Rubio frá Íslandi í fyrradag til að ræða við gríska ráðamenn um samstarf Bandaríkjanna og Grikklands á ýmsum sviðum. Í dag mun hann svo fara til Portúgal. Sjá einnig: Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Rubio hrósaði Grikkjum fyrir að hafa aukið fjárútlát til varnarmála töluvert að undanförnu. Hann sagði Grikki ætla að taka ábyrgð á vörnum eigin heimsálfu og sagði að þeir væru á góðri leið með að verja fimm prósentum af landsframleiðslu til varnarmála, sem er krafa sem ríkisstjórn Donalds Trump hefur sett á ríki Evrópu. SECRETARY RUBIO: Across this continent, we are witnessing what we hope will be the beginnings of a generational shift: skyrocketing defense spending, a flurry of new partnerships and programs, expanded manufacturing and production, following on the historic defense commitments made last year in the Hague.— Department of State (@StateDept) October 7, 2026 Bandaríkjamenn hafa um árabil farið fram á það að ríki Evrópu taki aukna ábyrgð á eigin vörnum en ríkisstjórn Trumps hefur gengið öðrum ríkisstjórnum framar í þeim kröfum og er unnið að því víða um heimsálfuna að auka fjárútlát til varnarmála. Sjá einnig: Herir Evrópu standa á brauðfótum Ráðamenn í Bandaríkjunum, og þar á meðal Rubio, hafa þó lýst yfir vonbrigðum með það að ráðamenn í Evrópu hyggist leggja sérstaka áherslu á að kaupa hergögn frá evrópskum vopnaframleiðendum. Er það að miklu leyti til komið vegna þess að ráðamenn í Evrópu óttast margir að ekki sé lengur hægt að treysta á það að Bandaríkjamenn muni koma vinum sínum í Evrópu til aðstoðar, eins og Trump hefur ítrekað gefið til kynna. Forsvarsmenn bandarískra hergagnafyrirtækja hafa reynt að koma til móts við ráðamenn í Evrópu. Meðal annars hafa þeir lagt til að auka framleiðslu á bandarískum hergögnum í Evrópu. Sjá einnig: Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Þetta hefur þó ekki dregið nægilega úr ótta Evrópumanna, þar sem margir hafa áhyggjur af því að bandarísk fyrirtæki muni alltaf setja bandarískan herafla í forgang þegar kemur að framleiðslu. „Vestrið“ á krossgötum Í ræðu sinni fjallaði Rubio einnig um málefni farandfólks og innflytjenda, sem hefur verið sérstakt áherslumál ríkisstjórnar Trumps bæði hvað varðar Bandaríkin sjálf og Evrópu. Bandaríkjamenn hafa ítrekað gagnrýnt ríki Evrópu fyrir að taka á móti of mörgum innflytjendum. Rubio sagði að Grikkir ættu að vinna nánar saman að því að draga úr flæði fólks til Evrópu og tengdi hann það við rýrnun hefðbundinna gilda og hnignun grísks samfélags. Það sama ætti við Evrópu í heild og jafnvel Bandaríkin. SECRETARY RUBIO: “Nationalism” became a dirty word. So we tore down our monuments, we condemned our own history, and in too many places we taught our children to be ashamed of the countries they would inherit. In the process we opened our borders, and outsourced our industry, and allowed our militaries to wither and to decay.— Department of State (@StateDept) October 7, 2026 „Það þykir í tísku í dag að standa í þeirri trú að upplýst utanríkisstefna felist í því að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð. Og ég held að á þessu sviði höfum við líka margt að læra af mönnum Forn-Grikklands. Þeir vissu að það væri hvorki eigingjarnt né rangt að vera þjóð sinni trúr, né heldur eigingjarnt eða rangt að berjast fyrir því að verja hagsmuni hennar umfram allt annað,“ sagði Rubio í ræðunni. Hann sagði „Vestrið“ standa á krossgötum. Næsti áratugur muni móta næstu hundrað ár af mannskynssögunni. „Sú stefna sem við tökum mun marka það hvort Vestrið haldi stöðu sinni í fararbroddi heimsins eða sætti sig við framtíð sem einkennist af stöðnun, undirgefni og hnignun. Við munum annaðhvort velja að grípa til aðgerða núna eða glata möguleikanum á að grípa til aðgerða yfirhöfuð.“ SECRETARY RUBIO: Today, we find ourselves at a crossroads because the next decade and the decisions we make will write the story of the next century. The course we take will determine whether the West maintains its place at the head of the world, or resigns itself to a future of atrophy, servitude, and decline. We will either choose to act now, or lose the choice to act at all. Under President Trump, the United States has made its choice.— Department of State (@StateDept) October 7, 2026 Svipaður tónn og í febrúar Eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar er Rubio af mörgum séður sem mildur málsvari ríkisstjórnar Trumps, miðað við aðra sem henni tilheyra. Hann er líklegur til að etja kappi við JD Vance varaforseta um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2028. Vance hefur farið mjög hörðum orðum um Evrópu og þá sérstaklega vegna málefna innflytjenda og ýmissa menningarátaka. Sjá einnig: Húðskammaði ráðamenn í Evrópu Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Rubio gagnrýnir ríki Evrópu vegna málefna innflytjenda og í tengslum við meintar takmarkanir á málfrelsi íhaldsmanna í Evrópu. Hann hélt ræðu á öryggisráðstefnu í München í febrúar, þar sem Vance hafði farið hörðum orðum um Evrópu ári áður. Ræða Rubio var flutt í mildari tónn en einkenndist af sama innihaldinu og ræða Vance.
Bandaríkin Grikkland Innflytjendamál Flóttamenn Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira