Átta strákar í bann vegna veðmálasvindls Sindri Sverrisson skrifar 22. september 2021 08:00 Rússneski hópurinn sem keppti á Evrópumótinu í Króatíu í síðasta mánuði. m19ehfeuro.com Stór hluti leikmannahóps U19-landsliðs Rússa í handbolta karla er grunaður um að hafa verið í sambandi við veðmálafyrirtæki og hagrætt úrslitum á Evrópumótinu í Króatíu í ágúst.
Rússarnir voru ekki í riðli með Íslendingum á mótinu og mættust liðin aldrei. Rússland endaði í 15. sæti eftir að hafa tapað gegn Þýskalandi (35-27), Danmörku (38-26), Noregi (29-24), Austurríki (36-19), Frakklandi (36-17) og Ísrael (33-31) en loks unnið Austurríki 31-24. Um átta leikmenn Rússlands er að ræða og fá þeir ekki að spila í keppnum fyrir hönd rússneska handknattleikssambandsins á meðan á rannsókn stendur en til stendur að taka frekari skref í lok mánaðarins. Siðanefnd sambandsins segir í yfirlýsingu að ekki verði liðið að leikmenn hagræði úrslitum með ólöglegum hætti og að þeim verði refsað án málamiðlana. „Staðreyndirnar sem siðanefndin hefur lagt fram fylla mig ekki bara reiði heldur miklum vonbrigðum varðandi ungu leikmennina. Fyrir mér eru þetta svik,“ sagði Sergei Shishkarev, formaður handknattleikssambands Rússlands. „Við erum að leggja mikið á okkur til að koma karlahandboltanum út úr þeirri krísu sem hann hefur verið í síðustu ár. Við getum reynt að bæta umgjörðina en öll heimsins tækni, búnaður og rannsóknir ráða ekki siðferðinu og hugarfarinu sem gerir íþróttafólkinu okkar kleift að keppa fyrir hönd þjóðarinnar,“ sagði Shishkarev.
Handbolti Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira